Power Move Studio

Power Move Studio Zumba, Strong Nation o.fl. Tímar eru í íþróttasölum í MH / Hamrahlíð 10. Sjá tímatöflu fyrir frekari upplýsingar.

11/06/2026

Hafð'þú ekki áhyggjur af því!

Ætli það sé ekki mottóið okkar? Það kemur þó vonandi ekki til þess að tónlistin gleymist en við erum þá tilbúnar að þenja raddböndin, bæði í Strong og Zumba. Það yrði bara upplifun að heyra okkur rappa á spænsku 😎😂

Þekkir þú Strong æfinguna í þessu myndbandi?

09/06/2026

Hvort sem það eru Zumba eða Strong tímar - eða meira að segja efni fyrir samfélagsmiðla að þá má segja að við gerum ekkert með hálfum hug í Power Move Studio 😅🤣

P.s. engum var haldið í gíslingu lengur en á þurfti að halda og var öllum frjálst að fara þegar samfélagsmiðlastjórinn var sáttur 🤣

Síðasta fimmtudag var Hawaii- og blómaþema í Strong og sömuleiðis var uppskeruhátíð þar sem við fögnuðum Strong iðkendum...
08/06/2026

Síðasta fimmtudag var Hawaii- og blómaþema í Strong og sömuleiðis var uppskeruhátíð þar sem við fögnuðum Strong iðkendum okkar í Power Move Studio 💪

Veittar voru viðurkenningar fyrir bestu mætinguna í vetur en líka fyrir nýliða vetrarins enda þykir okkur svo gaman að sjá Strong hópinn okkar stækka og í leiðinni viljum við hvetja alla sem hafa áhuga að koma og prófa 💪❤️

Í ár voru þær Herdís, Inga og Siva sem létu sig ekki vanta í yfir 60 tíma! Herdís og Siva hlutu viðurkenningu fyrir bestu mætingu vetrarins annað árið í röð 🤩 Halla kom síðan sterk inn sem nýliði vetrarins og gefur ekkert undan! 💪

Anna og Hildur tóku á móti viðurkenningunni hennar Herdísar sem var fjarri góðu gamni þennan dag en átti góða fulltrúa á staðnum 🥰 Halla tók síðan á móti viðurkenningunni sinni í dag! 🏆

Við erum svo þakklátar fallega samfélaginu okkar og elskum að fá að sprikla og hafa gaman með ykkur!

Strong tímarnir eru síðan á sínum stað fram að sumarlokun þann 28. júní og fara svo aftur af krafti af stað þann 13. júlí nk.

TAKK FYRIR OKKUR! ❤️

03/06/2026

Dásamlegt að hlæja með góðum vinum ❤️ það er alltaf stutt í hláturinn hjá okkur í Power Move Studio 😉

02/06/2026

Bloopers!

Það getur flækt málin að vera með props í upptökum og þá getur verið erfitt að halda andliti 🤣 en það verða oft til skemmtileg gullkorn þegar upptökurnar “klikka” 🤣

Address

Menntaskólinn Við Hamrahlíð
Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Power Move Studio posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Power Move Studio:

Share