02/01/2024
Snókerklúbbur Vestmannaeyja heldur snókermót í 6-rauðum laugardaginn 6. janúar og hefst mótið klukkan 13.00. Skráning í mótið er á [email protected], með kommenti hér að neðan eða undir frétt um mótið á Facebooksíðu Snókerklúbbs Vestmannaeyja. Mótsgjald er 3000 kr, 1500 kr í verðlaunapott. Skipt verður í riðla og svo undanúrslit og úrslit. Allir velkomnir.