28/08/2026
Hvaða æfing er best fyrir þennan vöðva eða hinn? Hvaða æfing er best fyrir rassinn? Margir velta þessu fyrir sér og helst viljum við auðvitað fá eitt einfalt svar. Svo kemur REEL: „ÞESSI æfing byggir 47% meiri vöðva en hin.“ Þar á eftir kemur allskonar lógík, nokkrar flottar örvar og meiri lógík frá einhverjum í hlýrabol sem talar nógu ákveðið til að málið virðist endanlega leyst. 😊
Nema líkaminn virkar ekki alveg svona.
Þegar ég vel æfingar fyrir mig eða mína kúnna horfi ég oft á biomechanics. Hvernig hreyfast liðirnir? Hvaða moment arms myndast? Hvernig lítur resistance profile æfingarinnar út? Hvar í hreyfiferlinum er ytra torque mest? Við hvaða vöðvalengd í hreyfingunni þarf vöðvinn að framleiða mestan kraft? Hversu stöðug er æfingin? Það getur ráðist af ofangreindu t.a.m.
Síðan kemur mikilvægasti þátturinn inn í myndina: einstaklingurinn sjálfur.
Lengd útlima, hlutfall búks og fóta, hreyfigeta, styrkur og æfinga/ sjúkra saga geta gert það að verkum að nákvæmlega sama æfingin skapar mjög ólíkar kröfur hjá tveimur einstaklingum. Þess vegna er ein ákveðin útfærsla af hnébeygju eða bekkpressu ekki sjálfkrafa "rétta“ útfærslan fyrir alla.
Smávægileg breyting á líkamsstöðu, gripbreidd, stöðu hnjáa eða olnboga getur breytt moment arm og þar með torque út frá liðnum. Þegar það breytist getur líka breyst hversu mikinn kraft mismunandi vöðvar þurfa að framleiða.
Ef markmiðið er hypertrophy vil ég því ekki bara vita hvort æfingin "virkjar“ vöðvann. Ég vil vita hvort hún geti skapað nægilegt og stigvaxandi mechanical tension á hann, hvort einstaklingurinn geti framleitt mikinn kraft í hreyfingunni allri og hvort liðstaða æfingarinnar veiti nægan stöðugleika til þess að kraftframleiðslan verði sem ákjósanlegust en takmarkist ekki.
Þetta er líka ástæðan fyrir því að "besta æfingin“ á Instagram eða YouTube er ekki endilega besta æfingin fyrir þig. Þetta er hlutverk allra að skoða sem vilja vera uppbyggilega gagnrýnrir á það sem þeir eru að gera og það skapar vissulega rými til vaxtar