Mýrin vatnsleikfimi

Mýrin vatnsleikfimi Vatnsleikfimi sem hentar fólki á öllum aldri, kennari er Jóna Örlygsdóttir íþróttakennari

30/08/2026

Heil og sæl.
minni ykkur á að fyrstu hóparnir í vatnsleikfiminni byrja mánudaginn 31. ágúst.

Vonandi eru allir sem ætla að taka þátt búnir að staðfesta þátttökuna.
Það er samt ekki of seint að skrá sig, enn eru örfá pláss laus í einhverjum hópum.

Höfum gaman saman í vetur,
hlakka til að hitta ykkur

21/08/2026

Langar þig að prófa hressandi vatnsleikfimi?

Í Mýrinni í Garðabæ er kennd vatnsleikfimi sem sniðin að þörfum kvenna og karla sem hafa áhuga á að hreyfa sig frísklega í góðum félagsskap.

Vatnsleikfimi er skemmtileg leið til líkamsræktar, frábær aðferð til að styrkja vöðva, bæta úthald og auka liðleika, og það kemur mörgum á óvart hvað hægt er að gera fjölbreyttar æfingar í vatninu.

Ný námsskeið hefjjast 31. ágúst. Margir hópar eru í boði og nokkur pláss laus.
Ekki hika við að senda skilaboð ef þú hefur áhuga á að vita meira.

Hlakka til að heyra frá ykkur,
Jóna íþróttakennari.
[email protected]

Vatnsleikfimin byrjar aftur 31. ágúst.Skráningin er í fullum gangi og nú ættu allir sem eru á póstlistanum að hafa fengi...
21/08/2026

Vatnsleikfimin byrjar aftur 31. ágúst.

Skráningin er í fullum gangi og nú ættu allir sem eru á póstlistanum að hafa fengið upplýsingar til sín í tölvupósti.

Samkvæmt venju eru margir hópar í boði og hægt er að velja um að vera 1x eða 2x í viku. Hægt er að velja um 4 eða 8 vikna tímabil.

Ekki hika við að hafa samband fyrir nánari upplýsingar eða skráningu,
g-jona@internet eða einkaskilaboð hér.
Hlakka til að heyra frá ykkur

18/08/2026

Góðan daginn gott fólk.
Sumri hallar og stundaskrá vetrarins verður tilbúin á allra næstu dögum.

Fljótlega verður opnað fyrir skráningu og ég hvet ykkur til að fylgjast með. Þeir sem eru á póstlistanum fá skilaboð í tölvupósti og einnig er hægt að fylgjast með hér á síðunni.

Hlakka til að byrja aftur,
kveðja, Jóna

11/06/2026

Góðan daginn gott fólk.
Þá erum við komin í sumarleyfi eftir frábæran vetur.

Bestu þakkir til ykkar fyrir jákvæðni, gleði og samvinnu, og ekki síst fyrir frábæra mætingu.
Það er ómetanlegt að hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum degi 😘

Vona að þið njótið sumarsins, sjáumst hress og kát í haust.

23/04/2026

Gleðilegt sumar kæru vinir, takk fyrir frábæran vetur.

07/04/2026

Góðan daginn gott fólk,
þá er páskaleyfi lokið og vatnsleikfimin byrjar aftur í dag.
Eru ekki allir búnir að skrá sig?

Hlakka til að hitta ykkur hress og kát.

Langar þig að prófa hressandi vatnsleikfimi?Í Mýrinni í Garðabæ er kennd á vatnsleikfimi sem er sniðin að  fólki sem hef...
01/04/2026

Langar þig að prófa hressandi vatnsleikfimi?

Í Mýrinni í Garðabæ er kennd á vatnsleikfimi sem er sniðin að fólki sem hefur áhuga á að hreyfa sig frísklega í góðum félagsskap.

Vatnsleikfimi er skemmtileg leið til líkamsræktar, frábær aðferð til að styrkja vöðva, bæta úthald og auka liðleika, og það kemur mörgum á óvart hvað hægt er að gera fjölbreyttar æfingar í vatninu.

Ný námsskeið hefjast strax eftir páskana. Margir hópar eru í boði og nokkur pláss laus.

Ekki hika við að senda skilaboð ef þú hefur áhuga á að vita meira, hægt er að senda póst á [email protected], eða senda einkaskilaboð hér á síðunni
Hlakka til að heyra frá ykkur,
Jóna íþróttakennari.

02/01/2026

Gleðilegt ár gott fólk, takk fyrir góðar stundir á liðnu ári.

Skráning á næstu námsskeið eru í fullum gangi og enn er hægt að bætast í hópinn. Stundaskráin er sú sama og áður, og hægt að velja um ótal tímasetningar.
Næsta námsskeið stendur í 5 vikur og hægt er að velja um að vera 2x í viku eða 1x í viku. Námsskeiðin byrja 7. janúar.

Ekki hika við að vera í sambandi fyrir nánari upplýsingar.
Best er að senda póst á netfangið g-jona@internet eða senda einkaskilaboð hér á síðunni.
Hlakka til að heyra í ykkur,
kv Jóna íþróttakennari.

29/12/2025

Langar þig að prófa hressandi vatnsleikfimi?
Í Mýrinni í Garðabæ er kennd á vatnsleikfimi sem er sniðin að fólki sem hefur áhuga á að hreyfa sig frísklega í góðum félagsskap.
Vatnsleikfimi er skemmtileg leið til líkamsræktar, frábær aðferð til að styrkja vöðva, bæta úthald og auka liðleika, og það kemur mörgum á óvart hvað hægt er að gera fjölbreyttar æfingar í vatninu.

Ný námsskeið hefjast 7. Janúar og skráning er hafin.
Ekki hika við að senda skilaboð ef þú hefur áhuga á að vita meira, hægt er að senda póst á [email protected], eða senda einkaskilaboð hér á síðunni
Hlakka til að heyra í ykkur,
Jóna íþróttakennari.

Address

Garðabær

Telephone

+3548940351

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mýrin vatnsleikfimi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Mýrin vatnsleikfimi:

Shortcuts

Share

Category