Sundfélag Akraness

Sundfélag Akraness Sundfélag Akraness Stofnað 1948 Sundfélag Akranes er stofnað árið 1948.

DÓMARANÁMSKEIÐ 23. september. Nú er tækifæri að komast í hóp dómara og hafa þannig besta útsýnið yfir sundlaugina. Við þ...
09/09/2026

DÓMARANÁMSKEIÐ 23. september.

Nú er tækifæri að komast í hóp dómara og hafa þannig besta útsýnið yfir sundlaugina.

Við þurfum alltaf fleiri dómara til að geta haldið öflug sundmót á Akranesi fyrir sundfólkið okkar, bæði í Bjarnalaug og á Jaðarsbökkum.

Við hvetjum alla til að skrá sig – núverandi foreldra, fyrrverandi sundmenn og alla aðra sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi sundhreyfingarinnar. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.

Við þökkum ykkur kærlega fyrir allan þann stuðning og styrki sem bárust vegna „Faxa í laug“, sem fram fór laugardaginn 5...
07/09/2026

Við þökkum ykkur kærlega fyrir allan þann stuðning og styrki sem bárust vegna „Faxa í laug“, sem fram fór laugardaginn 5. september.

Sundið stóð yfir frá kl. 09:00–19:00 og stóðu krakkarnir sig frábærlega!

Yngri krakkarnir syntu 2 × 30 mínútur án stopps og eldri krakkarnir 2 × 60 mínútur án stopps. Krakkarnir, 11 ára og eldri, syntu af miklum krafti.
Við erum ótrúlega stolt af öllum þátttakendum!

Ef einhver missti af tækifærinu til að styrkja ferðasjóð krakkanna, þá er enn hægt að leggja inn á:

Reikningur: 186-15-36770
Kennitala: 630269-4239

Kærar þakkir fyrir stuðninginn – hann skiptir krakkana miklu máli!

05/09/2026

Áheitasund Sundfélags Akraness hófst í dag! 🏊‍♀️

Í dag hófst áheitasund Sundfélags Akraness þar sem safnað er fyrir keppnis- og æfingaferð erlendis.
Yngri krakkarnir byrjuðu að synda kl. 09:00 í morgun og hafa staðið sig frábærlega! 💪

Stefnt er að því að synda samtals 81 km í dag! 🏊‍♂️🏊‍♀️

Hægt er að styrkja ferðasjóð krakkanna með frjálsum framlögum:

Kennitala: 630269-4239
Reikningsnúmer: 0186-15-376670

Öll framlög, stór sem smá, skipta máli og hjálpa krökkunum að komast nær markmiðinu.

Áfram Sundfélag Akraness!

Sundnámskeið 0–5 ára og sundæfingar fyrir 1.–2. bekk Það eru biðlistar hjá okkur bæði á sundnámskeiðum fyrir 0–5 ára og ...
31/08/2026

Sundnámskeið 0–5 ára og sundæfingar fyrir 1.–2. bekk

Það eru biðlistar hjá okkur bæði á sundnámskeiðum fyrir 0–5 ára og á sundæfingum fyrir 1.–2. bekk.
Okkur langar því að gefa ykkur smá stöðuuppfærslu.

Sundnámskeið 0–5 ára :
við erum búin að bæta við eins mörgum plássum og við getum í núverandi námskeið.
Ný námskeið hefjast eftir vetrarfrí skólanna og opnað verður fyrir skráningar 8. september.

Sundæfingar – 1. og 2. bekkur : Nokkur laus pláss eru enn í 1. bekk – hópi 2 á mánudögum/miðvikudögum.
Fullt er hins vegar í hópana fyrir 1. bekk og 2. bekk á þriðjudögum og fimmtudögum.

Við erum að skoða hvort við getum bætt við fleiri hópum þessa daga.

Því hvetjum við ykkur eindregið til að skrá ykkur á biðlista í Abler. Þannig getum við haft samband við ykkur um leið og það liggur fyrir hvort við getum bætt við fleiri plássum.

Skráning og biðlistar: abler.io/shop/iasund

Áheitasund Nú eru sundkrakkarnir okkar að safna áheitum fyrir árlega áheitasundið. Söfnunin rennur í ferðasjóð krakkanna...
28/08/2026

Áheitasund

Nú eru sundkrakkarnir okkar að safna áheitum fyrir árlega áheitasundið. Söfnunin rennur í ferðasjóð krakkanna vegna keppnis- og æfingaferða erlendis.

