Fellskotshestar

Fellskotshestar Hrossaræktarbýli

Systkinin Sunna og Svalur frá Fellskoti fóru í ágætan kynbótadóm í síðustu viku og hlutu bæði 9.fyrir tölt og Svalur rey...
14/06/2021

Systkinin Sunna og Svalur frá Fellskoti fóru í ágætan kynbótadóm í síðustu viku og hlutu bæði 9.fyrir tölt og Svalur reyndar líka níu fyrir hægt tölt. Sunna er 6v. undan Spes frá Fellskoti og Sjóði frá Kirkjubæ. Hún var sýnd af Teiti Árnasyni og hlaut f. byggingu 8,20 hæfileika 8,28 og aðaleinkunn 8,26.
Svalur er 4v. undan Spes frá Fellskoti og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum og sýndur af Þorgeiri Ólafssyni. Hann fékk í byggingu 8,24 hæfileika 7,85 og aðaleinkunn 7,99.
Greinilega margt líkt með þessum systkinum sem voru snildarvel sýnd af Teiti og Þorgeiri og greinilegt að Spes er að gefa mjög skemmtileg hross, einstaklega geðgóð og hreyfingamikil.

Hér er Þorgeir Ólafsson á Hetju frá Fellskoti. Viljug alhliða hryssa undan Hnotu gömlu.
10/05/2021

Hér er Þorgeir Ólafsson á Hetju frá Fellskoti. Viljug alhliða hryssa undan Hnotu gömlu.

Það er löngu kominn tími á að setja inn myndir af hrossunum. Hér er Freisting frá Fellskoti 5 v. hryssa undan Hugmynd fr...
06/05/2021

Það er löngu kominn tími á að setja inn myndir af hrossunum. Hér er Freisting frá Fellskoti 5 v. hryssa undan Hugmynd frá Fellskoti og Sjóði frá Kirkjubæ. Freisting er búin að vera í tamningu hjá Birgittu og Þorgeiri í vetur og hér er Þorgeir á Freistingu í góða veðrinu í gær.

22/03/2021

Svalur frá Fellskoti
Faðir: Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Móðir: Spes frá Fellskoti
Mjög spennandi foli sem verður 4v í vor.
Birgitta Bjarnadóttir Þorgeir Ólafsson

Fjörurra vetra folinn Hrynjandi frá Fellskoti fór í byggingadóm í Spretti í byrjun júní. Hann fékk 8,19 fyrir byggingu o...
09/06/2020

Fjörurra vetra folinn Hrynjandi frá Fellskoti fór í byggingadóm í Spretti í byrjun júní. Hann fékk 8,19 fyrir byggingu og þar af 8,5 fyrir höfuð, háls og herðar, bak og lend og samræmi og 9 fyrir prúðleika. Hæfileikadómur bíður næsta árs. Hann er síðasta afkvæmi Hnotu gömlu frá Fellskoti og faðirinn er Gaumur frá Auðsholtshjáleigu. Þorgeir og Birgitta hafa tamið hann í vetur og nú fer hann í frí til haustsins.

Fórum í göngutúr og kíktum á stóðhestana. (Allir að hlýða Víði og fara í göngutúr.) Þeir eru bara tveir og hafa það gott...
10/04/2020

Fórum í göngutúr og kíktum á stóðhestana. (Allir að hlýða Víði og fara í göngutúr.) Þeir eru bara tveir og hafa það gott í blíðunni. Þessi skjótti heitir Svalur frá Fellskoti og verður 3.v. í vor. Hann er undan Spes frá Fellskoti og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum. Í fyrrasumar reitti hann af sér allt fax en það er vaxið aftur sem betur fer. Á ekki videó af honum nema þegar hann var folald.

Við fórum með tvö folöld á folaldasýningu Hrossaræktarfélags Biskupstungna s.l.laugardag. Þau stóðu sig bæði mjög vel og...
29/02/2020

Við fórum með tvö folöld á folaldasýningu Hrossaræktarfélags Biskupstungna s.l.laugardag. Þau stóðu sig bæði mjög vel og stóðu efst í sínum flokkum.
Snillingur frá Fellskoti móálóttur undan Spes frá Fellskoti og Gaumi frá Auðsholtshjáleigu stóð efstur í hestaflokki og hryssan Fylking frá Fellskoti jarpskjótt stóð efst í hryssuflokknum. Hún er undan Hugmynd frá Fellskoti og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum.

We went with two foals at foal show Hrossaræktarfélags Biskupstungna last Saturday.They made a good trip and were in first place in their classes.
Snillingur from Fellskot mother Spes from Fellskot and father Gaumur from Auðsholtshjáleiga was in 1. place in horse group and the mare Fylking from Fellskot was in 1.place of the mare group.Her mother is Hugmynd from Fellskot and the father is Hákon from Ragnheiðarstaðir.

22/02/2020

Þorgeir og Snilld frá Fellskoti stóðu sig snilldar vel í gær í Uppsveitadeildinni í fimmgangi.
Hann var annar eftir forkeppnina og hélt því sæti og mátti litlu muna að þau næðu efsta sætinu.

Þorgeir og Snilld fóru líka í fjórganginn í uppsveitadeildinni og voru þar í B úrslitum og enduðu í 6. Sæti.

Glæsilegur árangur hjá Þorgeir sem nú er efstur í einstaklingskeppninni eftir þessi tvö mót.
Þorgeir Ólafsson

Address

Fellskot
Selfoss
801

Telephone

8998616

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fellskotshestar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share