Fimleikadeild KA

Fimleikadeild KA Gymnastic club in Akureyri, Iceland. Með tilkomu nýrrar aðstöðu til fimleikaiðkunnar tvöfaldaðist iðkendafjöldi félagsins á skömmum tíma og fór í 800 iðkendur.

Fimleikafélag Akureyrar var stofnað árið 2004, undanfari félagsins var Fimleikaráð Akureyrar. í desember 2024 sameinaðist félagið KA (Fimleikadeild KA). Fim.KA hefur aðsetur í íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla, en þar er að finna sérútbúinn fimleikasal sem tekin var í notkun haustið 2010. Áður hafði félagið æfingaaðstöðu í Íþróttahúsi Glerárskóla. Haustið 2024 voru rúmlega 400 iðkendur skráðir hjá deildinni. Fim.KA bíður upp á fimleikaþjálfun fyrir börn og fullorðna frá 3 ára aldri. Fimleikar eru ein besta íþróttagreinin fyrir alhliða þjálfun barna og unglinga enda reynir þar á kraft, fimi, tækni, jafvægi og samhæfingu. Í upphafi er lögð mikil áhersla á að ná grunnæfingunum eins og handstöðu, handahlaupi, kollhnýsum og fleiru sem eru undirstaðan fyrir flóknari æfingar. Börn á ynrgra grunnskólastigi byrja í G -hópumþar sem þau æfa grunnæfingar bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum. Þegar börn hafa náð tilskilinni færni er þeim boðið að flytja sig yfir í hópa sem æfa áhalda- eða hópfimleika og er þá tekið tillit til þess hvar styrkur þeirra liggur. Þjálfarar félagsins sjá um þetta val og reyna eftir fremsta megni að beina krökkunum á þá braut sem þeir telja að þau geta náð langt í. Fim.KAhefur átt og á í dag sterka keppnishópa í báðum greinum sem sýnt hafa frábæran árangur á mótum.

Átt þú barn sem elskar trampólín ?Þá er þetta eitthvað fyrir það!Trampólín æfingar - skráning er opin á abler.https://ww...
27/08/2026

Átt þú barn sem elskar trampólín ?
Þá er þetta eitthvað fyrir það!
Trampólín æfingar - skráning er opin á abler.
https://www.abler.io/shop/ka/fimleikar

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá skrifstofustjóra deildarinnar, [email protected]

Finndu námskeið í vefverslun KA. Keyrt áfram af Abler

Í byrjun ágúst hélt hópur af fimleikastelpum (úr H1, H2 og H3) úr Fimleikadeild KA ásamt þjálfurum til Ollerup í Danmörk...
14/08/2026

Í byrjun ágúst hélt hópur af fimleikastelpum (úr H1, H2 og H3) úr Fimleikadeild KA ásamt þjálfurum til Ollerup í Danmörku þar sem þær fengu einstakt tækifæri til að æfa, læra og upplifa alvöru fimleikaævintýri.

Ollerup er einn þekktasti staður í heimi þegar kemur að fimleikum og ferðin gaf stelpunum tækifæri til að æfa við frábærar aðstæður, læra nýja hluti og kynnast öðrum fimleikastelpum. Dagar voru þéttir af æfingum, áskorunum, hlátri og samveru – og urðu til ótal góðar minningar á leiðinni.

Stelpurnar fengu að kynnast nýju æfingaumhverfi og upplifa þann sterka samfélagsanda sem einkennir fimleikana.

Höfum opnað fyrir skráningu í krílahópana okkar vinsælu !Skráning fer fram í gegnum abler.https://www.abler.io/shop/ka/f...
11/08/2026

Höfum opnað fyrir skráningu í krílahópana okkar vinsælu !
Skráning fer fram í gegnum abler.
https://www.abler.io/shop/ka/fimleikar

KA býður upp á fjölbreyttar æfingar fyrir hressa krakka í fótbolta, handbolta, blaki, júdó, lyftingum og fimleikum. Það er alltaf í boði að koma og prófa og hvetjum við ykkur eindregið til að prófa sem flestar greinar hjá KA.

Við leitum af hópfimleikaþjálfurum til þess að bætast við frábæra þjálfara teymið okkar !
05/06/2026

Við leitum af hópfimleikaþjálfurum til þess að bætast við frábæra þjálfara teymið okkar !

Þann 25. apríl síðastliðinn fóru elstu iðkendur okkar á Vormót eldri flokka.Alls kepptu fyrir hönd KA fjögur lið í þremu...
04/05/2026

Þann 25. apríl síðastliðinn fóru elstu iðkendur okkar á Vormót eldri flokka.

Alls kepptu fyrir hönd KA fjögur lið í þremur flokkum.

