ÓB-mót Tindastóls

ÓB-mót Tindastóls Upplýsingasíða fyrir Stúlknamót Tindastóls fyrir 6. flokk kvenna síðustu helgi í júní hvert ár.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á Króksmót ÓB og óskum ykkur góðrar heimferðar.Hér eru þeir óskilamunir sem urðu e...
21/06/2026

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á Króksmót ÓB og óskum ykkur góðrar heimferðar.

Hér eru þeir óskilamunir sem urðu eftir, eftir helgina.

21/06/2026

8. flokkur hefur sitt mót á gervigrasinu núna kl. 11:00 - endilega kíkið á krakkana og hvetjið þau áfram.

Það er líklega mikið keppnisskap í stelpunum í dag og foreldrar og þjálfarar hvattir til að sýna stillingu á hliðarlínunni og leyfa stelpunum að njóta sín við spilamennskuna 🩷

Bikar er veittur fyrir efsta sætið í hverjum riðli, það er gert fyrir utan íþróttahúsið þegar síðasti leikur hefur verið spilaður 🏆

Klukkan 15:30 byrja leikir og fjör á vallarsvæðinu næst íþróttahúsinu. Þar verður skotkeppni og battamót - verðlaun í bo...
20/06/2026

Klukkan 15:30 byrja leikir og fjör á vallarsvæðinu næst íþróttahúsinu. Þar verður skotkeppni og battamót - verðlaun í boði fyrir sigurvegara. Fullorðnir geta keppt líka og fengið verðlaun ☺️

Kvöldvakan verður haldin inni í íþróttahúsinu og byrjar kl. 19:30 - gengið er inn um Árskóla - þar mun ÁGÚST sjá um að skemmta hópnum. Allir þurfa að fara úr skóm áður en farið er inn í salinn og passa upp á að ganga vel um.

Ábending!!! Við viljum benda mótsgestum á að leggja í löggild bílastæði í samræmi við þessa mynd. Það eru til að mynda b...
20/06/2026

Ábending!!! Við viljum benda mótsgestum á að leggja í löggild bílastæði í samræmi við þessa mynd. Það eru til að mynda bílastæði fyrir ofan íþróttahúsið sem má nota, milli blokkanna og hjá verknámshúsinu.

Þar sem að sólin er lítið að láta sjá sig í dag þá færist 8. flokks mótið sem átti að vera kl. 16:00 í dag yfir til morg...
20/06/2026

Þar sem að sólin er lítið að láta sjá sig í dag þá færist 8. flokks mótið sem átti að vera kl. 16:00 í dag yfir til morgundagsins kl. 11:00. á gervigrasvellinum. Reiknum með að vera með hoppukastala á svæðinu ef að veðrið leyfir og grillaðar pylsur í boði eftir að mótið klárast 🌭

Það er aldeilis stór dagur hjá fótboltastelpunum okkar í dag. Við minnum foreldra á að klæða sig eftir veðri og næla sé ...
20/06/2026

Það er aldeilis stór dagur hjá fótboltastelpunum okkar í dag. Við minnum foreldra á að klæða sig eftir veðri og næla sé í rjúkandi kaffibolla í soppunni og kannski eitt súkkulaðistykki með.

Fyrstu leikir hefjast kl. 10:30 og svo tökum við stutta hádegispásu um 12 leitið. Leikjaplanið má finna hér: https://obmot.torneopal.com/
Eftir að leikjum dagsins lýkur verður battamót á efsta svæðinu, skotkeppni og annað skemmtilegt. Fullorðnir eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í skotkeppninni en verðlaun verða veitt á kvöldvökkunni kl. 19:30.
Skráning á Battamótið fer fram í anddyri Árskóla og í sjoppunni til kl. 15 en mótið sjálft hefst kl. 15:30.

Þjálfarakaffi er í íþróttahúsinu sem og mótsstjórnin.

