Grótta Handbolti

Grótta Handbolti Handknattleiksdeild Gróttu

LEIKDAGURHandknattleiksdeild Gróttu teflir fram tveimur meistaraflokkum í kvennaflokki í vetur. Grótta leikur í Olísdeil...
13/09/2026

LEIKDAGUR

Handknattleiksdeild Gróttu teflir fram tveimur meistaraflokkum í kvennaflokki í vetur. Grótta leikur í Olísdeildinni og Grótta 2 leikur í Grill 66-deildinni. Þar fá yngri leikmenn liðsins að spreyta sig með hjálp eldri leikmanna.

Í dag leika stelpurnar sinn fyrsta heimaleik en Fjölnir kemur í heimsókn í Hertz-höllina kl. 18:00. Gróttu 2 stelpurnar mættu sterku liði FH í fyrsta leik fyrir viku síðan sem Hafnfirðingar unnu.

Mætum á leik dagsins og hvetjum þessar ungu og upprennandi stelpur til sigurs.

Áfram Grótta !

Flottur sigur í fyrsta leikStrákarnir í Gróttu 2 í 3.flokki karla mættu Þór Ak 2 í fyrsta leik Íslandsmótsins núna í hád...
13/09/2026

Flottur sigur í fyrsta leik

Strákarnir í Gróttu 2 í 3.flokki karla mættu Þór Ak 2 í fyrsta leik Íslandsmótsins núna í hádeginu. Leikurinn var jafn til að byrja með en smám saman tóku okkar strákar völdin á leiknum. Staðan í hálfleik var 21-13 fyrir Gróttu. Í síðari hálfleik héldu okkar strákar uppteknum hætti og unnu að lokum 40-28 sigur. Flottur sigur í fyrsta leik.

Markaskor Gróttu:
Magnús Malik Nielsen Friðriksson – 10 mörk
Oliver Örtenblad Bergmann – 8 mörk
Tómas Kristjánsson – 6 mörk
Daníel Þór Þórsson – 4 mörk
Halldór Ingi Hinriksson – 3 mörk
Kristján Ólafur Gíslason – 3 mörk
Tómas Orri Ólafsson – 3 mörk
Arnar Magnús Andrason – 2 mörk
Sigurvin Elí Jónsson – 2 mörk

Í markinu varði Ari Minik Nielsen Friðriksson 14 skot og var með 33% markvörslu í leiknum.

Góður sigur í VirkinuStrákarnir okkar mættu Víkingi 2 í 2.umferð Grill 66-deildar karla nú fyrr í dag. Strákarnir hófu l...
12/09/2026

Góður sigur í Virkinu

Strákarnir okkar mættu Víkingi 2 í 2.umferð Grill 66-deildar karla nú fyrr í dag. Strákarnir hófu leikinn betur og komust fljótlega í 4-11. Heimamenn minnkuðu muninn í framhaldinu en staðan í hálfleik var 11-16.

Gróttustrákarnir voru sterkari í síðari hálfleik og unnu að lokum flottan 14 marka sigur 19-33.

Markaskor Gróttu:
Sæþór Atlason - 8 mörk
Sigurður Finnbogi Sæmundsson - 6 mörk
Gísli Örn Alfreðsson - 4 mörk
Ari Pétur Eiríksson - 3 mörk
Arnþór Sævarsson - 3 mörk
Kári Kvaran - 3 mörk
Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson - 2 mörk
Alex Kári Þórhallsson - 1 mark
Hannes Grimm - 1 mark
Helgi Skírnir Magnússon - 1 mark
Sverrir Arnar Hjaltason - 1 mark

Í markinu varði Hannes Pétur Hauksson 16 skot (50%) og Þórður Magnús Andrason 2 skot (40%).

Næsti leikur liðsins er sunnudaginn 20.september þegar strákarnir leika gegn Víði í 32 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ, Powerade-bikarnum. Nánar að því síðar.

Handknattleiksdeild Gróttu óskar meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hjartanlega til hamingju með sæti á meðal þeirra be...
12/09/2026

Handknattleiksdeild Gróttu óskar meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hjartanlega til hamingju með sæti á meðal þeirra bestu !

Áfram Grótta !

LEIKDAGURStrákarnir okkar mæta Víkingi 2 í 2.umferð Grill 66-deildar karla í dag. Leikurinn fer fram í Virkinu í Safamýr...
12/09/2026

LEIKDAGUR

Strákarnir okkar mæta Víkingi 2 í 2.umferð Grill 66-deildar karla í dag. Leikurinn fer fram í Virkinu í Safamýri og hefst kl. 16:15.

