Skráning inná https://www.abler.io/shop/stjarnan/handbolti. Íþrótta –boltaskóli Stjörnunnar
Skólinn er ætlaður börnum 3 - 5 ára gömlum.
Í skólanum leggjum við áherslu á að börnin njóti sín og fái verkefni við hæfi. Lögð verður áhersla á alhliða líkams- og hreyfiþroska sem hæfir þessum aldri og fást börnin við verkefni sem ögra þeim á jákvæðan hátt. Bolti verður með í flestum æfingum og í hverjum tíma æfum við að sparka, kasta, grípa og drippla. Í skólanum förum við í ýmsa leiki þar sem börnin læra að fylgja fyrirmælum og vinna saman, einnig verða settar upp þrautabrautir þar sem þau æfa ýmis hopp, samhæfingu, jafnvægi, styrk, þol og ýmislegt fleira. Tekið verður mið af hreyfiþroskaprófum fyrir þennan aldur. Foreldrar taka virkan þátt í tímunum og í lok hvers tíma fá börnin hvíld og slökun og jafnvel mjúkar strokur frá mömmu/pabba �
Tímarnir verða í TM höllinni á laugardögum kl. 10:00 – 11:00 og stendur námskeiðið í 10 skipti. Leiðbeinendur:
Siggeir Magnússon íþróttakennari og Þjálfari hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar
Guðný Gunnsteinsdóttir sjúkraþjálfari
Börn 5 ára og eldri eiga rétt á
hvatapeningum frá Garðabæ. Skráning iðkenda fer fam á: https://stjarnan.is
Takmarkaður fjöldi er á hverju námskeiði.