19/06/2026

Mótsgjafir eru afhentar í anddyri Árskóla til kl. 21:00. Á morgun er hægt að nálgast þær hjá mótsstjórn í íþróttahúsinu.
ATH öll mótsgögn eru afhent einum forsvarsmanni hvers liðs. Ekki þarf að sækja fyrir allt félagið.

Við erum heldur betur farin að verða spennt fyrir helginni og hlökkum til að taka á móti ykkur.Dagskrá og leikjaplan er ...
19/06/2026

Við erum heldur betur farin að verða spennt fyrir helginni og hlökkum til að taka á móti ykkur.

Dagskrá og leikjaplan er komið inn á www.kroksmot.is og við hvetjum ykkur til að fylgjast með þar.
Dagskrá: https://kroksmot.is/dagskra/
Leikjaplan: https://obmot.torneopal.com/

Á laugardag, eftir leiki dagsins, verður margt um að vera á vallarsvæðinu þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Battamót fyrir keppendur: 2 og 2 saman þar sem keppt er í fótbolta á litlum velli - verðlaun veitt á kvöldvöku 🏆 Skráning fer fram í sjoppunni.
Skotkeppni fyrir bæði keppendur og eldri - mælum sérstaklega með að þjálfarar mæti og sýni hvað þeir geta 🕺
Hoppukastalar fyrir þau yngstu ef veður leyfir og alls konar fleira skemmtilegt.

Framkvæmdir standa yfir í sundlaug Sauðárkróks og eingöngu er opið í heita potta og gufubað á laugardag og sunnudag. Við stöndum hins vegar svo vel að hafa sundlaugar einnig í Varmahlíð og á Hofsósi sem við hvetjum ykkur til að nota.

Öll gisting fer fram í Árskóla sem opnar kl. 18:00 í dag. Inngangurinn er eins og myndin sýnir.

Nú styttist heldur betur í Króksmót ÓB og hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga.🥝 Óþol/ofnæmi: Hér er skrán...
15/06/2026

Nú styttist heldur betur í Króksmót ÓB og hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga.

🥝 Óþol/ofnæmi: Hér er skráningareyðublað fyrir þær sem eru með óþol, ofnæmi eða eru á sérfæði https://forms.gle/UtmzScn9jSTxfXPg6

⛺️ Tjaldsvæði: Er eingöngu staðsett uppi á nöfum (ekið upp hjá kirkjunni). Þar sem flutningur tjaldsvæðisins hefur staðið yfir þá opnar salernisaðstaðan ekki fyrr en fimmtudaginn 18. júní og vert að hafa í huga ef einhverjir ætla að mæta snemma. Ekki þarf að skrá sig á svæðið heldur bara mæta.

🏃‍♀️‍➡️ 8. flokks mót: eins og undanfarin ár þá verður 8. flokks mót haldið á laugardeginum kl. 16:00 sem er tilvalið fyrir yngri systkini að skrá sig á. Frekari upplýsingar eru hér: https://kroksmot.is/8fl/

📋 Leikjaplan og dagskrá: verið er að klára að fínpússa dagskrá mótsins og stilla upp leikjaplani og við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með á www.kroksmot.is og www.facebook.com/stulknamot

Ertu að leita þér að gistingu á meðan á Króksmótum stendur? Endilega kíktu á https://www.visitskagafjordur.is/gisting og skoðaðu hvað er í… Read More

Samhliða Króksmóti ÓB er boðið upp á mót fyrir 8. flokk. Leikið er í þriggja manna liðum og hægt er að skrá bæði lið og ...
12/06/2026

Samhliða Króksmóti ÓB er boðið upp á mót fyrir 8. flokk. Leikið er í þriggja manna liðum og hægt er að skrá bæði lið og einstaklinga sem við sjáum um að raða í lið ⚽️
Mótið er tilvalið fyrir t.d. yngri systkini sem vilja líka fá að spreyta sig á vellinu og fara heim með medalíu 🏅

Skráning og frekari upplýsingar hér: https://kroksmot.is/8fl/

Address

Íþróttavöllur
Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ÓB-mót Tindastóls posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ÓB-mót Tindastóls:

Share

Category