Tilveran Studio

Tilveran Studio Styrkur | flæði | vellíðan
Barre, pilates & jóga í fallegu boutique stúdíói í Garðabæ

✨Barre Mömmur✨Næsta námskeið byrjar mánudaginn 7. september✨Fjórar vikur-  mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl.09:00-0...
02/09/2026

✨Barre Mömmur✨

Næsta námskeið byrjar mánudaginn 7. september
✨Fjórar vikur- mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl.09:00-09:50
✨ Gott aðgengi fyrir barnavagna
✨ Fagleg leiðsögn
✨ Takmarkað pláss

Æfingarnar byggja á Barre-æfingakerfinu, sem getur hentað nýbökuðum mæðrum vel. Áhersla er lögð á styrkingu djúpvöðva, rétta líkamsbeitingu, liðleika og æfingar með léttum lóðum og eigin líkamsþyngd.

Gefðu þér tíma til að hreyfa þig og njóta stundarinnar með krílinu þínu✨

📩 Skráning er hafin á tilveranstudio.is

💛 Tilveran Studio x Gulur september 💛Við tökum þátt í vitundarvakningu Píeta samtakanna og viljum hjálpa til við að gera...
01/09/2026

💛 Tilveran Studio x Gulur september 💛

Við tökum þátt í vitundarvakningu Píeta samtakanna og viljum hjálpa til við að gera þetta mikilvæga málefni enn sýnilegra. 💛

Í tímanum næstkomandi laugardag hvetjum við alla til að klæðast gulu og minna okkur sjálf og hvert annað á mikilvægi andlegrar vellíðanar og hreyfingar.

Gulur september minnir okkur á að huga að eigin líðan, hlusta og vera til staðar fyrir hvert annað. Það er fátt mikilvægara en að eiga einhvern að og vita að við þurfum ekki að standa ein.

💛Því hvetjum við iðkendur til að taka vinkonu með sér. 💛

Tíminn byrjar eins og vanalega klukkan 10. 💛

💛 Þóra, jógakennari, byrjar tímann á því að leiða okkur í uppbyggjandi hugleiðslu.

💛 Svava Marín tekur við og leiðir okkur í kröftugan Barre-tíma að venju.

💛 Að lokum mun Aðalheiður Jensen, eigandi Tilveran Studio, leiða okkur í gegnum róandi öndunaræfingu og að lokum leggjumst við í endurnærandi slökun.

💛 Jana Steingríms, heilsukokkur, býður upp á ljúffengar gular kræsingar sem við njótum saman að loknum tíma.

💛 Hreyfum okkur saman. Verum til staðar fyrir hvert annað 💛

//Skráning í tímann fer fram á vef tilveranstudio.is
Ekki þarf að skrá vinkonu sérstaklega. Bara mæta 💛

31/08/2026

Hefur barnið þitt gaman að því að hreyfa sig í minni hóp við skemmtilega tónlist?

Krílafimi fyrir 2-4 ára hefst á sunnudaginn 🐒

Skráning á Tilveranstudio.is

Meiri athygli. Persónulegri leiðsögn. Betri upplifun.Í Tilveran Studio eru færri í hverjum tíma svo þú færð þá athygli o...
27/08/2026

Meiri athygli. Persónulegri leiðsögn. Betri upplifun.

Í Tilveran Studio eru færri í hverjum tíma svo þú færð þá athygli og leiðsögn sem þú þarft. ✨

23/08/2026

Undirbúningur fyrir fullan sal af barre skvísum ✨💪🏻🔥💦🧘🏻‍♀️

Tilbúin í haustið og rútínuna🤍✨ Skráning á námskeið er hafin á tilveranstudio.is
23/08/2026

Tilbúin í haustið og rútínuna🤍✨
Skráning á námskeið er hafin á tilveranstudio.is

04/08/2026

Brot úr Yin-& bandvefslosun hjá Þóru 🧘🏻‍♀️ Best geymda leyndarmál Garðabæjar ✨

✨ Nýjar og einfaldari áskriftarleiðir taka gildi í haust ✨Með fleiri valkostum og meiri sveigjanleika getur þú fundið þá...
23/07/2026

✨ Nýjar og einfaldari áskriftarleiðir taka gildi í haust ✨

Með fleiri valkostum og meiri sveigjanleika getur þú fundið þá leið sem hentar þér best.

✨FLÆÐI – 8 tímar á mánuði | 20.900 kr.
✨JAFNVÆGI – 12 tímar á mánuði | 24.900 kr.
✨STYRKUR – ótakmarkað aðgengi að tímum | 28.900 kr.

Klippikort, námskeið og einkatímar verða áfram í boði.

Nánari upplýsingar um áskriftarleiðirnar og námskeið haustsins koma á næstu dögum inn á vefsíðu Tilveran Studio.

Á morgun sunnudag - Fjölskyldan hreyfir sig samanHittumst á BB king vellinum við hoppubelginn hjá Ásgarðslaug! Einfaldar...
04/07/2026

Á morgun sunnudag - Fjölskyldan hreyfir sig saman

Hittumst á BB king vellinum við hoppubelginn hjá Ásgarðslaug!

Einfaldar æfingar og hreyfileikir sem allir geta gert☀️

Tilvalið að skella sér í sund eftir tímann!

Haustdagskráin byrjar 10. ágúst 💦🔥Nánari tímasetningar fyrir lokuð námskeið verða birtar á næstu vikum ✨ Fylgstu með og ...
30/06/2026

Haustdagskráin byrjar 10. ágúst 💦🔥
Nánari tímasetningar fyrir lokuð námskeið verða birtar á næstu vikum ✨
Fylgstu með og tryggðu þér pláss þegar skráning opnar!

Address

Garðatorg 3
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 07:00 - 20:00
Tuesday 07:00 - 20:00
Wednesday 07:00 - 20:00
Thursday 07:00 - 20:00
Friday 07:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 12:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tilveran Studio posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share