Skriðsundsnámskeið Dodda

Skriðsundsnámskeið Dodda Skriðsundsnámskeið

Hefur þig alltaf langað til að læra skriðsund? Skriðsundsnámskeið þar sem markmiðið er að þú náir að synda viðstöðulaust þægilegt sund.

Ertu kannski einn af þeim sem virðast sökkva í hvert skipti sem þeir reyna að synda? Átt jafnvel í erfiðleikum með að synda eina ferð án þess að stoppa?

Þá hef ég kannski lausn fyrir þig. Lögð er áhersla á flot og að sundmaðurinn komist í gegnum vatnið með eins lítilli mótstöðu og hægt er, þannig að sem mest af orkunni fari í að synda áfram en ekki í að halda sér á floti. Staðreyndir:

·

Líkaminn getur flotið án mikilla erfiðleika.
· Flestir þeir sem ná góðu valdi á skriðsundi eru líka sammála því að skriðsund er þægilegasta og léttasta sundaðferðin ef markmiðið er að synda lengri vegalengdir.
· Skriðsund reynir lítið á bakið eða hálsinn og því betri sundaðferð en t.d. bringusund fyrir bakveika
· Á tiltölulega stuttum tíma er hægt að bæta tæknina gríðarlega mikið, jafnvel þó að getan sé lítil í byrjun. Vandamálin hjá flestum eru tvíþætt:
1. Lega líkamans í vatni er ekki rétt og því verður erfitt að ná að fljóta. Með því að bæta leguna þarf ekki lengur að eyða orku í það að halda sér á floti. Líkaminn sér um það sjálfur.
2. Mótstaða líkamans er of mikil. Með því að breyta sundtökunum minnkar mótstaðan og því fer líkaminn hraðar í gegnum vatnið án þess að eyða meiri orku. Skriðsundsnámskeiðin verða haldin í innilauginni í Lágafellslaug í vetur og verða á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 20.00-21.00. Verð:19,000 kr. Athugið að aðgangseyrir í Lágafellslaug er innifalinn. Skráning og upplýsingar eru á [email protected] eða í síma 898-6429. Kennari er Þórður Ármannsson. Ég er íþróttafræðingur og fyrrverandi afrekssundmaður. Ég hef mjög mikla reynslu sem sundkennari þar sem þar sem mestur hluti minnar kennslu frá upphafi hefur verið í sundi en ég hef starfað sem íþróttakennari síðan 2001.

20/04/2026

Skriðsundsnámskeiðið hefst á morgun! Bara 4 sæti laus 🙂💪

Seinasta skriðsundsnámskeiðið fyrir sumarfrí hefst 21.apríl! frábært tækifæri fyrir þá sem vilja annað hvort bæta tæknin...
10/04/2026

Seinasta skriðsundsnámskeiðið fyrir sumarfrí hefst 21.apríl! frábært tækifæri fyrir þá sem vilja annað hvort bæta tæknina fyrir sumarið eða vilja bara líta vel út í sumarfríinu :)

Námskeiðið er frábær leið til að læra skriðsund, hvort sem þú ert algjör byrjandi eða kannt eitthvað fyrir þér. Ég byggi það á aðferð sem hefur verið í þróun í um 35 ár og gerir æfingaferlið mun einfaldara og skilvirkara.

Að ná afslöppun í sundinu og njóta þess að synda í stað þess að sundið sé einhver kvöð eða eitthvað nærri óyfirstíganlegt er markmiðið mitt með þessu námskeiði.
Svo er auðvitað frábært að hoppa í pottinn eða í infra rauðu gufuna eftir tímann og slaka á í góðum hópi.

Námskeiðið er í Lágafellslaug og er á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl 20-21 og er 8 skipti samtals.

Námskeiðið kostar 27.000 kr. og að sjálfsögðu er aðgangur að lauginni innifalinn í verðinu.

Hægt er að skrá sig eða fá frekari upplýsingar á [email protected] eða með því að senda skilaboð í gegnum Facebook...

Address

Mosfellsbær

Telephone

+3548986429

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skriðsundsnámskeið Dodda posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Skriðsundsnámskeið Dodda:

Share

Category