Krakkarnir ganga þessa dagana í hús og safna styrkjum og við vonum að tekið verði vel á móti þessum duglegu ungu sundmönnum.

Áheitasundið fer fram 5. september í Jaðarsbakkalaug.
Sundfélagið verður með krakka í lauginni allan daginn, frá kl. 09:00 til 19:00, og markmiðið er að hópurinn syndi samtals 80 km, sem jafngildir fjórum Faxaflóasundum!

Ef þið hafið ekki fengið heimsókn en viljið styrkja krakkana er hægt að leggja inn á:

Reikningur: 186-15-376670
Kennitala: 630269-4239

Búið að opna fyrir skráningar á skriðsundsnámskeið ogGarpaæfingar.Garpaæfingar hefjast mánudaginn 31. ágústSkriðsundsnám...
27/08/2026

Búið að opna fyrir skráningar á skriðsundsnámskeið ogGarpaæfingar.

Garpaæfingar hefjast mánudaginn 31. ágúst

Skriðsundsnámskeið hefst 15. september

Skráningar og nánari upplýsningar
abler.io/shop/iasund

Við erum búin að opna fyrir skráningu á fjölbreytt námskeið fyrir börn:💦 Námskeið fyrir vatnhræðslu – á þriðjudögum🌊 Sun...
23/08/2026

Við erum búin að opna fyrir skráningu á fjölbreytt námskeið fyrir börn:

💦 Námskeið fyrir vatnhræðslu – á þriðjudögum
🌊 Sundfjör – á föstudögum
🐊 Krókódílahópur – fyrir börn sem þurfa aukinn stuðning í sundi.

Nánari upplýsningar og skráning á abler.io/shop/iasund
eða [email protected]

Skráningar í fullum gangi – Sundskólinn (0–5 ára)Við erum búin að bæta við fleiri Krossfiskum – Stig 1 hópum og eru nú a...
21/08/2026

Skráningar í fullum gangi – Sundskólinn (0–5 ára)

Við erum búin að bæta við fleiri Krossfiskum – Stig 1 hópum og eru nú aðeins örfá laus pláss eftir

Skráningar ganga mjög vel og nú þegar er kominn biðlisti í fleiri hópa.

Staðan 21. ágúst:
Ungbarnasund
• Byrjendur – biðlisti
• 5–12 mánaða – laus pláss
• 12–24 mánaða – laus pláss

Fjörfiskar - Laus pláss

Krossfiskar
• Stig 1 – Laus pláss - Aukahópar
• Stig 2 – Biðlist
• Stig 3 – Laus pláss
• Stig 4 – Laus pláss

Skráning fer fram á:
www.abler.io/shop/iasund
Upplýsningar um sundæfingar á www.iasund.is

Skráningar í fullum gangi – Sundskólinn (0–5 ára)Skráningar ganga mjög vel og nú þegar er kominn biðlisti í fleiri hópa....
17/08/2026

Skráningar í fullum gangi – Sundskólinn (0–5 ára)

Skráningar ganga mjög vel og nú þegar er kominn biðlisti í fleiri hópa.

Staðan 17. ágúst:
Ungbarnasund
• Byrjendur – biðlisti
• 5–12 mánaða – laus pláss
• 12–24 mánaða – laus pláss

Fjörfiskar - Laus pláss

• Stig 1 – Biðlist - Auka hópar í vinnslu
• Stig 2 – Biðlist
• Stig 3 – Laus pláss
• Stig 4 – Laus pláss

Skráning fer fram á:
www.abler.io/shop/iasund

Upplýsningar um sundæfingar á www.iasund.is

Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50! 🇮🇸Íslenska karlasveitin í 4x100m fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í Parí...
16/08/2026

Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50! 🇮🇸

Íslenska karlasveitin í 4x100m fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París í dag!

Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius syntu á 3:42.35 og bættu gamla metið um 0.79 sekúndur.

Þar með hefur íslenska liðið lokið keppni á EM50 í París.

Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50! 🇮🇸

Íslenska karlasveitin í 4x100m fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París í dag!

Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius syntu á 3:42.35 og bættu gamla metið um 0.79 sekúndur.

Guðmundur bætti jafnframt sitt persónulega met í 100m baksundi þegar hann synti fyrsta legginn á 55.94.

„Gaman að klára þetta með stæl,“ sagði Símon eftir sundið.

Þar með hefur íslenska liðið lokið keppni á EM50 í París.

Address

Akranes
300

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sundfélag Akraness posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share