Fjölmennum og styðjum strákana okkar til sigurs.

Áfram Grótta !

Frábær fyrsti sigur Stelpurnar okkar mættu Selfyssingum fyrir austan í annarri umferð Olísdeildar kvenna í kvöld. Eftir ...
11/09/2026

Frábær fyrsti sigur

Stelpurnar okkar mættu Selfyssingum fyrir austan í annarri umferð Olísdeildar kvenna í kvöld. Eftir jafnar fyrstu mínútur voru það okkar stelpur sem tóku forystu og höfðu 12-15 forskot í hálfleik.

Í síðari hálfleik bættu okkar stelpur í og náðu mest fimm marka forskoti 12-17 og 13-18. Þá gengu Selfyssingar á lagið og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Heimakonur komust yfir 25-24 þegar rúmlega mínúta var eftir. Okkar konur skoruðu þrátt fyrir það tvö seinustu mörkin og unnu frábæran fyrsta sigur, 25-26.

Markaskor Gróttu
Karlotta Óskarsdóttir 10 mörk
Katrín Scheving 8 mörk
Arnbjörg Bertha Kristjánsson 3 mörk
Eva Björk Davíðsdóttir 2 mörk
Edda Steingrímsdóttir 2 mörk
Elísabet Ása Einarsdóttir 1 mark

Í markinu varði Andrea Gunnlaugsdóttir 10 skot og var með 29% markvörslu.

Næsti leikur Gróttu er laugardaginn 19.september þegar Stjarnan kemur í heimsókn í Hertz-höllina. Nánar að því síðar.

LEIKDAGURStelpurnar okkar mæta Selfyssingum í kvöld kl. 19:00. Leikurinn fer fram í Set-höllinni á Selfossi. Fjölmennum ...
11/09/2026

LEIKDAGUR

Stelpurnar okkar mæta Selfyssingum í kvöld kl. 19:00. Leikurinn fer fram í Set-höllinni á Selfossi. Fjölmennum á Selfoss og styðjum okkar stelpur til sigurs.

Áfram Grótta !

Karlalið Gróttu í æfingaferðDagana 19. - 26.ágúst fór karlalið Gróttu í viku langa æfingaferð til Tenerife. Liðin dvaldi...
09/09/2026

Karlalið Gróttu í æfingaferð

Dagana 19. - 26.ágúst fór karlalið Gróttu í viku langa æfingaferð til Tenerife. Liðin dvaldi í Puerto de la Cruz á norður hluta eyjunnar. Liðið æfði við frábærar aðstæður en auk æfinga þá lék liðið góðan æfingaleik gegn C.B. Tacoronte. Okkar strákar höfðu þar betur og unnu 36-25.

Á milli æfinga sleiktu okkar strákar sólina, tóku padel-mót og golfmót. Segja má að æfingaferðin hafi skilað tilætluðum árangri og liðið í hörkustandi núna í byrjun Íslandsmótsins.

Við þökkum ferðaskrifstofunni "10 þúsund fet" kærlega fyrir frábært skipulag.

Íris Björk ráðin markmannsþjálfariÍris Björk Símonardóttir hefur verið ráðin markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna. Ír...
09/09/2026

Íris Björk ráðin markmannsþjálfari

Íris Björk Símonardóttir hefur verið ráðin markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna. Írisi þarf vart að kynna fyrir Gróttufólki en hún hefur leikið 244 leiki fyrir meistaraflokk, unnið tvo Íslandsmeistaratitla fyrir félagið, deildarmeistarartitil og bikarmeistarartitil. Hún hefur unnið sömu afrek fyrir Fram og Val.

Markmenn meistaraflokks; Andrea Gunnlaugsdóttir, Anna Karólína Ingadóttir og Soffía Helen Sölvadóttir munu njóta þeirra forréttinda að hlýða á og læra af Írisi Björk á æfingum og leikjum í vetur.

Auk þess að sinna markvörðum meistaraflokks kvenna mun Íris Björk koma inn á æfingar 3. og 4.flokks kvenna og hjálpa þeim markvörðum að ná enn þá lengra.

Áður höfðum við kynnt Hallgrím Jónasson sem markmannsþjálfara meistaraflokks karla. Haddi heldur utan um sameiginlegar markmannsæfingar 3. og 4.flokks karla og kvenna. Hann kemur inn á æfingar 3. og 4.flokks karla og sinnir markvörðunum þar. Íris Björk sér um stelpurnar á sama aldri.

Við fögnum þessum frábæru fréttum !

Address

Seltjarnarnes

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grótta Handbolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category