Það var á haustdögum 2000 að nokkrir ungir bjartsýnismenn veltu fyrir sér að stofna knattspyrnufélag sem tæki þátt í Íslandsmóti. Þá um haustið höfðu þeir félagarnir lent í öðru sæti í sunnlensku utandeildinni með liði sínu. nóvember 2000. Stofnfélagar voru 24 talsins. Á fundinum var fyrsta stjórn félagsins kosin og hafa litlar breytingar orðið á henni síðan þá. Fyrsta verk stjórnar var að ráða þjálfara. Til starfsins var ráðinn Sigurður B. Jónsson, sjúkranuddari í Hveragerði, reyndur leikmaður m.a. með ÍA, KR og FH. Árborg hóf keppni á Íslandsmótinu innanhúss 2001 í 4. deild. Það er skemmst frá því að segja að liðið sigraði alla sína leiki, lauk keppni með markatöluna 21-5 og færðist upp um deild. Á Íslandsmótinu utanhúss 2001 lauk liðið keppni í 4. sæti B-riðils 3. deildar með 13 stig og þótti það viðunandi árangur á fyrsta ári félagins í Íslandsmóti. Félagið komst í 32-liða úrslit Coca-Cola bikars KSÍ en féll naumlega úr keppni eftir tap gegn 1. deildarliði Stjörnunnar í mjög eftirminnilegum leik. Um haustið var Árborg héraðsmeistari í meistaraflokki karla.
Í janúar 2002 keppti Árborg enn á ný innanhúss og fór aftur taplaust gegnum mótið og rakleiðis upp í 2. deild með markatöluna 21-3. Um vorið stóð félagið fyrir deildarbikarkeppni 3. deildarliða ásamt Ægismönnum. Þar varð Árborg í 2. sæti með jafnmörg stig og Bruni, sem sigraði. Íslandsmótið utanhúss hófst síðan í maí og lauk liðið keppni í 3. sæti A-riðils 3. deildar með 23 stig. Stefnan var sett á úrslitakeppni deildarinnar en það takmark náðist ekki. Liðið komst ekki á skrið í upphafi móts og munaði í lokin 5 stigum á Árborg og KFS sem fór í úrslitakeppnina ásamt Fjölni. Bæði þessi lið fóru síðan upp í 2. deild. Árborg féll úr keppni í fyrstu umferð Coca-Cola bikars KSÍ þegar liðið tapaði 4-1 fyrir U23 ára liði Þróttar Rvk. Varð héraðsmeistari annað árið í röð. Í desemberbyrjun var síðan aftur haldið á Íslandsmótið innanhúss þar sem liðið hélt sæti sínu í næst efstu deild en vann aðeins einn sigur í þremur leikjum og lauk þar með óslitinni sigurgöngu liðsins innanhúss. Sigurður B. var í brúnni árið 2002 og var endurráðinn fyrir tímabilið 2003.
Árið 2003 hóf Árborg leik með því að tryggja sér Inghólsbikarinn, eftir harða keppni við Skallagrím. Að hausti var síðan HSK meistaratitillinn í húsi, þriðja árið í röð. Þetta voru einu afrek liðsins á árinu því gengið í Íslandsmótinu var ekki samkvæmt væntingum. Liðið gerði jafntefli í tveimur fyrstu leikjunum og eyddi því sumrinu í að elta efstu liðin, Leikni og Reyni. Þrátt fyrir að lenda aðeins í 4. sæti var Árborg eina liðið sem sýndi toppliðunum almennilega samkeppni. Tap gegn Hamri og jafntefli við Afríku voru úrslit sem gerðu ekkert til að hífa okkur upp töfluna. Liðið féll úr leik í 1. umferð bikarkeppninnar eftir tap gegn Víði. Ný fjáröflun var uppi á borðinu en Árborg sá um hátíðina Sumar á Selfossi og heppnaðist afskaplega vel. Í lok árs var ráðinn nýr þjálfari til félagsins, Páll Guðmundsson, margreyndur kappi sem lék m.a. með Leiftri, ÍBV og ÍA. Fyrsta verkefni hans var að fara með liðið á Íslandsmótið innanhúss þar sem Árborg vann ekki leik og féll niður í 3. deild.
