25/02/2026
❤️♠️Fjórða og síðasta spilakvöldinu er þá lokið!♦️♣️
Spilað var á 7 borðum og voru nokkur ný andlit í hópnum. Samtals spiluðu 44 mismunandi spilarar þetta árið sem okkur þykir ofboðslega skemmtilegt.
Stigahæsta kona kvöldsins var Peta með glæsilega 143 slagi og stigahæsti karlinn var Tristan með 128 slagi. Þau fengu að sjálfsögðu skemmtileg borðspil í verðlaun.
Setuverðlaunin hlaut Guðrún, en hún sat hvorki meira né minna en 15 sinnum á borði 6! Það verður seint toppað 👏
Að loknum öllum fjórum kvöldunum voru það þrjú hæstu kvöld hvers spilara sem töldu til heildarstiga.
🥇 1. sæti: Peta
🥈 2. sæti: Freyja
🥉 3. sæti: Villi
Peta stóð uppi sem heildarsigurvegari og hlaut í verðlaun gistingu hjá
Heima Holiday Homes 🎉🏡
Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna, gleðina og frábæra stemningu á öllum fjórum kvöldunum !
Við hvetjum fólk til að æfa sig heima og kenna næstu kynslóðu listina að spila og sjáumst sem flest að ári!
Kveðja,
Spilanefndin, Aníta, Lára & Freyja❤️✨