Bæði lið í 1.flokki/meistaraflokk (H1) komust á verðlaunapall í stökkfimi; KA gular enduðu í 2. sæti og KA bláar í 3. sæti.

2. flokkur (H2) hafnaði í 4. sæti og 3. flokkur (H3) í 5. sæti.

Frammistaða liðanna var félaginu til mikils sóma og sýndu iðkendurnir bæði mikinn metnað, góða liðsheild og baráttuvilja á mótinu. Vegna mikilla breytinga hjá félaginu á undanförnum misserum viljum við sérstaklega hrósa iðkendum og þjálfurum deildarinnar, ásamt þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við að byggja upp öflugt starf á ný.

Sjá : https://www.ka.is/fimleikar/frettir/frabaert-arangur-a-vormoti-eldri-flokka

Yngri flokkarnir okkar – 5. flokkur, KKY og 4. flokkur – sóttu Fimleikafélagið Gerplu heim um helgina. Þar sem Iceland C...
04/05/2026

Yngri flokkarnir okkar – 5. flokkur, KKY og 4. flokkur – sóttu Fimleikafélagið Gerplu heim um helgina.
Þar sem Iceland Classic í hópfimleikum var haldið í fyrsta sinn 🤸‍♀️

Helgin einkenndist af frábærum framförum, mikilli seiglu og sterkri liðsheild 💙 Iðkendur hafa tekist á við miklar breytingar undanfarið og það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu vel þau hafa nýtt tækifærið til að vaxa, bæði sem einstaklingar og lið.

💙 4. flokkur Bláar – unnu gull í fjölþraut, ásamt gullverðlaunum á trampólíni og dýnu 🥇
💛 4. flokkur Gular – tryggði sér 4 sætið á mótinu. Stelpurnar stóðu sig ótrúlega vel, sýndu mikinn styrk og samheldni og eiga fullt hrós skilið fyrir frammistöðuna.
💙 5. flokkur – enduðu í 3. sæti í heildina og fengu verðlaun fyrir sitt besta áhald, trampólín 🥉
💙 KKY – hafnaði í 3. sæti á gólfi, trampólíni og dýnu 🥉

Við erum gríðarlega stolt af öllum iðkendunum okkar og þjálfurum – vinnusemi, gleði og liðsheild skín í gegn 💙💛

Okkur vantar umsjónarmann til að hafa yfirumsjón yfir FIM-leikjaskólanum okkar vinsæla í sumar !
14/04/2026

Okkur vantar umsjónarmann til að hafa yfirumsjón yfir FIM-leikjaskólanum okkar vinsæla í sumar !

Fimleikadeild KA auglýsir eftir umsjónarmanni til að hafa yfirumsjón yfir fimleikjaskólanum okkar vinsæla sem haldin er í júní fyrir krakka á aldrinum 6 -

4 flokkur tók þátt á Huppumóti í dag 🐄Besta áhaldKA gular 💛 - dýna.KA bláar 💙 - dans.
15/03/2026

4 flokkur tók þátt á Huppumóti í dag 🐄

Besta áhald
KA gular 💛 - dýna.
KA bláar 💙 - dans.

Langar þig að hreyfa þig á öðruvísi og skemmtilegan hátt?Við erum að prófa trampólínhóp fyrir fullorðna – engin reynsla ...
09/02/2026

Langar þig að hreyfa þig á öðruvísi og skemmtilegan hátt?
Við erum að prófa trampólínhóp fyrir fullorðna – engin reynsla nauðsynleg, bara vilji til að prófa eitthvað nýtt 💪👇

Fyrir hvern?
• Fyrir fullorðna
• Hvort sem þú hefur aldrei æft fimleika eða langar bara að læra eitthvað nýtt.
• Fyrir þau sem vilja hreyfa sig, styrkjast og byggja upp sjálfstraust, og síðast en ekki síst, skáka börnunum sínum á trampólíninu 😊
Æfingatímar
• Miðvikudagar kl. 17:30 – 19:00
Staðsetning
• Fimleikahúsið við Giljaskóla
Hvað er gert á æfingum?
• Grunn- og framhaldsæfingar á trampólíni
• Jafnvægi, styrkur og líkamsvitund
• Öryggi, gleði og áskoranir við hæfi hvers og eins
• Skemmtileg og uppbyggileg þjálfun í góðum hópi
• Allar æfingar eru einstaklingsmiðaðar

Komdu og prófaðu án skuldbindingar 11. febrúar!
Allir velkomnir – mæta í þægilegum aðsniðnum íþróttafötum án rennilása og vera með íþróttasokka með sér og vera með bros á vör!

Frekari upplýsingar: á https://www.ka.is/fimleikar/frettir/nyjir-hopar-fyrir-trampolin-unnendur eða [email protected]

Address

Akureyri

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fimleikadeild KA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fimleikadeild KA:

Shortcuts

Share

Category