14/05/2026
Íslandsmeistaramót barna og unglinga í Kata var haldið í Íþróttahúsinu Austurbergi um síðastliðna helgi þann 9. og 10. maí. Það var ringing alla þá helgi svo það var fullkomið veður til að halda sig inni og nýta tíma í að mingla við aðra karate iðkendur og spreyta sig í því að keppa við þá í leiðinni.
Sumir voru vel vanir því að keppa en aðrir að stíga sín fyrstu skref í því að taka þótt í stóru móti en þetta gekk alveg ljómandi vel fyrir sig og allir stóðu sig mjög vel, félaginu til sóma.
Til leiks voru mættir á laugardeginum um 90 keppendur, 12 ára og eldri, og um 160 á sunnudeginum, börn 11 ára og yngri, frá 12 félögum.
Frá okkur mættu í heildina 24 keppandur og því heilmikið sem þurfti að huga að til að allt gengi vel fyrir sig og vil ég þakka þeim foreldrum sem aðstoðuðu sérstaklega fyrir hjálpina. Einnig eiga ungu aðstoðaþjálfararnir okkar sérstakt hrós skilið fyrir sitt framlag á mótinu, þetta hefði ekki gengið eins vel án þeirra!
Hér að neðan má sjá myndir af okkar snillingum og þeirra árangri en þar má meðal eru tveir íslandsmeistarar,
Hinrik Lár í flokki pilta 7 ára og yngri og Indíana Rún í flokki stúlkna 7 ára og yngri og óskum við þeim innilega til hamingju með titilinn!
Aðrir sem nældu sér í sæti eru eftirfarandi:
Arnar Daði 2. sæti í flokki 8 ára pilta
Klara Ýr 3. sæti í flokki 7 ára og yngri stúlkna
Kría María 3. sæti í flokki 9 ára stúlkna
Maren 2. sæti í flokki 10 ára stúlkna
Karen 2. sæti í flokki 13 ára stúlkna
Guðmundur Frosti 3. sætir í flokki 13 ára pilta
Þar að auki var keppt í hópkata þar sem þrír keppendur keppa saman í hóp og hlutu 3 hópar sæti á palli,
í hópkata 9 ára og yngri var það bæði 2. og 3. sæti og svo í hópkata 12 og 13 ára. Nöfn þeirra fylgja myndunum hér að neðan.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn!
Frábær helgi að baki með okkar frábæru iðkendum sem öll stóðu sig virkilega vel og við erum mjög stolt af þeim!