Badmintondeild Tindastóls

Badmintondeild Tindastóls Badmintondeild Tindastóls

Umhverfisdagur FISK Seafood er á morgun!Forskráning á: https://fisk.is/skraning/ Sjáumst á morgun! :D
05/05/2026

Umhverfisdagur FISK Seafood er á morgun!
Forskráning á: https://fisk.is/skraning/
Sjáumst á morgun! :D

Visit the post for more.

Meistaramót Íslands fór fram um helgina í íþróttahúsinu við Strandgötu. Tindastóll sendi tvo keppendur til leiks. Júlíu ...
27/04/2026

Meistaramót Íslands fór fram um helgina í íþróttahúsinu við Strandgötu. Tindastóll sendi tvo keppendur til leiks. Júlíu Marín sem keppti í einliðaleik í 2.deild. Hún stóð sig vel en tapaði naumlega í 8 liða úrslitum.
Emma Katrín spilaði einliðaleik í Úrvalsdeild og spilaði í 8 liða úrslitum gegn ríkjandi Íslandsmeistara, Emma spilaði vel en tapaði. Í tvenndarleik spilaði Emma í 1.deild, ásamt Ásgeiri frá Samherja. Þau náðu sér ekki á strik og töpuðu í fyrstu umferð. Í tvíliðaleik kvenna spilaði Emma með Lenu úr BH í 1.deild. Þær voru ríkjandi Íslandsmeistarar og gerðu sér lítið fyrir og vörðu titilinn. Emma Katrín er því annað árið í röð Íslandsmeistari í tvíliðaleik kvenna 1.deild. Til hamingju Emma!

Myndir frá Badmintonsambandi Íslands

Badmintonmótin farin af stað!Helgina 4.-5.okt fór fram Unglingamót TBS á Siglufirði. Tindastóll sendi þrjá keppendur sem...
13/10/2025

Badmintonmótin farin af stað!

Helgina 4.-5.okt fór fram Unglingamót TBS á Siglufirði. Tindastóll sendi þrjá keppendur sem öll kepptu bæði í einliða- og tvíliðaleik. Aron Elmar keppti í U11B, Jóel Darri í U11C, og saman í tvíliðaleik U11A. Þeir spiluðu marga hörkuleiki og sýndu frábær tilþrif. Júlía Marín spilaði í U17B í bæði einliðaleik og tvíliðaleik.

Helgina 11.-12.okt fór fram TBR Opið, í húsakynnum TBR í Laugardal. Tindastóll sendi einn keppanda til leiks, Emmu Katrínu. TBR Opið er fullorðinsmót og er keppt í úrvalsdeild, 1.deild og 2.deild. Emma Katrín spilaði í einliðaleik í úrvalsdeild og stóð sig vel á þessu fyrsta móti í úrvalsdeild. Emma spilaði svo í 1.deild í tvíliðaleik ásamt Lenu Rut frá BH og sigruðu þær mótið.

Badmintonkeppnisveturinn fer sannarlega vel af stað hjá iðkendum Tindastóls.

Framundan eru æfingabúðir BSÍ, helgina 17.-19.okt sem Emma Katrín tekur þátt í,

Nordic Camp æfingabúðirnar fara nú fram í Kristinssand í Noregi. Þátttakendur eru frá öllum Norðurlöndunum auk Eystrasal...
02/07/2025

Nordic Camp æfingabúðirnar fara nú fram í Kristinssand í Noregi. Þátttakendur eru frá öllum Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna. Ísland sendir 6 fulltrúa og er ein þeirra. Emma fékk meðal annars styrk til fararinna úr Minningarsjóð Rúnars Inga Björssonar sem aðalstjórn Ungmennafélagins Tindastóls sér um.
Á instagram aðgangi Badmintondeildarinnar má fylgjast með ferðinni og lífinu í æfingabúðunum.

Tindastóll sendi tvo þátttakendur til keppni í Sandefjord í Noregi um nýliðna helgi og afraksturinn eitt gull, eitt silf...
29/05/2025

Tindastóll sendi tvo þátttakendur til keppni í Sandefjord í Noregi um nýliðna helgi og afraksturinn eitt gull, eitt silfur og eitt brons

Tveir keppendur frá badmintondeild Tindastóls tóku í vikunni þátt í Sandefjord Open mótinu sem fer fram í bænum Sandefjord í Noregi. Keppendur á mótinu eru

Takk!
05/05/2025

Takk!

Opið þakkarbréf til FISK Seafood frá Aðalstjórn Tindastóls.

🏆🏆 Tveir Íslandsmeistaratitlar til Tindastóls!Meistaramót Íslands fór fram í húsnæði TBR við Gnoðarvog dagana 24.-26. ap...
27/04/2025

🏆🏆 Tveir Íslandsmeistaratitlar til Tindastóls!

Meistaramót Íslands fór fram í húsnæði TBR við Gnoðarvog dagana 24.-26. apríl. Tindastóll sendi tvo keppandur til leiks, Emmu Katrínu Helgadóttur, sem keppti í 1.deild og Júlíu Marín Helgadóttur sem keppti í 2.deild. Júlía keppti í einni grein, einliðaleik og stóð sig vel en varð úr í 8 liða úrslitum. Emma Katrín spilaði mjög vel og vann mótið sannfærandi, án þess að tapa lotu í bæði einliðaleik og tvíliðaleik, með meðspilara sínum, Lenu úr BH. Í tvenndarleik spilaði Emma með Rúnari Gauta úr BH en þau komust ekki í úrslit að þessu sinni.

Emma Katrín er því tvöfaldur Íslandsmeistari í 1.deild í badminton!

