Golfklúbbur Sandgerðis

Golfklúbbur Sandgerðis Golfvöllur í Suðurnesjabæ.

Skráning er hafin! ⛳️🏌️‍♀️Opið mót 😀
12/06/2026

Skráning er hafin! ⛳️🏌️‍♀️
Opið mót 😀

⛳️ Líf og fjör á Kirkjubólsvelli síðustu daga! ⛳️Það hefur verið einstaklega annasamt og skemmtilegt líf á Kirkjubólsvel...
08/06/2026

⛳️ Líf og fjör á Kirkjubólsvelli síðustu daga! ⛳️

Það hefur verið einstaklega annasamt og skemmtilegt líf á Kirkjubólsvelli síðustu daga þar sem kylfingar hafa fjölmennt á völlinn.

Síðasta fimmtudag hélt GOSS, golfklúbbur fyrirtækisins Össurar 70 manna golfmót hjá okkur. Í kjölfarið var lögreglan með lítið mót og að öðru leyti var völlurinn þéttsetinn af hressum kylfingum sem komu svo saman eftir hring í skálanum og á pallinum og fengu sér veitingar.

Á föstudaginn fengum við heimsókn frá ofurhressum konum frá Golfklúbbnum Oddi. Þær mættu í rútu og var mikið stuð í hópnum. Þær spiluðu 18 holur í smá golu og örlítilli ofankomu 😊 Að golfi loknu snæddu þær kvöldverð hjá Örnu þar sem mikil gleði og góð stemning ríkti. Síðar um kvöldið mættu svo Old Boys Víðis sem byrjuðu á keppni úti á velli og komu svo inn í mat til Örnu. Nóg að gera í veitingasölunni þennan daginn!

Í gær fór síðan fram LEK mót sem gekk afar vel og skapaðist skemmtileg stemning bæði á vellinum og í klúbbhúsinu. Á matseðlinum var svo m.a. boðið upp á fisk og franskar sem keppendur og aðrir gestir létu vel af. Veðrið lék við kylfinga og er alltaf ánægjulegt að sjá svo marga njóta golfíþróttarinnar og þeirrar frábæru aðstöðu sem Kirkjubólsvöllur hefur upp á að bjóða.

Við viljum þakka öllum þeim sem hafa heimsótt okkur í vor og byrjun sumars fyrir komuna og góða stemningu. Það er frábært að sjá svona mikla umferð og líf á svæðinu og við hlökkum til að taka á móti fleiri gestum í sumar💚⛳

Rafholtsmóti 2 lauk í gær og er virkilega gaman að sjá hve duglegir félagsmenn eru að mæta á viðburði klúbbsins😀⛳️Bjarni...
04/06/2026

Rafholtsmóti 2 lauk í gær og er virkilega gaman að sjá hve duglegir félagsmenn eru að mæta á viðburði klúbbsins😀⛳️

Bjarni Benediktsson átti frábæran hring, kom inn á 69 höggum og vinnur verðlaunin fyrir besta skor, Vel gert Bjarni og til hamingju 👏👏 Bjarni var einnig í 2. sæti í punktakeppninni svo að þá færast 3. og 4. sætið upp um eitt sæti.

Besta skor: Bjarni Benediktsson, 69 högg

Punktakeppni:
1. Ásgrímur Pálsson, 44 pkt
2. Ísleifur Jón Lárusson, 39 pkt
3. Atli Már Ragnarsson, 39 pkt

Nándarverðlaun:
2. hola: Jóel Freyr
17. hola: Ásgrímur Pálsson

Vinningshafar geta sótt verðlaunin sín í klúbbhúsið.

🏆Bikarkeppnin 🏆1. umferð í Bikarkeppninni er lokið og eru leikir annarrar umferðar þessir. Miðað er við að þessum leikju...
02/06/2026

🏆Bikarkeppnin 🏆

1. umferð í Bikarkeppninni er lokið og eru leikir annarrar umferðar þessir. Miðað er við að þessum leikjum verði lokið 20. júní.

Hægt er að fylgjast með framvindunni á Golfbox ⛳️

Texas scramble skemmtimót ⛳️🏌️Síðastliðinn föstudag fór fram skemmtilegt tveggja manna Texas Scramble-mót þar sem GSG ky...
01/06/2026

Texas scramble skemmtimót ⛳️🏌️

Síðastliðinn föstudag fór fram skemmtilegt tveggja manna Texas Scramble-mót þar sem GSG kylfingar komu saman í góðu veðri og enn betra skapi. Stemningin var frábær í alla staði og greinilegt að þessi skemmtimót eru að falla vel í kramið hjá meðlimum.

Sigurvegarar kvöldsins voru Þröstur Ástþórsson og Jón Ingi Ægisson en nokkur lið kepptust um annað sætið og úrslit lágu ekki fyrir fyrr en að lokinni vippkeppni - sem allir höfðu gaman af.

Við erum strax farin að hlakka til næsta móts 😊⛳️🕺💃

RafholtsmótaröðinFyrsta stigamót klúbbsins fór fram í síðustu viku og í efstu sætunum að þessu sinni voru eftirfarandi k...
29/05/2026

Rafholtsmótaröðin

Fyrsta stigamót klúbbsins fór fram í síðustu viku og í efstu sætunum að þessu sinni voru eftirfarandi keppendur:

Besta skor: Annel Jón Þorkelsson
Punktakeppni:
1. Jóhann Sveinbjörn Hannesson
2. Ásgrímur Pálsson
3. Róbert Pálsson

Vinningshafar geta nálgast verðlaunin í klúbbhúsinu.

Næsta mót í Rafholtsmótaröðinni verður svo næsta miðvikudag, 3. júní og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst í mótið og ekki gleyma að skrá ykkur einnig á sama tíma á venjulegan rástíma.

Mótanefnd

Þessi kylfa fannst á 17. braut í gær, fimmtudag. Eigandi getur haft samband við afgreiðsluna fyrir nánari upplýsingar.
29/05/2026

Þessi kylfa fannst á 17. braut í gær, fimmtudag. Eigandi getur haft samband við afgreiðsluna fyrir nánari upplýsingar.

Maímánuður ekki búinn og nú þegar búið að fara holu í höggi á Kirkjubólsvelli ⛳️Það var Ingiþór Arnar Sigurgíslason sem ...
28/05/2026

Maímánuður ekki búinn og nú þegar búið að fara holu í höggi á Kirkjubólsvelli ⛳️

Það var Ingiþór Arnar Sigurgíslason sem átti draumahöggið sitt á 17. holu í gærkvöldi.

Til hamingju Ingiþór! 👏

Ingiþór Arnar Sigurgíslason gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 17. holu í gær, 27. maí 2026 - fyrsti ásinn á árinu á Kirkjubólsvelli.

⛳️ SKEMMTIMÓT NÆSTA FÖSTUDAG ⛳️Þá er komið að fyrsta innanfélags skemmtimótinu í sumar 😀  en það verður haldið næsta fös...
23/05/2026

⛳️ SKEMMTIMÓT NÆSTA FÖSTUDAG ⛳️

Þá er komið að fyrsta innanfélags skemmtimótinu í sumar 😀 en það verður haldið næsta föstudag og er skráning hafin á Golfbox.

Við hvetjum alla félagsmenn til að vera með - vana, óvana, konur og karla 😀🏌️

Mótanefnd.

Address

Sandgerði
245

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Golfklúbbur Sandgerðis posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share