05/06/2026
Dagskrá Gatorade búðanna 2026
Gatorade körfuboltabúðir í N1 höll Vals að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 8. júní til fimmtudags 11. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 11 til 18 ára. Spilað er á hár körfur og þeir sem treysta sér í það eru velkomnir.
Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færra þjálfara sem munu þjálfa í búðunum.
Vegleg verðlaun
Allir fá Gatorade brúsa og bol og nóg af drekka af Gatorade
All-star lið og MVP valið í hveri deild
Verðlaun fyrir 1 á 1, skot meistar og 4 á 4 meistara í hveri deild
Gatorade körfuboltabúðir 2026:
Frá 8. Júní til 11. júní 17.00-20.30
11 til 18 ára stelpur og strákar
Verð 17.000 kr.
Skráning hefur verið frábær síðust ár og færi komist að en viljað. Enn eru nokkur pláss laus í ár og hægt að skrá sig
Skrá í Garotarde búðir hér
https://forms.gle/EharFHxmEsQYYY5n7
Frekar upplýsingar
https://www.facebook.com/korfuboltabudirGusta
[email protected]
Dagskrá æfingabúðanna 2026:
Frá kl: 16.30 – 17.00 Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.
17.00 Stöðvaþjálfun: Stöðvaþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í hópa eftir aldri og kyni. Farið er í s*x mismunandi stöðvar á hverjum degi.
Frábæri þjálfarar þjálfa í búðunum í ár eins og undanfarin ár. Þeir
þjálfara sem hafa staðfest komu sína eru:
Jamil Abiad einstaklingsþjálfari frá Kanada, sem einkaþjálfari nokkra af bestu leikmönnum landsins og meistaraflokks þjálfari kvenna í Val. Hassan Haq þjálfari frá Pakistan og Englandi, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heim. Frank Aron Booker og Kristófer Acox tveir af bestu leikmönum Bónus deildarinnar síðust ár. Emma Theodorsson leikmaður úr NCAA háskólaboltanum, Ólöf Helga Pállsdóttir þjálfari og þáttastjórnandi körfuboltakvölds, Cedrick Bowen leikmaður og þjálfari mun öll þjálfa í búðunum í ár ásamt mörgum öðurum frábærum þjálfurum. Friðrik Þjálfi Stefánsson frábær einstæklings þjálfari sem notar mikið myndbönd við þjálfun sína.
1.Styrktarþjálfun
Leikmenn fá að leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum undir handleiðslu Páll Arnar Kendeh íþróttafræðingur og styrktarþjálfara.
2. Video stöð
Á þessari stöð verðu farið í myndbandsgreiningu á körfubolta. Með mismunandi reyndum þjálfurum.
3. Sóknarstöð
Þar sem áherslan er æfa knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum. Einnig hreyfingar án bolta.
Þjálfarar á þessari stöð verða David Patchell frá Englandi, Aron Páll Hauksson þjálfari frá Val og yngrilandslið KKÍ og Tómas Kárason þjálfari frá ÍR.
4. Fótavinna, sóknar- og varnarhreyfingar 1 á 1
Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna, með 1 á 1 leikjum.
Þjálfarar á stöðinni eru Jamil Abiad einstaklingsþjálfari frá Kanada, sem einkaþjálfari nokkra af bestu leikmönnum landsins. Friðrik Þjálfi Stefánsson þjálfara frá Val mun sjá um stöðina. Friðrik er með skemmtilega YouTube síðu með yfir 240.000 fylgjendum sem má sjá hér https://www.youtube.com/channel/UCAFISGXIxG6paieGk0PHUHA Bjarni Þór Gíslason þjálfari yngriflokka þjálfari mun einnig þjálfa á stöðinni.
5. Varnarleikur
Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik liðs, einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 2 á 2 – 3 á 3 o.s.frv.
Þjálfara á stöðinni Ólöf Helga Pálsdóttir margreindur þjálfari og þáttastjórnani körfuboltakvölds kvenna, Kristófer Acox einn besti leikmaður landsins þekktur fyrir sérlega góðan varnaleik. Cedrick Bowen mun einnig þjálfa á stöðinni.
6. Skotstöð
Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki.
Þjálfarar á stöðinni eru Frank Aron Booker einn allra besti skotmaður Bónus deildarinnar. Hassan Haq þjálfari frá Pakistan og Englandi, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heim. Sem er að koma gang gert til að þjálfa í Gatorade búðunum. Sigurður Jensson frá Dímon Hvolsvelli og Emma Theodorson leikmaður George Washington NCAA D1 skólans mun einnig vera á stöðinni.
18:30 – Hlé og nesti
19.45- NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East, WNBA og NCAA síðan er spilað mót þá daga sem búðirnar munu standa yfir.
20.20-Stuttur Fyrirlestur og búðum er síðan slitið í framhaldi af honum.
Með fyrirvara um breytingar á dagskrá.
Yfirþjálfarar búðanna: Halldór Geir Jensson marg reyndur dómar og yngriflokka þjálfari og Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi færustu þjálfara landsins undanfarna þrjá áratug og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum Hamar, Haukum og Val. Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu frá árinu 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum.
Ágúst og Halldór Geir hafa mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University , Davidson, NC State, Five Star Basketball Camp, Pocano Invitational, Hoop Group Basketball camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.