Girls on wheels var stofnað af 7 ungum stelpum í Noregi árið 2019 með hjálp þriggja foreldra sem nú eru umsjónaraðilar starfsins. GOW hefur stækkað mikið frá stofnun þess og er nú starfrækt í alls 4 bæjarfélögum í Noregi. Markmiðið er að láta hugmyndir og óskir stelpnanna verða að veruleika. Grunngildi GOW eru:
-frelsi til að vera maður sjálfur
-jafnrétti
-samfélag
-og auðvitað fullt af „Girl pow
er!“
Nýr GOW-hópur hefur nú verið stofnaður á Íslandi, nánar tiltekið á Stokkseyri og hefst fjörið 9. Hópurinn mun hittast 1x í viku, á miðvikudögum kl.17 - 18, í íþróttahúsinu á Stokkseyri. Þegar vora tekur og veður leyfir munum við einnig nota planið fyrir utan íþróttahúsið.
Æfingarnar eru iðkendum að kostnaðarlausu og er aðeins ætlast til þess að mætt sé með skauta, hjálm, hlífar og góða skapið! 🙂
Vatnsbrúsi og smá nesti gæti líka komið að góðum notum ef hungrið og þorstinn steðjar að.
Æfingarnar munu einkennast af rúlluskautafjöri, dansi og list! 🙂
Af öryggisástæðum eru forráðamenn beðnir um að senda inn skráningu á [email protected] með upplýsingum um:
-nafn og aldur barns
-nöfn og símanúmer forráðamanna
-heimilisfang
-aðrar upplýsingar sem mikilvægt er að umsjónaraðilar GOW hafi vitneskju um. Umsjónaraðilar GOW eru þær Agnes Lind Jónsdóttir, forstöðukona frístundar BES, Samantha Stefaníudóttir, starfsmaður frístundar BES og Tinna Björg Kristinsdóttir, íþróttafræðingur. Allar eru þær mæður stelpna í hópnum og er aðild þeirra að starfinu unnin í sjálfboðarvinnu. Ungmennafélag Stokkseyrar styrkir starfið með því að skaffa hópnum áhöld og húsnæði. GOW á Íslandi og GOW í Noregi munu vinna náið saman að markmiðum og leiðum innan starfsins og skapa þannig grundvöll til tengsla á milli landa. Komdu og vertu hluti af GOW-samfélaginu okkar! 🙂