Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Körfuknattleiksdeild Tindastóls Körfuknattleiksdeild Tindastóls

instagram: tindastollkarfa
email: [email protected]

Ade Murkey gengur til liðs við Tindastól.Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Ade Murk...
27/08/2026

Ade Murkey gengur til liðs við Tindastól.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Ade Murkey um að leika með liðinu á komandi tímabili. Murkey kemur inn í leikmannahóp Tindastóls í stað Jalen Adaway, sem mun ekki leika með Tindastól í vetur.

Murkey er öflugur bakvörður/vængmaður sem kemur með mikla reynslu úr atvinnumennsku, meðal annars úr NBA G-deildinni, þar sem hann hefur leikið með liðum á borð við Iowa Wolves, Stockton Kings og Wisconsin Herd. Hann á einnig að baki leik með Sacramento Kings í NBA-deildinni og verður þar af leiðandi annar leikmaður í sögu Tindastóls sem á leik í NBA. Hinn leikmaðurinn var Pétur Guðmundsson, sem kom til Tindastóls árið 1990 frá Bandaríkjunum.

Murkey er 196 cm hár leikmaður, fæddur árið 1998 í Minneapolis í Bandaríkjunum, og lék háskólakörfubolta með Denver Pioneers. Hann hefur á ferlinum sýnt styrk sinn sem fjölhæfur leikmaður sem getur skorað, skapað fyrir aðra og lagt mikið til varnarlega.

Murkey þekkir íslenska körfuboltann vel eftir að hafa leikið með Álftanesi, þar sem hann var áberandi í efstu deild og sýndi að hann getur haft mikil áhrif á báðum endum vallarins.

Arnar, þjálfari Tindastóls, segir Murkey vera leikmann sem styrki liðið á fleiri en einn hátt: „Murkey er bæði góður skorari og frákastari. Hann bætir einnig hæð í vængstöðurnar okkar, sem gefur okkur skemmtilega möguleika í varnarleiknum.“

Ade Murkey segist spenntur fyrir tækifærinu hjá Tindastóli: „I’m super excited for the opportunity to play for Tindastoll. The main objective is to win and that’s what Tindastoll does. I’m looking forward to being able to help them to do that some more this year!“

Við hjá Tindastóli bjóðum Ade Murkey hjartanlega velkominn í Síkið og hlökkum til að sjá hann í vínrauðu treyjunni.

Quinzia Fulmore til Tindastóls!Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska framherjann Quinzia Fulmore um...
24/08/2026

Quinzia Fulmore til Tindastóls!

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska framherjann Quinzia Fulmore um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Quinzia kemur með styrk, reynslu og metnað inn í hópinn og verður spennandi viðbót við liðið okkar.

Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í Tindastólsfjölskylduna og hlökkum til að sjá hana í Síkinu! 🏀

Kæru stuðningsmenn Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur, að vandlega ígrunduðu máli, ákveðið að karlalið félag...
23/08/2026

Kæru stuðningsmenn
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur, að vandlega ígrunduðu máli, ákveðið að karlalið félagsins taki þátt í ENBL tímabilið 2026/2027. Jafnframt var skoðað hvort þátttaka í FIBA Europe Cup væri raunhæfur kostur. Þar hefði liðið þurft að leika 10 leiki frá 8. október og fram að jólum, og mat stjórnin það fyrirkomulag nánast ógerlegt fyrir íslenskt lið á Norðurlandi.
Í ENBL keppninni mun Tindastóll leika þrjá leiki í einni ferð í lok september, sem styttir biðina eftir alvöru leikjum og nýtist liðinu vel í undirbúningi fyrir tímabilið. Á tímabilinu sjálfu verða fjórir heimaleikir leiknir á Sauðárkróki og líkur eru á að þekkt lið komi í heimsókn. Þá fer liðið einnig eina ferð erlendis og leikur þar einn leik. Allir heimaleikir Tindastóls í ENBL verða eingöngu aðgengilegir á Tindastóll TV og útileikirnir verða einnig sýndir þar.
Er það von stjórnar kkd Tindastóls að þetta muni auka skemmtun stuðningsmanna og verða góð kynning fyrir Skagafjörð í leiðinni. Við hlökkum til að takast á við verkefnið með liðinu, samstarfsaðilum og okkar frábæru stuðningsmönnum. Saman getum við gert tímabilið 2026/2027 að eftirminnilegri upplifun fyrir félagið og alla Skagfirðinga.

