10/11/2026
Sunddeild Aftureldingar fagnar 40 ára afmæli!
Í dag, 10. nóvember, eru 40 ár liðin frá því að Sunddeild Aftureldingar var endurreist.
Þessum merku tímamótum var fagnað síðastliðinn laugardag með hátíðardagskrá í Lágafellsskóla og skemmtilegu boðssundi í Lágafellslaug. Þar komu saman iðkendur ungir sem aldnir, þjálfarar, foreldrar og aðrir velunnarar deildarinnar til að fagna þessum áfanga.
Við hátíðina voru Alfa Regína Jóhannsdóttir, fyrsti formaður sunddeildarinnar, og Halldór Jökull Ragnarsson, fyrrverandi formaður og aðalþjálfari, heiðruð fyrir ómetanlegt framlag sitt til deildarinnar.
Á þessum 40 árum hefur sunddeildin vaxið og dafnað, alið af sér öflugt sundfólk og skapað ótal dýrmætar minningar og vináttubönd. Starfið hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og iðkendum fjölgað jafnt og þétt.
Árangur deildarinnar mælist þó ekki eingöngu í verðlaunum og metum heldur einnig í gleðinni, samheldninni og félagsskapnum sem hefur ávallt verið hjartað í starfinu.
Við viljum þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum í gegnum árin – iðkendum, þjálfurum, stjórnarfólki, foreldrum og sjálfboðaliðum. Án ykkar væri deildin ekki þar sem hún er í dag!
Til hamingju með 40 árin, kæra sundfjölskylda!
Við hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og enn fleiri góðra stunda saman!