Fjölnir Listskautar

Fjölnir Listskautar Opinber Facebook síða Listskautadeildar Fjölnis

10/05/2026

Opnunaratriði Circus vorsýning 2026 🎪

16/04/2026

Aðalfundur Fjölnis verður haldinn 28 apríl n.k. í félagsaðstöðu félagsins í Egilshöll og hefst kl. 17.30.

Við hvetjum allt Fjölnisfólk og þá sem hafa áhuga á starfi félagsins til að mæta á fundinn.

Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/04/16/adalfundur-fjolnis-5/

We are looking for a coach to add to our team! Please contact listyfirthjalfari@fjolnir.is
14/04/2026

We are looking for a coach to add to our team! Please contact [email protected]

29/03/2026
Nú er hægt að kaupa klippikort 5 skipti væru þá á 7.500kr10 skipti væru á 15.000krSkautahlaup hjá FjölniUngmennafélagið ...
05/02/2026

Nú er hægt að kaupa klippikort
5 skipti væru þá á 7.500kr
10 skipti væru á 15.000kr

Skautahlaup hjá Fjölni

Ungmennafélagið Fjölnir býður upp á skemmtilegar og krefjandi skautahlaups æfingar í Egilshöll, Grafarvogi. Hvort sem þú ert algjör byrjandi eða með reynslu, þá eru þessar æfingar fyrir þig! Þetta er tilvalinn tími til að byrja á skautum eða skerpa á tækni og bæta snerpu og hraða!

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Æfingarnar eru opnar öllum, hvort sem þú ert algjör nýliði að prófa í fyrsta skipti eða hefur áratuga reynslu. Við leggjum sérstaka áherslu á að kenna byrjendum alla þá tækni sem þarf til að læra á skauta og ná tökum á greininni. Engin fyrri reynsla þarf til að byrja og hægt er að fá lánaða skauta á staðnum.

Hvað leggjum við áherslu á?

Áhersla verður lögð á snerpu, hraða og tækni. Byrjaðu daginn á skautum! Frábær leið til að fá góða hreyfingu, bæta þrek og byrja daginn á jákvæðum nótum.

Æfingar og tímasetning

Hvenær: Föstudaga kl. 06:20 - 07:10
Staðsetning: Skautasvellinu í Egilshöll
Þjálfari: Andri Freyr Magnússon

Andri Freyr Magnússon er reyndur þjálfari með yfir tveggja áratuga reynslu af þjálfun í íshokkí og listskautum. Hann byrjaði á skautum fjögurra ára gamall á Akureyri og varð margfaldur Íslandsmeistari í íshokkí með Skautafélagi Akureyrar, er með alþjóðleg dómararéttindi IIHF sem aðaldómari, lokið fjölda þjálfaranámskeiða, þar á meðal frá ÍSÍ árið 2002 og aftur árið 2021, er vottaður “Learn to Play” þjálfari frá Alþjóða Íshokkísambandið 2015, hóf störf sem þjálfari með Öspinni árið 2022.
Hann þjálfar í dag skauta og íshokkí hjá öllum skautafélögum í Reykjavík og býr yfir mikilli þekkingu og reynslu til að aðstoða þig til að ná framförum á skautum og skautaíþróttinni.

Öryggisbúnaður og klæðnaður

HJÁLMUR ER SKYLDA! Þú getur komið með þinn eigin hjálm eða fengið lánaðan í höllinni (reiðhjólahjálmar duga vel). Komdu með skauta eða fáðu lánaða. Það má vera á hokkískautum, listskautum og hlaupaskautum.
Við mælum með léttum teygjanlegum klæðnaði.

Address

Egilshöll, Fossaleyni 1
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 21:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00
Saturday 09:00 - 13:00

Telephone

+3545782700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjölnir Listskautar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fjölnir Listskautar:

Share

Category