Í byrjun ágúst fór Suður-Ameríkukeppni kvenna í körfubolta (FIBA South American Women's Championship) fram í Zárate í Ar...
13/08/2026

Í byrjun ágúst fór Suður-Ameríkukeppni kvenna í körfubolta (FIBA South American Women's Championship) fram í Zárate í Argentínu. Lið Argentínu stóð uppi sem sigurvegarar og nýr leikmaður kvennaliðs Tindastóls, Florencia Chagas, var valin í úrvalslið mótsins (All-Star Five). Flor, sem er 180cm skotbakvörður á að baki glæsilegan feril en hún var m.a. valin í WNBA-nýliðavalinu 2021 af Indiana Fever. Hún hefur einnig leikið í efstu deildum á Ítalíu, Spáni og Frakklandi. Á nýafstöðnu Suður-Ameríkumóti landsliða skilaði hún frábærri frammistöðu með meistaraliði Argentínu með 11,6 stig að meðaltali í leik, 2.6 fráköst, 1,4 stoðseningar, og 1,4 stolna bolta.
„Það var mikill heiður fyrir mig að vera valin í úrvalslið mótsins, sérstaklega í ljósi þess að það gerðist samhliða því að landa Suður-Ameríku titlinum með landsliðinu. Þetta er mjög sérstök viðurkenning fyrir alla þá vinnu, metnað og fórnir sem lágu að baki þessu móti. En fyrir mér skiptir árangur liðsins alltaf mestu máli. Að vinna þetta saman og deila sigurstundinni með liðsfélögum mínum er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Fyrir mér snýst sigur ekki bara um lokatölurnar, heldur líka um hugarfarið sem þú byggir upp á vegferðinni. Ég vonast til að koma með þetta hugarfar til Tindastóls: að leggja hart að sér á hverjum degi, hafa trú á hver á annarri, sýna aga og keppnisskap, og gefast aldrei upp þegar á móti blæs. Ég vil miðla af reynslu minni til yngri leikmanna og hjálpa til við að skapa umhverfi þar sem öllum líður vel og fá hvatningu til að bæta sig. Ég er virkilega spennt að koma á Sauðárkrók leggja mitt af mörkum til liðsins.“

Við óskum Flor hjartanlega til hamingju með titilinn, valið í úrvalsliðið og hlökkum mikið til að sjá hana í Síkinu í vetur

Nánar um mótið:

The Official site of FIBA South American Women's Championship : Get live stats, game schedule, standings, news, video highlights, team rosters & player profiles

Hin fjölhæfa Ana Clara Paz frá Argentínu er gengin í raðir Tindastóls og mun leika með kvennaliði félagsins á komandi tí...
04/08/2026

Hin fjölhæfa Ana Clara Paz frá Argentínu er gengin í raðir Tindastóls og mun leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabil. Paz þekkir íslenska körfuboltann vel og kemur með mikilvæga reynslu inn í ungt og metnaðarfullt lið Stólanna.

Ana er 180cm og leikur sem framherji eða bakvörður, hún hefur fjölbreyttan feril að baki og hefur leikið víða, meðal annars hér á landi með Stjörnunni og Hamri/Þór við góðan orðstír. Á ferli sínum hefur hún einnig leikið í heimalandinu Argentínu, Úrúgvæ, Portúgal, Ítalíu, Mexíkó og Kólumbíu, en hún er með tvöfalt ríkisfang, bæði argentískt og ítalskt.

Israel Martín, þjálfari kvennaliðs Tindastóls, fagnar komu Paz og segir reynslu hennar á Íslandi skipta miklu máli: „Ana er frábær fagmaður sem getur spilað í mörgum stöðum í sókninni ásamt því að valda ólíkum stöðum í varnarleiknum. Hún er með öflugan körfuboltaferil og það sem er mjög mikilvægt fyrir okkur er að hún hefur spilað á Íslandi í áður og þekkir íslensku deildina. Það mun hjálpa okkur mikið við að aðlaga hina nýju argentínsku leikmennina, Maca og Flor, að aðstæðum. Hún á eftir að hjálpa okkur mikið og við erum afar ánægð með að fá Anu í okkar raðir.“

Ana segist spennt að koma í Skagafjörðinn: "Ég er rosalega ánægð og þakklát fyrir að leika með Tindastóli. Liðið hefur tekið stór skref á síðustu árum og sýnt hversu öflugt það er. Það verður engin breyting á því í vetur – við erum með mjög heildstætt og gott lið sem ætlar sér alla leið á toppinn. Ég get ekki beðið eftir að fara að vinna með hópnum."

Við bjóðum hana velkomna í Skagafjörðinn og hlökkum til að sjá hana spila í Síkinu í vetur.

Áfram Tindastóll!

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Jalen Adaway um að leika með liðinu á komandi tím...
26/07/2026

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Jalen Adaway um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Jalen er 196 cm bakvörður/vængmaður með sterkan feril að baki úr NCAA, NBA G League og atvinnudeildum beggja vegna Atlantshafsins. Hann lék háskólabolta með Miami University og St. Bonaventure, þar sem hann var valinn í First Team All-Atlantic 10 árið 2022, og hefur síðan sýnt styrk sinn sem atvinnumaður í krefjandi deildum erlendis. Meðal annars varð hann meistari í Slóvakíu með Patrioti Levice.
Adaway er leikmaður sem passar vel inn í Stólana: líkamlega sterkur, árásargjarn, duglegur í fráköstum og tilbúinn að leggja sig allan fram báðum megin á vellinum . Hann getur skorað, sótt af krafti að körfunni og komið með orku sem við vitum að stuðningsmenn Tindastóls kunna að meta.
„This is going to be a special season! I’m grateful to be a part of this team and can’t wait to get to work. I’ve seen a lot of things I’m excited for and will give 110% every time you see me on the court! Let’s go!“
– Jalen Adaway
„Við erum spenntir að vinna með Jalen. Hann er góður íþróttamaður sem getur spilað hörkuvörn. Sóknarlega getur hann bæði búið til með boltann í höndunum og spilað án bolta.“
– Arnar, þjálfari Tindastóls

https://youtu.be/_2eAhMpE1Jc?si=cO0Dr_L2ErfVT86p

Góðan daginn Kkd Tindastols vill þakka öllum sem tóku þátt í miðasôlu og gæslu á Landsmóti hestamanna á Hólum. Alls tóku...
12/07/2026

