Rodeo Racing

Rodeo Racing Rodeo Racing stendur á bak við Ótemjuna í Torfærunni með Guðmund Elíasson undir stýri. Bremsur: Wilwood

870 Racing team er keppnislið í íslensku torfærunni, liðið saman stendur af mótorsport áhugamönnum úr mýrdalshrepp.
Ökumaður liðsins er Guðmundur Elíasson 22 ára, Guðmundur hefur keppt í rallycrossi frá 15 ára aldri en færði sig að mestu yfir í torfæruna árið 2018 og hefur tekið þátt í flestum umferðum íslandsmótsins síðan. Keppnistæki liðsins er Ótemjan, sérútbúinn torfærubíll smíðaður af meðlimu

m liðsins. Meira um bílinn:
Grind sérsmíðuð af Smári Tómasson Vélaverkstæði í samvinnu við aðra liðsmenn. Mótor: Chevrolet ls3 + Borg Warner Airwerks s400sx3 turbo
Eldsneyti: E85
Skipting: Powerglide
Millikassi: Ljónsstaðir
Fjöðrun: ORI
Hásingar: D60 með Yukon læsingum og öxlum.

Takk fyrir okkur Blönduós!Þrátt fyrir einbeittan brotavilja Guðmundar, sem hann lét þessa helgina bitna á framdrifi Ótem...
20/07/2026

Takk fyrir okkur Blönduós!

Þrátt fyrir einbeittan brotavilja Guðmundar, sem hann lét þessa helgina bitna á framdrifi Ótemjunar í fyrstu braut og aðrar bilanir sem létu á sér kræla á laugardaginn náðum við samt á verðlaunapall aðra keppnina í röð🥉

Við þökkum keppendum, keppnishöldurum, sjálfboðaliðum og áhorfendum fyrir frábæra keppni og sjáumst hress á Akureyri 15. Ágúst 🏁

📷 Heiða Björg Jónasdóttir

‼️Sjóðheitt nýtt vlog á youtube hjá okkur‼️Þá er það vloggið úr sumarfríinu mikla. Mikið gert í þessu fríi, græjað nýjan...
12/07/2026

‼️Sjóðheitt nýtt vlog á youtube hjá okkur‼️
Þá er það vloggið úr sumarfríinu mikla. Mikið gert í þessu fríi, græjað nýjan vagn fyrir torfæruútgerðina og skrúfað í fullt af bílum. Það er líka farið yfir undirbúninginn fyrir Egilsstaði og svo er líka slatti af efni af keppninni sjálfri. Endilega hendið þessu á skjáinn í kvöld

Vlog úr skúr torfæruliðs Ótemjunnar. Allt frá undirbúning fyrir tor...

‼️Sjóðheitasta Vlog hingað til er lent á Youtube‼️Skelliði þessu á skjáinn um helgina og njótið. 383 í Monte Carlo, Tran...
05/06/2026

‼️Sjóðheitasta Vlog hingað til er lent á Youtube‼️
Skelliði þessu á skjáinn um helgina og njótið. 383 í Monte Carlo, Trans Am og auðvitað Stangarhylur. Hér sést líka betur frá því hvernig við náðum að græja skiptingarskipti milli brauta.

Vlog úr skúr torfæruliðs Ótemjunnar. Allt frá undirbúning fyrir tor...

01/06/2026

Gleðilegan mánudag! Eins og ávalt tókum við þátt í torfærunni í Stangarhyl sem var núna seinasta laugardag.
Það gekk ótrúlega vel hjá okkur og hefðum við átt að standa á palli um helgina 🥉, en það varð því miður ekki að því útaf 1. braut, en við förum ekki nánar í það. Ég vill samt þakka dómurum, dómnefnd og fleirum sem koma að fyrir góð viðbrögð og að geta tekið upp símann og talað um það sem fer illa í kringum þetta.
Það gekk á ýmsu, ökumaður var fárveikur (kvef, hálsbólga og nánast ælupest 😂), stýrið byrjaði að gefast upp strax um morguninn og var ekkert stýri þegar bíllinn var kominn á snúning og svo fór skipting hjá okkur í 3. braut.
Þannig að það var nóg að gera hjá okkur og þetta er auðvitað bara úrvalslið í torfæruservice sem við erum með og við skiptum um skiptingu milli brauta og komum okkur með mínútu í afgang í hlið fyrir næstu braut, við ætlum að leyfa okkur að segja að það eru kannski 1-2 lið í torfærunni sem hefðu náð þessu á tíma.
Súrt eftir þennan árangur að fá ekki að standa á palli en við fáum bara smá heppni með okkur fyrir austan og tökum þetta á Egilsstöðum. Hér fylgir svo myndband sem tekur 3. og 4. braut saman.

Góðir hálsar, það er að koma að þessu 😎Eftir langan vetur er loksins að koma sumar og Sindratorfæran á Hellu fer fram nú...
28/04/2026

Góðir hálsar, það er að koma að þessu 😎

Eftir langan vetur er loksins að koma sumar og Sindratorfæran á Hellu fer fram núna á laugardaginn 2. Maí kl 10 🏁

Í samstarfi við Flugbjörgunarsveitina á Hellu ætlum við að gefa tvo miða á keppnina 👌

Merktu vin þinn sem þú ætlar að bjóða með þér á keppnina hér fyrir neðan og þú ert kominn í pottinn 👇

Við tilkynnum sigurvegara á föstudaginn 🤩

Address

Sunnubraut 14
Vík
870

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rodeo Racing posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Rodeo Racing:

Share