11/07/2023
Klettaklifur Festival // Climbing Festival
Staðsetning: Norðurfjörður, Tjaldsvæði Urðartindur
Dags. 21. - 23. júlí
Velkomin á fyrstu klettaklifurhátíð ÍSALP og Klifurhússins í Norðurfirði!
Klifrarar á öllum getustigum eru velkomnir!
Ýmsir viðburðir verða á dagskrá; Ekki missa af!
- leiðsluklifurkeppni
- leiðsluklifurkennsla fyrir byrjendur sem eru að fikra sig út fyrir klifurhúsið
- dótaklifurkennsla
- og auðvitað heimskuleikar/liðakeppni á föstudeginum.
En umfram allt er ætlunin að klifra og njóta á fögrum stað í góðum félagskap!
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í klifurkennslustund og læra meira um sport og dótaklifur, vinsamlega skráðu þig hér: https://forms.gle/qJu9nrebkPma4wYC6
Dagskrá hátíðarinnar:
Föstudagur 21. júlí:
19:00 -- 20:00 Hóphristingur: Klifur heimskuleikar (VERÐLAUN í boði)
21:00 -- Leiðsluklifurkeppnisreglur kynntar
Laugardagur 22. júlí: Veldu á milli þessara viðburða eða klifraðu bara eins og þig lystir!
5:00 - 17:00 -- Klifurkeppni -- Nánari upplýsingar kynntar 21. júlí
9:00 - 12:00 -- Kennsla: Kynning á leiðsluklifri fyrir byrjendur
9:00 - 12:00 -- Kennsla: Kynning á dótaklifri fyrir byrjendur
18:00 - 19:00 -- Kvöldverður, við komum með kolin og þið með grillmatinn!
19:30 - ? -- Varðeldur á ströndinni, úrslit í klifurkeppni kynnt, búningakeppni!
Sunnudagur 23. júlí:
Klifra og fara heim!
Vinsamlegast skráðu þig hér ef þú hyggst taka þátt í viðburðum á Klettaklifurfestivali í Norðurfirði. Það er til þess að hægt sé að gera ráð fyrir leiðbeinendafjölda o.s.frv. Öll velkomin!