Grótta Fimleikadeild

Grótta Fimleikadeild www.grotta.is
instagram : grottafimleikar Hjá deildinni eru um 600 iðkendur veturinn 2021-2022.

Fimleikadeild Gróttu býður uppá grunnfimleika fyrir börn frá 2ja ára aldri auk áhalda- og hópfimleika fyrir 8 ára og eldri. Frekari upplýsingar eru á www.grotta.is
Fylgið okkur á instagram á: grottafimleikar

Við erum komin á fullt að undirbúa næsta fimleikavetur og forskráning fyrir veturinn 2026–2027 er nú opin! 🤸Með því að f...
10/06/2026

Við erum komin á fullt að undirbúa næsta fimleikavetur og forskráning fyrir veturinn 2026–2027 er nú opin! 🤸

Með því að forskrá iðkendur tryggið þið ykkur pláss fyrir haustið og hjálpið okkur um leið að skipuleggja starfið sem best.

Við hlökkum til að taka á móti bæði nýjum og núverandi iðkendum á næsta tímabili.
Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/grotta

Þúsund þakkir fyrir frábæra helgi💙💙
31/05/2026

Þúsund þakkir fyrir frábæra helgi💙💙

Fjörið heldur áfram á morgun, laugardag! Hlökkum til að sjá ykkur 💙
29/05/2026

Fjörið heldur áfram á morgun, laugardag!
Hlökkum til að sjá ykkur 💙

Vormót yngri flokka í hópfimleikum hefst á morgun, föstudag! 💙Mótið er haldið í handboltasal Gróttu þar sem 503 iðkendur...
28/05/2026

Vormót yngri flokka í hópfimleikum hefst á morgun, föstudag! 💙

Mótið er haldið í handboltasal Gróttu þar sem 503 iðkendur frá 11 félögum mæta til leiks og sýna hæfileika sína um helgina. Keppt verður í 5. flokki, 4. flokki og KKY. Grótta á 55 iðkendur á mótinu.

Á morgun, föstudag keppa Grótta bleikur, Grótta blár og Grótta fjólublár! 👊
Mætum í bláu og styðjum Gróttu um helgina 💙

Það verður nóg um að vera í fimleikadeildinni á næstu dögum! 🤸‍♀️Um helgina heldur Grótta Vormót yngri flokka í hópfimle...
27/05/2026

Það verður nóg um að vera í fimleikadeildinni á næstu dögum! 🤸‍♀️
Um helgina heldur Grótta Vormót yngri flokka í hópfimleikum þar sem 11 fimleikafélög munu taka þátt.

Við hlökkum til að sjá iðkendur sýna hvað þau hafa verið að æfa í vetur og við óskum öllum keppendum góðs gengis.

Stúlkur frá fimleikadeild Gróttu munu ganga í hús í dag og morgun, 26. og 27.maí frá kl.18 og safna dósum en þær eru að ...
26/05/2026

Stúlkur frá fimleikadeild Gróttu munu ganga í hús í dag og morgun, 26. og 27.maí frá kl.18 og safna dósum en þær eru að safna sér fyrir æfinga-og keppnisferðalagi nú í sumar og haust.
Takið endilega vel á móti þeim😊

Þjálfarar fimleikadeildarinnar komu saman í morgun og áttu saman geggjaðan dag 💙💛Dagurinn hófst á ljúffengum bröns í hát...
23/05/2026

Þjálfarar fimleikadeildarinnar komu saman í morgun og áttu saman geggjaðan dag 💙💛
Dagurinn hófst á ljúffengum bröns í hátíðarsalnum og svo stóð skemmtinefndin fyrir líflegri spurningakeppni og fjölbreyttum þrautum í fimleikasalnum sem vöktu mikla lukku.
Það var ótrúlega gaman að sjá hvað margir sáu sér fært um að mæta og að aldur eða þjálfarareynsla skipti engu máli – allir unnu saman, hlógu og skemmtu sér.
Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og var frábær leið til að fagna vorinu og kveðja enn einn glæsilegan fimleikavetur

Grótta sendi nokkur lið á Íslandsmeistaramótið í hópfimleikum sem fram fór á Akranesi um síðustu helgi. 2.flokkur stóð s...
23/05/2026

Grótta sendi nokkur lið á Íslandsmeistaramótið í hópfimleikum sem fram fór á Akranesi um síðustu helgi.
2.flokkur stóð sig frábærlega og voru stelpurnar aðeins 0,4 stigum frá bronsverðlaunum. Við prófuðum nýjan dans og ný stökk og erum mjög ánægð með frammistöðu liðsins. Stelpurnar í 2. flokki fengu einnig hæstu einkunn í dýnu.
Stelpurnar í 3. flokki B-deild nældu sér í brons eftir frábæra keppni. Þær fengu hæstu einkunn á gólfi, næsthæstu einkunn á trampólíni og enduðu í 6. sæti í dansi.
Keppnin í stökkfimi gekk einnig vel. Þar endaði Grótta Blár í 7. sæti og Grótta Gulur í 11. sæti.
Við erum afar stolt af öllum iðkendunum og þjálfurum fyrir frábæran árangur og skemmtilega helgi á mótinu

Aðalfundur Gróttu og deilda þess fer fram í dag, þriðjudaginn 19. Maí 2026 kl 17:00 í hátíðarsal Gróttu. Öll velkomin👊🏼😁
19/05/2026

Aðalfundur Gróttu og deilda þess fer fram í dag, þriðjudaginn 19. Maí 2026 kl 17:00 í hátíðarsal Gróttu.
Öll velkomin👊🏼😁

Boðað er til aðalfundar íþróttafélagsins Gróttu og deilda þess, þ.e. fimleikadeild, handknattleiksdeild og knattspyrnudeild, þriðjudaginn 19. Maí 2026 kl 17:00 í hátíðarsal félagsins að Suðurströnd 8.

Gróttumót grunnhópa fór fram í dag og það er óhætt að segja að dagurinn hafi tekist einstaklega vel 💙Það var svo gaman a...
16/05/2026

Gróttumót grunnhópa fór fram í dag og það er óhætt að segja að dagurinn hafi tekist einstaklega vel 💙
Það var svo gaman að sjá alla iðkendurna okkar stíga á gólfið með bros á vör, leggja sig fram og hafa gaman. Gleðin, stoltið og stemningin í salnum var alveg einstök.
Foreldrarnir voru líka algjörlega frábærir í dag — klöppuðu, hvöttu og studdu við fimleikafólkið okkar af heilum hug.
Við viljum senda risastórt hrós á þjálfarateymið okkar sem stóð sig ótrúlega vel í dag. Krafturinn, samvinnan og skipulagið hjá ykkur var til fyrirmyndar og það sást langar leiðir hvað þið lögðuð mikið hjarta í daginn.
Einnig viljum við þakka stjórninni og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúning, framkvæmd og frágang. Svona dagar verða ekki að veruleika nema með góðu fólki sem vinnur saman
Takk fyrir daginn 💙

Address

Seltjarnarnes

Telephone

+3545611137

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grótta Fimleikadeild posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Grótta Fimleikadeild:

Share