Árið 2004 náði liðið sínum besta árangri á Íslandsmótinu. Árborg lauk keppni í 3. deildar, aðeins tveimur stigum frá úrslitasæti. Liðið lék vel þegar líða tók á sumarið og var með í baráttunni fram í lokaumferðina. Árborg féll úr keppni í VISA-bikarnum í 32-liða úrslitum eftir framlengdan og mjög eftirminnilegan leik gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Liðið hélt vormót fyrir 3. deildarliðin, HM-bikarinn og hafnaði þar í 2. sæti á eftir Gróttu. HSK bikarinn var líka í húsi, fjórða árið í röð, en nú eftir óvenju harða keppni. Árborg keppti fyrir hönd HSK á Landsmóti UMFÍ. Uppskeran var 6. sætið en liðið vakti athygli fyrir skemmtilega framkomu innan vallar sem utan þar sem léttleikinn var í fyrirrúmi. Stærstu fjáraflanir þessa árs var Sumar á Selfossi og þökulagning í Fosslandi. Árborgarinn kom út að venju og vakti mikla lukku eins og alltaf. Anno horribilis, eða árið 2005. Liðið byrjaði illa í deildarbikarnum og vann ekki leik frekar en fyrri daginn, en var í sterkum riðli. umferð VISA-bikarsins eftir bráðabana í vítaspyrnukeppni gegn Hvíta riddaranum. Liðinu gekk síðan afleitlega í upphafi Íslandsmótsins og var aðeins með þrjú stig eftir fyrri umferðina. Liðið hysjaði upp um sig buxurnar í síðari umferðinni og tapaði aðeins tveimur leikjum, gegn Reyni og Sindra sem bæði fóru upp í 2. Liðið glataði síðan HSK-bikarnum eftir fjögurra ára sigurgöngu og hlaut bronsverðlaun í mótinu. Að loknu tímabilinu var Sigurður Einar Guðjónsson, fyrrum leikmaður liðsins, ráðinn þjálfari. Hans fyrsta verkefni var Íslandsmótið innanhúss þar sem liðið náði sínum besta árangri og hélt sæti sínu í B-deild.
Árið 2006 rétti liðið töluvert úr kútnum undir stjórn nýs þjálfara. Í deildarbikarnum vann liðið sinn fyrsta leik og lauk leik í 2. sæti riðilsins í C-deildinni. Í VISA-bikarnum vann liðið stórsigur á Hrunamönnum í 1. umferð en féll svo úr leik í 2. umferð eftir spennandi leik við ÍR-inga á útivelli. Liðið fór að venju hægt af stað á Íslandsmótinu en tapaði aðeins einum leik í síðari umferðinni og vann sögulega sigra. Liðið lauk leik í 5. sæti B-riðils. Á Íslandsmótinu innanhúss hélt liðið sæti sínu í B-deild í fyrsta skipti. Þjálfarasamningur við Sigurð Einar var endurnýjaður og Jóhann Bjarnason, fyrirliði til margra ára, ráðinn inn í þjálfarateymið.
Árið 2007 hófst að venju á deildarbikar, sem nú kallaðist Lengjubikarinn. Árborg varð í 3. sæti í jöfnum riðli. Um miðjan apríl sagði Sigurður Einar upp störfum af persónulegum ástæðum og Jóhann Bjarnason tók alfarið við þjálfun liðsins. Stærstu fjáraflanir félagsins, fyrstu árin, voru útplöntum á trjám í samstarfi við Suðurlandsskóga. Þar hafa leikmenn og stuðningsmenn nú plantað samtals 75.000 plöntum á fjórum jörðum á Suðurlandi. Þá er árlega haldinn stuðningsmannadansleikur þar sem fram kemur fjöldi hljómsveita. Auk þess gefur félagið út kynningarblað, Árborgarann þar sem styrktaraðilar félagsins eru kynntir. Síðustu fjögur ár hefur stærsta fjáröflun félagins verið umsjón með hátíðinni Sumar á Selfossi. Undir stjórn Árborgara hafa hátíðarhöldin farið vaxandi ár frá ári og fest sig í sessi hjá bæjarbúum.