26/08/2026
Barnanámskeið í brasilísku jiu jitsu hefst mánudaginn 7. september.
Jiu jitsu er íþrótt þar sem börn læra að treysta sjálfum sér. Þau læra að standa á sínu, að leysa vandamál með höfðinu frekar en kraftinum og að bera virðingu fyrir hvert öðru.
Þetta hentar líka börnum sem hafa ekki fundið sig í boltaíþróttum. Hér þarf enginn að vera bestur í liðinu, hver og einn vinnur á sínum hraða.
• Mánudaga og miðvikudaga
• 7-10 ára kl. 16:05 · 11-14 ára kl. 15:10
• 12 vikur, 24 tímar
• 54.990 kr.
• Frístundastyrkur ✅
Skráning og nánari upplýsingar:
www.brimirbjj.is/kids-jiujitsu