Muay Thai Samband Íslands

Muay Thai Samband Íslands MuayThai Samband Íslands

Muaythai er ekki bara einn bardagastíll — innan íþróttarinnar eru mismunandi leiðir til að berjast og eru stílarnir betu...
07/05/2026

Muaythai er ekki bara einn bardagastíll — innan íþróttarinnar eru mismunandi leiðir til að berjast og eru stílarnir betur þekktir sem:

• Muay Femur:
Mjög tæknilegur, greindur og fínlegur stíll sem leggur áherslu á bardagagreind, nákvæmni og vel tímasettar skyndisóknir frekar en hráan kraft.

• Muay Bouk:
Árásargjarn stíll sem setur stöðuga pressu á andstæðinginn með óþreytandi framhreyfingu og löngum árásarlotum.

• Muay Khao:
Einkennist af stöðugri pressu fram á við, sterkum yfirráðum í clinch-inu og öflugum hnéhöggum á líkamann.

• Muay Mat:
Stíll sem byggir á þungum höggum, árásargjarnri frampressu, lágum spörkum og leitinni að rothögginu.

Hver stíll hefur sína styrkleika, taktík og sérstöðu inni í hringnum og misjafnt hvaða stíll henti hverjum.

Hvaða bardagastíl lýst þér best á?

🚨 Ný dagsetning 27. júní 🚨Jonathan Haggerty seminarið verður fært á nýja dagsetningu vegna breyttum aðstæðna hjá honum.E...
05/05/2026

🚨 Ný dagsetning 27. júní 🚨

Jonathan Haggerty seminarið verður fært á nýja dagsetningu vegna breyttum aðstæðna hjá honum.

Enþá örfá pláss eftir!

➡️ Skráning & nánari upplýsingar inná: abler.io/shop/imperium

🚨Muaythai Samband Íslands bíður upp á Seminar með heimsmeistaranum Jonathan Haggerty 13. júní!🚨Einstakt tækifæri til að ...
03/05/2026

🚨Muaythai Samband Íslands bíður upp á Seminar með heimsmeistaranum Jonathan Haggerty 13. júní!🚨

Einstakt tækifæri til að læra af atvinnumanni á hæsta stigi og ríkjandi heimsmeistara í

➡️ Tryggu þér sæti núna og skráðu þig inn á: abler.io/shop/imperium

Ath! Takmarkað pláss.

Í dag fór fram fyrsta dómaranámskeiðið á vegum sambandsins, sem markar mikilvægt skref í uppbyggingu íþróttarinnar hér á...
25/04/2026

Í dag fór fram fyrsta dómaranámskeiðið á vegum sambandsins, sem markar mikilvægt skref í uppbyggingu íþróttarinnar hér á landi.

Fyrri hluti námskeiðsins fór fram í Smárabíó, þar sem farið var yfir bóklega hlutann. Að þeim hluta loknum tók við verklegi hluti námskeiðsins, þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að spreyta sig í dómgæslu á sparrmóti sem fram fór í höfuðstöðvum VBC.

Við viljum færa Fredrik Johnson frá (sænska muaythai sambandinu) kærar þakkir fyrir að koma til landsins og halda námskeiðið. Einnig þökkum við keppendum sparrmótsins sem og öllum þeim sem mættu og studdu við viðburðinn.

Hefur þú áhuga á að gerast Muaythai dómari? MTSÍ heldur dómaranámskeið þann 25. apríl næst komandi og leitar af einstakl...
03/04/2026

Hefur þú áhuga á að gerast Muaythai dómari?

MTSÍ heldur dómaranámskeið þann 25. apríl næst komandi og leitar af einstaklingum sem hafa áhuga á að verða með fyrstu Muaythai dómurum landsins.

Án dómara er ekki hægt að halda keppnir og því mikilvægt skref í uppbyggingu íþróttarinnar að fá inn áhugasamt fólk frá öllum félögum til að dómgæsla verði sem best.

Námskeiðið er kennt af Fredrik Johnson sem er með yfir 40ára reynslu af Muaythai og fengið margar viðurkenningar fyrir störf sín í þágu íþróttarinar og þar á meðal valinn besti dómarinn á heimsmeistaramóti IFMA árið 2025.

