21/08/2022
Hæhæ mig langar aðeins til að kynna mig fyrir nýjum fylgjendum sem hafa áhuga á liðleikaþjálfuninni☺️
Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á hreyfingu og heilsu og hef starfað sem þjálfari í um 8 ár. Síðastliðinn 3-4 ár hefur sá áhugi þróast sérstaklega að liðleikaþjálfun.
Liðleikaþjálfun er fyrir alla sem hafa áhuga á að auka liðleika, styrk, líkamsvitund og vellíðan í eigin líkama og þjálfunin hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum.
Ég hef ótrúlega gaman að starfa með fólki að þeirra liðleikamarkmiðum og það gefur mér mikið að fylgjast með framförum þeirra, ánægjunni við að ná settum markmiðum ásamt aukinni vellíðan í eigin líkama.
Ég hef einnig lokið mastersnámi í grunnskólakennarfræðum og er starfandi grunnskólakennari. Ég var umsjónarkennari á yngsta stigi í um 6 ár og kenndi þá einnig jóga í grunnskólanum sem ég kenndi við sem mér fannst algjörlega æðislegt og er ég með margt spennandi í gangi núna varðandi jóga með börnum sem ég hlakka til að deila með ykkur síðar.
Núna starfa ég sem enskukennari í unglingadeild sem mér finnst alveg geggjað.
Varðandi liðleikaþjálfunina þá býð ég bæði upp á liðleikanámskeið fyrir þá sem hentar betur að mæta í tíma en ég býð einnig áfram upp á fjarþjálfun fyrir þá sem vilja æfa undir leiðsögn en vilja eða hentar betur þetta svigrúm til að æfa á eigin forsendum þar sem þeim hentar best. Báðar leiðir eru árangursríkar ef fólk er tilbúið til að leggja sig fram og sinna æfingunum eins og á við um alla aðra þjálfun.
Þjálfunarréttindi mín eru eftirfarandi:
Master Flexibility teacher training, 2022
XPERT Flexibility Flow Professional Teacher Training, 2019
Jógakennari- 200 stunda jógakennaranám 2015-2016
Level 2 Professional Pole Instructor Training, 2016
Level 1 Professional Pole Instructor Training, 2015
Childplay yoga teacher training Gurudass Kaur Khalsa, 2015
AntiGravity Aerial Yoga Fundamentals 1 & 2 , 2014
AntiGravity Aerial Restorative Yoga, 2014
AntiGravity Aerial Yoga 1, 2014
AntiGravity Aerial Yoga 2, 2014
Ekki hika við að senda á mig skilaboð ef þú ert með einhverjar spurningar eða pælingar varðandi þjálfunina.