Selfoss eSports

  • Home
  • Selfoss eSports
Directions Website Contact the business

Selfoss eSports Rafíþróttadeild Ungmennafélags Selfoss

Loksins komin til baka! Meistaraflokkslið Selfoss Esports tekur þátt í Íslandsmeistaramóti Ljósleiðarans í CS2. Fyrsti l...
20/10/2026

Loksins komin til baka! Meistaraflokkslið Selfoss Esports tekur þátt í Íslandsmeistaramóti Ljósleiðarans í CS2. Fyrsti leikur er í kvöld á móti ÞÓR!
Leikurinn byrjar kl 19:15 og verður streymdur á twitchrás: https://www.twitch.tv/icenosi
ÁFRAM SELFOSS!

Stórar fréttir! Eftir mikil eftirspurn, höfum við tekið þá ákvörðun að bæta við Minecraft hóp 🥳https://www.abler.io/shop...
07/09/2026

Stórar fréttir! Eftir mikil eftirspurn, höfum við tekið þá ákvörðun að bæta við Minecraft hóp 🥳
https://www.abler.io/shop/umfs/rafithrottir
En með því breytist tími og dagsetning á fysta hópnum. Núna byrjar miðvikudagstímarnir kl 16:00 - 17:30 og strax eftir kemur hópur 2 frá kl 17:30 - 19:00 en stærsta breytingin er sú að við erum búin að færa föstudagsæfingarnar yfir á laugardag! Þannig hópur 1 er frá kl 10:00 - 11:30 og hópur 2 frá kl 11:30 - 13:00 laugardaga:)

Einhverjar spurningar? Ekki hika við að heyra í okkur gegnum mail ([email protected]) eða messenger

Fortnite æfingarSkráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottirÞjálfari: Gabríel BergmanÆfingatími: Þriðjuda...
25/08/2026

Fortnite æfingar
Skráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottir
Þjálfari: Gabríel Bergman
Æfingatími: Þriðjudaga kl. 18:00 - 19:30
Fimmtudaga kl. 18:00 - 19:30
Aldurshópar 5. - 10. Bekkur.
Æfingarnar eru staðsettar í kjallar vallaskóla, iðu megin.
Iðkendur spreyta sig í íslensku Fortnite deildinni og næstkomandi RÍSÍ mót.
Fortnite er einn vinsælasti Battle Royale leikurinn. Æfingarnar verða með fjölbreyttu sniði þar sem byrjendur og lengra komin, efla öll helstu grunn og undirstöðuatriði, auk annarar framhaldsfærni, sem og að fara í öll bestu og skemmtilegustu game modes í leiknum.
Æfingaskipulag: Hver æfing skiptist í oftast í tvo hluta, en getur verið í þremur hlutum þ.e.a.s. fyrsti hluti snýr að hreyfingu, svo fræðslu og síðasti hluti að æfingu í tölvu

MinecraftÞjálfari: Rúnar ÞórSkráning: https://www.abler.io/shop/umfs/rafithrottirÆfingatími: Miðvikudaga kl. 16:30 - 18:...
25/08/2026

Minecraft
Þjálfari: Rúnar Þór
Skráning: https://www.abler.io/shop/umfs/rafithrottir
Æfingatími: Miðvikudaga kl. 16:30 - 18:00
Föstudaga kl. 16:30 - 18:00
(Hver æfing er 90 mínútur)
Aldurshópar 2. - 7. Bekkur.
Minecraft æfingar eru miðaðar fyrir þá sem vilja æfa í örlítið rólegri leik en við höfum verið að bjóða upp á. Æfingarnar miðast við það að efla öll helstu grunn og undirstöðuatriði iðkenda, sem og að fara í fjölbreytt úrval skemmtilegra verkefna og leikja í leiknum sem einblína annaðhvort á hvernig á að spila leikinn með sjálfstæðum hætti, eða þá í samvinnu við aðra.
Þátttökuskilyrði er að eiga til eintak af leiknum.
Æfingaskipulag: Hver æfing skiptist í tvo hluta, fyrsti hluti snýr að hreyfingu og næsti hluti að æfingu í tölvu.
Í fyrri liðnum þá er byrjað á stuttum teygjum, svo er farið í skemmtilega upphitun sem felst í hreyfingu í leikjaformi sem gæti innifalið styrktaræfingar, þolæfingar og síðan liðleikaæfingar. Eftir það er farið í pásu og að henni lokinni fara iðkendur í tölvur og framkvæma æfingar, með stuttum pásum inni á milli. Þegar allir hafa klárað sinn hluta af æfingum, fara iðkendur að spila saman leik undir eftirliti og leiðbeiningum þjálfara.