Einnig hvetjum við keppendur sem vilja auka þekkingu sína að skrá sig.

➡️ Skráning & nánari upplýsingar: https://www.abler.io/shop/imperium?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTUyNzU=

Sögu Muay Thai má rekja aftur til Sukhothai-tímabilsins í Tælandi um 13. öld. Samkvæmt tælenskri sögu varð fyrsti her la...
31/03/2026

Sögu Muay Thai má rekja aftur til Sukhothai-tímabilsins í Tælandi um 13. öld. Samkvæmt tælenskri sögu varð fyrsti her landsins til vegna þörfar á að verja konungsríkið og hermönnum var kennt bæði vopnað og óvopnað bardagaform.

Með tímanum þróaðist þessi bardagalist og varð að Muay Boran og síðar Muay Thai eins og við þekkjum það í dag.

Vegna stríða við nágrannaríki og ættbálka í gegnum aldirnar varð Muay Thai hluti af lífsstíl fólks í Siam (gamla nafnið á Tælandi).

Ein frægasta sagan tengist hinum mikla Nai Khanom Tom á tímum Ayutthaya-ríkisins. Sagan segir frá því hvernig hann sigraði 9 burmeska bardagamenn, einn á fætur öðrum, á meðan hann var í haldi eftir að ríki Siam var hernumið.

Þessi sögulegi atburður (að hluta til goðsagnakenndur) er í dag haldinn hátíðlegur sem Muay Thai dagurinn, sem er haldinn ár hvert 17. mars.

Á tímum Rattanakosin-konungsríkisins (frá 18. öld fram á byrjun 20. aldar) varð Muay Thai formlega að þjóðaríþrótt, þar sem reglur og keppnisfyrirkomulag voru tekin upp.

Muay Thai hefur þróast mikið í gegnum árin, sérstaklega frá tímum fyrri heimsstyrjaldar, og er í dag bardagaíþrótt sem er elskuð og stunduð um allan heim.

Nútíma Muay Thai inniheldur þætti úr hefðbundnu boxi, eins og:
• Notkun á bólstruðum boxhönskum
• 3–5 lotur með tímatakmörkun
• Skilgreindar reglur
• Keppni fer fram í hring (ferhyrndum palli)

Muay Thai sækir margar sínar aðferðir og tækni í eldri bardagalist sem kallast Muay Boran, sem var upphaflega þróuð fyrir handalögmál í stríði.

Eftir því sem íþróttin þróaðist hafa hættulegar aðferðir úr Muay Boran, sem geta verið lífshættulegar, verið bannaðar í Muay Thai — til dæmis högg á liði eða aftan á höfuð.

Auk hefðbundinna hnefahöggva úr vestrænu boxi (eins og jabs, crosses, hooks og uppercuts), eru einnig notuð:
- Spörk
- Olnbogar
- Hné

Einnig eru clinching (standandi glíma), fellingar og köst notuð á taktískan hátt, sem gerir Muay Thai að mjög fjölbreyttri bardagalist.

Vegna þess að íþróttin notar 8 snertipunkta líkamans, er hún talin ein af áhrifaríkustu standandi bardagaíþróttum í heimi og er mikið notuð af MMA keppendum.

Ljósmyndir frá  seminar haldið af MTSÍ &  📸  Styrktaraðilar:
29/03/2026

Ljósmyndir frá seminar haldið af MTSÍ &

📸

Styrktaraðilar:

Sparr Mót MTSÍ verður haldið 25. apríl sem seinni hluti dómaranámskeiðsins.➡️ Skráning & nánari upplýsingar inná: abler....
24/03/2026

Sparr Mót MTSÍ verður haldið 25. apríl sem seinni hluti dómaranámskeiðsins.

➡️ Skráning & nánari upplýsingar inná: abler.io/shop/imperium

ที่อยู่

Amphoe Koh Sa-mui
84320

เว็บไซต์

แจ้งเตือน

รับทราบข่าวสารและโปรโมชั่นของ Muay Thai Samband Íslandsผ่านทางอีเมล์ของคุณ เราจะเก็บข้อมูลของคุณเป็นความลับ คุณสามารถกดยกเลิกการติดตามได้ตลอดเวลา

แชร์

ประเภท