Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS

Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS Æfingar eru alla mánudaga og miðvikudaga kl. 17:40 frá Sundlaug Seltjarnarness og laugardaga frá sama stað kl 9:00. Allir alltaf velkomnir.

Frábær mæting á fyrsta í hlaupadögum TKS. Allir velkomnir á næstu æfingu sem er á laugardaginn kl 9:00 🏃🏃🏻‍♀️🏃🏼‍♂️
05/06/2024

Frábær mæting á fyrsta í hlaupadögum TKS. Allir velkomnir á næstu æfingu sem er á laugardaginn kl 9:00 🏃🏃🏻‍♀️🏃🏼‍♂️

***HLAUPADAGAR TKS DAGANA 5-20 JÚNÍ***Dagana 5-20 júní verða hlaupadagar hjá TKS þar sem öllum er boðið FRÍTT að mæta á ...
30/05/2024

***HLAUPADAGAR TKS DAGANA 5-20 JÚNÍ***

Dagana 5-20 júní verða hlaupadagar hjá TKS þar sem öllum er boðið FRÍTT að mæta á hlaupaæfingar.

TKS heldur úti skipulögðum hlaupaæfingum þrisvar í viku frá sundlaug Seltjarnarness. Um er að ræða svokallaðar gæðaæfingar á mánudögum og miðvikudögum kl: 17:20 og rólegar „lengri“ hlaupaæfingar á laugardögum klukkan 9:00.

Þjálfari skipuleggur æfingar þannig að allir geta tekið þátt og hlaupið á sínum hraða. Hópurinn er breiður og geta því allir fundið hlaupafélaga innan hópsins hvort sem viðkomandi er að hefja hlaup eða vanur hlaupari.

Þrír heppnir þátttakendur í hlaupadögum verða dregnir út í lok hlaupadaga og fá gjafabréf frá Hlaupári að upphæð 30.000 kr.

Nú er tækifærið að reima á sig skóna, stíga yfir þröskuldinn og koma út að hlaupa !!!

10/05/2023
Komdu út að hlaupa...
10/05/2022

Komdu út að hlaupa...

Kirkjuhlaup í Covid - við hlökkum til að hlaupa með ykkur á ný. Frábært hvað margir hlaupahópar og hlauparar tóku áskoru...
27/12/2021

Kirkjuhlaup í Covid - við hlökkum til að hlaupa með ykkur á ný. Frábært hvað margir hlaupahópar og hlauparar tóku áskorun um að hlaupa sitt Kirkjuhlaup frá sinni kirkju á sínum tíma, endilega deilið myndum með okkur.

Upp með sokkanna og reimdu á þig skónna, við leggjum af stað kl. 17:40
26/05/2021

Upp með sokkanna og reimdu á þig skónna, við leggjum af stað kl. 17:40

Kæru trimmararHátíð ljóssins er handan við hornið og verður hátíðahald með öðrum hætti en við eigum að venjast vegna þes...
15/12/2020

Kæru trimmarar

Hátíð ljóssins er handan við hornið og verður hátíðahald með öðrum hætti en við eigum að venjast vegna þessara sérstöku aðstæðna sem við búum við í dag.
Einn af hátíðadögum Trimmklúbbs Seltjarnarness hefur verið á annan í jólum þegar trimmarar á höfuðborgarsvæðinu hafa safnast saman með Trimmklúbbsfélögum og hlaupið á milli 13 kirkna með jólaanda í brjósti og þegið góðgerðir í Seltjarnarnesskirkju að hlaupi loknu.
Á síðasta ári hlupu um 500 trimmarar Kirkjuhlaupið sem haldið var í níunda sinn.
Á 10 ára afmæli hlaupsins verður ekki boðið uppá þennan dásamlega viðburð vegna samkomutakmarkanna, en Trimmklúbbsfélagar skora á aðra trimmara að láta samt ekki deigan síga og reima á sig skóna og hlaupa á milli kirkna í sínu hverfi með ást og frið í hjarta. Þá væri ekki úr vegi að setja inn mynd á Facebook síðu Trimmklúbbsins og senda eins og eina jólakveðju með von um að árið 2021 fari mýkri höndum um okkur en árið sem er að líða.

18/05/2020

Nýliðanámskeiðið hefst kl. 17:40 við Sundlaug Seltjarnarness.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Address

Seltjarnarnes

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Saturday 09:00 - 10:30

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS:

Share

Category