19/06/2026
Norðurálsmótið 2026 fer af stað í dag! ⚽💛🖤
Í dag hefst Norðurálsmótið á Akranesi í 41. sinn og framundan er sannkölluð knattspyrnuhátíð dagana 19.–21. júní. Mótið verður formlega sett í dag, föstudaginn 19. júní kl. 11:00, með litríkri og skemmtilegri skrúðgöngu frá Stillholti að keppnissvæðinu við Jaðarsbakka þar sem setningarathöfnin fer fram.
Yfir helgina munu vel á annað þúsund knattspyrnuiðkenda, drengir og stúlkur, stíga sín fyrstu skref í boltanum, eignast nýja vini, skapa ógleymanlegar minningar og upplifa þá einstöku stemningu sem Norðurálsmótið er þekkt fyrir. Fyrir marga þátttakendur er þetta eitt af hápunktum sumarsins.
Von er á fjölmörgum gestum víðs vegar að af landinu og veðurspáin lofar góðu. Það stefnir því allt í frábæra helgi þar sem gleði, samvera og knattspyrna verða í forgrunni.
Við hvetjum alla Skagamenn til að taka vel á móti gestum okkar, sýna okkar bestu hliðar og leggja sitt af mörkum til að gera helgina eftirminnilega fyrir börnin, fjölskyldurnar og alla þá sem heimsækja Akranes. Saman sköpum við þá einstöku stemningu sem hefur einkennt Norðurálsmótið í meira en fjóra áratugi.
Sýnt verður frá völdum leikjum á ÍATV vellinum alla helgina og hægt verður að fylgjast með útsendingum á YouTube-rás ÍATV.
Við hlökkum til að sjá bæinn iðandi af lífi næstu daga.
Velkomin á Norðurálsmótið 2026!