FPS hópurSkráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottirÞjálfari: Noel Elías ChareyreÆfingatími: Mánudaga kl...
25/08/2026

FPS hópur
Skráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottir
Þjálfari: Noel Elías Chareyre
Æfingatími: Mánudaga kl. 16:00 - 17:30
Föstudaga kl 18:00 - 19:30
(Hver æfing er 90 min)
Aldurshópar 6. - 10. Bekkur.
FPS hópur/keppnishópur einbeinir í að komast lengra í rafíþróttinni og keppa á íslenskum mótum. Farið er í gegnum hvernig er að spila sem lið og hvernig tækni felur bakvið sig að vinna og tapa en að halda sama liðsanda milli leikmanna og leikja. Á önninni verður svo teknir æfingaleikir á móti önnur ung lið og möguleiki verður keppni þar sem nokkur lið koma og spila fyrir 1sta sætið.
Æfingaskipulag: Hver æfing mun skiptast í fjóra hluta, fyrsti hluti snýr að hreyfingu og liðkun, svo fræðslu, eftir það er æfingu í tölvu og svo spil í competitive.
Í fyrsta liðnum þá er byrjað á stuttum teygjum, svo er farið í líkamlega æfingar ætlaðar til að auka frammistöðu, hreyfingin sem skiptist upp í styrktaræfingar, þolæfingar og síðan liðleikaæfingar. Stutt pása er áður en farið er í fræðslu og að henni lokinni fara iðkendur í tölvur og framkvæma æfingar, með stuttum pásum inni á milli. Þegar allir hafa klárað sinn hluta af æfingum, fara iðkendur að spila saman leik undir eftirliti og leiðbeiningum þjálfara.
ATH. Mælum með að iðkendur koma með sína eigin aðganga steam account

Blandaði HópurSkráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottirÞjálfari: Gabríel BergmanÆfingatími: Þriðjudaga...
25/08/2026

Blandaði Hópur
Skráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottir
Þjálfari: Gabríel Bergman
Æfingatími: Þriðjudaga kl. 16:30 - 18:00
Fimmtudagar kl. 16:30 - 18:00
Aldurshópar 4. - 7. Bekkur
Blandaði hópurinn er miðaður fyrir byrjendur í rafíþróttum. Í þeim hópi verður iðkendum kennt hvernig tölvur virka og hvernig á að stofna sinn eigin aðgang í flestum þeim miðlum sem verður farið í og prófað alla helstu leiki í heimi rafíþrótta. Dæmi um tölvuleiki: Fortnite, Rocket League, Marvel Rivals, Valorant, League of Legends, Minecraft, o.fl.
Æfingaskipulag: Hver æfing skiptist í oftast í tvo hluta, en getur verið í þremur hlutum þ.e.a.s. fyrsti hluti snýr að hreyfingu, svo fræðslu og síðasti hluti að æfingu í tölvu.
Í fyrri liðnum þá er byrjað á stuttum teygjum, svo er farið í skemmtilega upphitun sem felst í hreyfingu í leikjaformi sem gæti innifalið styrktaræfingar, þolæfingar og síðan liðleikaæfingar. Eftir það er farið í pásu og þar á eftir er farið í fræðslu og að henni lokinni fara iðkendur í tölvur og framkvæma æfingar, með stuttum pásum inni á milli. Þegar allir hafa klárað sinn hluta af æfingum, fara iðkendur að spila saman leik undir eftirliti og leiðbeiningum þjálfara.

Jæja! Þá er sumarið að líða og rafíþróttirnar að byrja 😆Skráningar fyrir haustönn hjá Selfoss Esports er hafin á Sportab...
25/08/2026

Jæja! Þá er sumarið að líða og rafíþróttirnar að byrja 😆
Skráningar fyrir haustönn hjá Selfoss Esports er hafin á Sportabler 🤩
Skráning 👇
https://www.abler.io/shop/umfs/rafithrottir

Einhverjar spurningar? Ekki hika við að heyra í okkur gegnum mail ([email protected]) eða messenger

Leikdagur! eða réttarasagt leikkvöld!🤩Meistaraflokksliðið okkar keppir í Stórmeistaramót 2026 í CS2 og það með nýjum lei...
17/04/2026

Leikdagur! eða réttarasagt leikkvöld!🤩
Meistaraflokksliðið okkar keppir í Stórmeistaramót 2026 í CS2 og það með nýjum leikmannahópi:
Peetr (Kafteinn)
Icenosi
Robbi
Utah
Miro
Fyrsti leikur er í kvöld kl 21:15 og verður hann streymdur á Twitch rás: https://www.twitch.tv/icenosi

Ný tímasetning fyrir Aðalfund Selfoss Esports! Hlökkum að sjá sem flesta!
16/03/2026

Ný tímasetning fyrir Aðalfund Selfoss Esports!
Hlökkum að sjá sem flesta!

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Selfoss eSports posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Selfoss eSports:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed gym/sports facility?

Share