Góðan daginn

Kkd Tindastols vill þakka öllum sem tóku þátt í miðasôlu og gæslu á Landsmóti hestamanna á Hólum. Alls tóku 40 manns þátt í verkefninu sem unnu í 518 klst . Einnig viljum við þakka Hestamannafélaginu Skagfirðing kærlega fyrir samstarfið . Einnig var deildin með leigu á led skiltum a Hólum ásamt uppsetningu .
#❤️🏀💪🏼

Dagur Þór, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls í skemmtilegu viðtali við Feyki
24/06/2026

Dagur Þór, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls í skemmtilegu viðtali við Feyki

Þann 18. júni fór fram aðalfundur körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þar kom í ljós ángæjuleg niðurstaða en hagnaður var á rekstri deildarinnar tímabilið

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur náð samkomulagi við hinn gríðarlega reynslumikla leikstjórnanda Dee Bost um að gan...
24/06/2026

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur náð samkomulagi við hinn gríðarlega reynslumikla leikstjórnanda Dee Bost um að ganga til liðs við félagið.
Bost kemur til Tindastóls með feril sem talar sínu máli. Hann hefur leikið í sterkustu keppnum Evrópu, þar á meðal EuroLeague, EuroCup og Basketball Champions League, auk þess að spila með búlgarska landsliðinu.
Á ferlinum hefur hann meðal annars leikið með AS Monaco, Žalgiris Kaunas, Galatasaray, ASVEL, Strasbourg, Khimki, Budućnost, Zielona Góra og Flamengo.
EuroCup-meistari með AS Monaco, pólskur meistari og verðmætasti leikmaður úrslitanna með Zielona Góra, auk titla í Svartfjallalandi og Frakklandi.
Dee Bost er leikstjórnandi með leiðtogahæfileika, mikla reynslu og getu til að stýra leiknum þegar mest á reynir.
„Það er mikill heiður fyrir Tindastól að fá leikmann með reynslu, gæði og feril Dee Bost til liðs við okkur. Koma hans sýnir metnað deildarinnar og við erum sannfærð um að hann muni verða mikilvægur hluti af liðinu og stemningunni í Síkinu,“ segir Dagur Þór Baldvinsson formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
„Dee er leikmaður sem kemur með mikla reynslu, sigurhugarfar og hæfileika til að gera samherja sína betri. Hann hefur spilað í stórum leikjum á háu stigi og við teljum að hans leiðtogahlutverk, yfirvegun og gæði sem leikstjórnandi muni hjálpa liðinu mikið,“ segir Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma til Tindastóls og taka þátt í því sem félagið er að byggja upp. Ég hef heyrt frábæra hluti um stuðningsmennina, stemninguna í Síkinu og metnaðinn hjá félaginu. Ég hlakka til að hitta alla, leggja mitt af mörkum og berjast fyrir Tindastól,“ segir Dee Bost.
Við bjóðum Dee Bost hjartanlega velkominn í Tindastólsfjölskylduna.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við argentínsku landsliðskonurnar Florenciu Chagas og Macarenu Durso fyrir k...
21/06/2026

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við argentínsku landsliðskonurnar Florenciu Chagas og Macarenu Durso fyrir komandi tímabil.
Florencia er ungur og öflugur bakvörður með mikla alþjóðlega reynslu, en Macarena er reynslumikill leikstjórnandi sem kemur síðast frá Spáni þar sem hún lék á háu stigi. Báðar eru þær með Evrópsk vegabréf.
„Flor er ung en kemur samt með mikla alþjóðlega reynslu. Hún var valin í WNBA-nýliðavalinu og er mjög öflugur leikmaður sem getur skorað á marga ólíka vegu. Ég tel að hún muni hafa mikil áhrif á deildina og við hlökkum mikið til að sjá hana spila fyrir Tindastól. Macarena kláraði síðasta tímabil á Spáni á mjög háu stigi. Hún er kraftmikill leikmaður sem passar vel inn í íslenska körfuboltann, fljót og sterk í vörn á boltann, góð skytta fyrir utan þriggja stiga línuna og getur bæði skorað sjálf og skapað færi fyrir liðsfélaga sína. Flor og Maca þekkjast vel úr argentínska landsliðinu og það er mikill styrkur fyrir okkur að fá þær báðar inn í hópinn,“ segir Israel Martin . Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar í Síkið

Address

Skagfirðingabaut
Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Körfuknattleiksdeild Tindastóls posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Körfuknattleiksdeild Tindastóls:

Shortcuts

Share