Vestmannaeyjahlaupið

Vestmannaeyjahlaupið Vestmannaeyjahlaupið 2020 verður laugardaginn 5.september

16/09/2025

Vestmannaeyjahlaupið fór fram í fimmtánda árið í röð laugardaginn 6. september. Alls tóku 128 hlauparar þátt og er sextíu og átta ára aldursmunur á yngsta og elsta þátttakenda. Veðrið var fínt og gleði meðal keppenda. Gaman var að sjá hve margir ungir hlauparar voru með og ...

Fleiri myndir frá Adda í London. Þið megið gjarnan merkja þá sem þið þekkið.
07/09/2025

Fleiri myndir frá Adda í London.
Þið megið gjarnan merkja þá sem þið þekkið.

Myndir frá Adda í London. Þið megið gjarnan merkja þá sem þið þekkið.
07/09/2025

Myndir frá Adda í London.
Þið megið gjarnan merkja þá sem þið þekkið.

07/09/2025
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í dag og er það í fimmtánda sinn sem það er haldið. 128 hlauparar tóku þátt og er sextíuog...
06/09/2025

Vestmannaeyjahlaupið fór fram í dag og er það í fimmtánda sinn sem það er haldið. 128 hlauparar tóku þátt og er sextíuogátta ára aldursmunur á yngsta og elsta þátttakenda. Veðrið var fínt og gleði meðal keppenda. Gaman var að sjá hve margir ungir hlauparar voru með og hvað árangur þeirra var góður.

Eva Skarpaas sigraði í 5 km kvenna á tímanum 23:18. Eva hvatti okkur að setja hlaupið á laggirnar árið 2011 og hefur oft verið á verðlaunapalli í Eyjum. Daníel Snær Eyþórsson var langfyrstur karla á tímanum 18:17.

Íris Dóra Snorradóttir sigraði 10 km kvennaflokk annað árið í röð og kom í mark á tímanum 40:42. Sigurvegari karlaflokks var Arnar Pétursson á 35:38. Arnar var að taka þátt í Vestmannaeyjahlaupinu í fyrsta sinn. Hann hefur sigrað The Puffin Run þrisvar sinnum.

Nafni hans, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tók þátt í sínu fyrsta hlaupaviðburði og stóð sig vel.

Eyjaskokk styrkti Minningarsjóð Gunnars Karls að hlaupi loknu.

https://timataka.net/vestmannaeyjahlaupid2025/

Viðar Stefánsson tekur þátt í 10 km. í Vestmannaeyjahlaupinu á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í hlau...
05/09/2025

Viðar Stefánsson tekur þátt í 10 km. í Vestmannaeyjahlaupinu á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í hlaupaviðburði.

Hlaupanúmer eru afhent í íþróttahúsinu til kl.19. Andrea Ósk Jónsdóttir sótti sitt númer. Nú eru 99 skráðir!
05/09/2025

Hlaupanúmer eru afhent í íþróttahúsinu til kl.19. Andrea Ósk Jónsdóttir sótti sitt númer. Nú eru 99 skráðir!

Arnar Pétursson tekur þátt í Vestmannaeyjahlaupinu sem fram fer á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt, en...
05/09/2025

Arnar Pétursson tekur þátt í Vestmannaeyjahlaupinu sem fram fer á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt, en hann hefur þrisvar sinnum sigrað í The Puffin Run.

Keppendur sem koma samdægurs með Herjólfi með 10:45 ferðinni er boðið upp á akstur frá bryggju upp í íþróttahús.
05/09/2025

Keppendur sem koma samdægurs með Herjólfi með 10:45 ferðinni er boðið upp á akstur frá bryggju upp í íþróttahús.

Það eru öll velkomin að taka þátt í Vestmannaeyjahlaupinu.Hlauparar fæddir 2010 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt en v...
03/09/2025

Það eru öll velkomin að taka þátt í Vestmannaeyjahlaupinu.
Hlauparar fæddir 2010 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt en verða að skrá sig í hlaupið. https://netskraning.is/vestmannaeyjahlaupid/

Address

Vestmannaeyjar

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vestmannaeyjahlaupið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category