Frekari fréttir af úrslitum mótsins má finna á heimasíðu Badmintonsambandsins, www.badminton.is

Íslandsmeistaratitill norður og alls þrjú á verðlaunapalli!Íslandsmót unglinga fór fram í húskynnum TBR um nýliðna helgi...
07/04/2025

Íslandsmeistaratitill norður og alls þrjú á verðlaunapalli!

Íslandsmót unglinga fór fram í húskynnum TBR um nýliðna helgi. Tindastóll sendi 12 keppendur til leiks og átti fulltrúa í öllum aldursflokkum, aldrei hafa fleiri keppendur tekið þátt fyrir hönd Tindastóls! Tindastólskrakkarnir, sem mörg hver voru að taka þátt í sínu fyrsta móti stóðu sig með einstakri prýði og náðu frábærum árangri.
Í U11 átti Tindastóll fimm fulltrúa, þá Ólaf Bjarna, Karl Goðdal, Sigurþór, Aron Elmar og Jóel Darra. Ekki er keppt til úrslita í þessum aldursflokki en strákarnir stóðu sig allir mjög vel, mörg hörkutilþrif, mikið keppnisskap í ungum mönnum og smitandi leikgleði.
Í U13B átti Tindastóll 4 keppendur, þau Sigurbjörgu Sól sem keppti í einliðaleik og tvenndarleik, Víking Tý sem keppti í einliðaleik og tvenndarleik, Orra Frey sem keppti í einliðaleik og Hauk Frey sem keppti í einliðaleik og tvíliðaleik. Í einliðaleik var keppt í riðlum svo krakkarnir fengu öll nokkra leiki og stóðu sig öll mjög vel.
Í U15A keppti Júlía Marín fyrir hönd Tindastóls í öllum greinum. Hún spilaði til undanúrslita í tvenndarleik og í úrslitum í tvíliðaleik. Júlía Marín ásamt Laufeyju Láru úr BH enduðu í 2.sæti.
Í U17A keppti Emma Katrín í öllum greinum og náði ásamt Iðunni úr TBR Íslandsmeistaratitli í tvíliðaleik!
Í U19B keppti Gísli. Hann lenti í 2.sæti í einliðaleik og í tvíliðleik ásamt Hilmari Veigari úr ÍA.

Frábær árangur hjá Tindastólskrökkunum!

Framundan er Íslandsmót fullorðinna þar sem Emma Katrín mun spila í 1.deild, en hún var Íslandsmeistari í 2.deild í fyrra, og Júlía Marín sem spilar í 2.deild. Íslandsmót fullorðinna fer fram helgina 22.-24.apríl.

"Í æfingabúðum BSÍ um síðastliðna helgi fór fram sérstök úrtaksæfing fyrir ungar badmintonstelpur. Tuttugu efnilegum ste...
24/03/2025

"Í æfingabúðum BSÍ um síðastliðna helgi fór fram sérstök úrtaksæfing fyrir ungar badmintonstelpur. Tuttugu efnilegum stelpum úr badmintonklúbbum víðsvegar af landinu voru boðaðar til að taka þátt í æfingu með landsliðsþjálfara okkar, Kenneth Larsen"

Úrtaksæfingin var fyrir stelpur á aldrinum 12-14 ára og átti Tindastóll einn fulltrúa í hópnum, Júlíu Marín.

Í æfingabúðum BSÍ um síðastliðna helgi fór fram sérstök úrtaksæfing fyrir ungar badmintonstelpur. Tuttugu efnilegum stelpum úr badmintonklúbbum víðsvegar af landinu voru boðaðar til að taka þátt í æfingu með landsliðsþjálfara okkar, Kenneth Larsen og honum til aðstoðar ...

Frábær árangur Tindastólskrakka á badmintonmótum undanfariðUm nýliðna helgi fór Landsbankamót ÍA fram á Akranesi þar sem...
10/03/2025

Frábær árangur Tindastólskrakka á badmintonmótum undanfarið

Um nýliðna helgi fór Landsbankamót ÍA fram á Akranesi þar sem keppt var í einliðaleik og tvenndarleik. Tindastóll sendi 4 keppendur til leiks, þau Sigurbjörgu Sól og Víking Tý sem keppa í U13, Júlíu Marín sem keppir í U15 og Emmu Katrínu sem keppir í U17.
Tindastólskrakkarnir stóðu sig frábærlega og unnu öll til verðlauna. Sigurbjörg og Víkingur urðu í 2.sæti í tvenndarleik, Júlía Marín varð í 2.sæti í einliðaleik og tvenndarleik ásamt Erik Val úr BH og Emma Katrín sigraði báðar sínar greinar, í tvenndarleik spilar hún með Rúnari Gauta úr BH.

Helgina 22.-23.feb fór Óskarsmót KR fram, þar sem einungis er keppt í fullorðinsflokki. Emma Katrín keppti fyrir hönd Tindastóls í 1.deild í öllum greinum. Emma Katrín og Lena úr BH urðu í 2.sæti í tvíliðaleik, Emma og Rúnar Gauti úr BH urðu í 2.sæti í tvenndarleik og Emma Katrín sigraði einliðaleik kvenna.

Framundan hjá Badmintondeild Tindastóls með Reykjavíkurmót fullorðinna helgina 15.-16.mars, þar sem Emma Katrín mun taka þátt, helgina 22.-23.mars eru æfingabúðir landsliða, þar sem Emma Katrín og Júlía Marín taka þátt. Dagana 4.-6.apríl fer Íslandsmót unglinga fram og stefnir í metþáttöku Tindastólskrakka.

Address

Víðigrund 5
Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Badmintondeild Tindastóls posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category