16/06/2021
Sumarfjör - leikjanámskeið
Sumarfjör er leikjanámskeið á vegum Garðabæjar fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára. Námskeiðin eru haldin í Sjálandsskóla, Hofsstaðaskóla, Flataskóla, Urriðaholtsskóla og Álftanesskóla.
Námskeiðið er ókeypis en takmarkað pláss er í boði.
Hægt er að velja um námskeið fyrir hádegi (10:00 - 12:00) eða eftir hádegi (13:00 - 15:00).
Hvert námskeið er vikulangt, hefst á mánudegi og lýkur á föstudegi og skráningu lýkur klukkan 12:00 á föstudegi fyrir komandi vikunámskeið. Námskeiðin eru í boði frá 21. júní - 30. júlí 2021.
Upplýsingar um leikjanámskeiðið eru á vef Garðabæjar, gardabaer.is, og á fésbókarsíðu námskeiðsins Sumarfjör – Námskeið 2021 er hlekkur í skráningu á námskeiðið.
Sumarfjör er leikjanámskeið sem er haldið við grunnskóla Garðabæjar þar sem leiðbeinendur eru starfsmenn á aldrinum 18-25 ára í sumaratvinnuátaki Garðabæjar.
Skráning fyrir þessa viku er á eftirfarandi hlekk, skráning lokar sunnudaginn 20. júní kl 15:00
ATH skráning er einungis fyrir vikuna 21 júni - 26 júní. Nýr hlekkur kemur inn fyrir hverja viku.
https://www.surveymonkey.com/r/QF37PLW
Please take the survey titled "Skráning í Sumarfjör (8-12 ára) 21.06-25.06". Your feedback is important!