26/05/2026
Daniel Pozo og Paula Marie Moreno Monsalve krýnd Reykjavíkurmeistarar í tennis 2026
Reykjavíkurmeistaramótið í tennis 2026 lauk um helgina á tennisvellir Víkings í Fossvoginum eftir fjölbreytta og spennandi keppni þar sem leikmenn á öllum aldri kepptu um titla í einliðaleik og tvíliðaleik. Reykjavíkurmeistaramótið er árlegt borgarmót fyrir leikmenn þeirra fjögurra tennisfélaga sem starfa í Reykjavík: Tennisdeild Fjölnis, Tennisdeild Hafna- og mjúkboltafélags Reykjavíkur (HMR), Tennisklúbb Víkings og Tennisdeild Þróttar. Mótið var haldið við góðar aðstæður og bauð upp á marga jafna og dramatíska leiki sem réðust í oddalotum.
Mesta athygli vakti sigur hins 17 ára gamla Daniel Pozo úr Tennisdeild Fjölnis í meistaraflokki karla. Daniel tryggði sér sinn fyrsta Reykjavíkurmeistaratitil með glæsilegum 6-2, 6-2 sigri á Franko Juric úr HMR í úrslitaleiknum. Í undanúrslitum hafði Daniel áður sigrað Jirí Geci úr Tennisdeild Víkings 6-1, 6-0, á meðan Franko Juric lagði Raj K. Bonifacius úr Tennisklúbbi Víkings í hörkuleik, 0-6, 7-6(5), 10-8. Í leik um þriðja sætið hafði Raj síðan betur gegn Jirí Geci, 6-3, 6-3, og tryggði sér þar með bronsverðlaun í meistaraflokki karla.
Í meistaraflokki kvenna sigraði hin aðeins 13 ára gamla Paula Marie Moreno Monsalve úr Tennisdeild Fjölnis. Hún lagði Angela He, 12 ára, úr HMR að velli í úrslitum, 6-1, 6-3, og varð þar með einn yngsti Reykjavíkurmeistari kvenna í seinni tíð. Þetta var jafnframt fyrsti Reykjavíkurmeistaratitill hennar.
Í meistaraflokki karla tvíliðaleik stóðu þeir Ævar Rafn Björnsson úr HMR og Felix Hjálmarsson úr Tennisklúbbi Víkings uppi sem sigurvegarar eftir spennandi úrslitaleik gegn Thomas Beckers og Jonathan Wilkins, báðum úr HMR, 6-4, 3-6, 10-4.
Í 40+ flokki karla sigraði James Carl Deblasse úr Tennisklúbbi Víkings eftir dramatískan úrslitaleik gegn Magnúsi K. Sigurðssyni úr Tennisklúbbi Víkings, 4-6, 6-4, 10-6. Í undanúrslitum vann James einnig öruggan 6-1, 6-1 sigur á Stefáni Árna Thorgeirssyni, á meðan Magnús hafði betur gegn Ævari Rafni Björnssyni, 6-2, 5-7, 10-3.
James Carl Deblasse stóð einnig uppi sem sigurvegari í 30+ flokki eftir sterka frammistöðu í riðlakeppni. Hann tryggði sér titilinn meðal annars með sigri á Felixi Hjálmarssyni 6-3, 4-6, 10-8. Felix endaði í öðru sæti og Valdimar Eggertsson úr HMR hafnaði í þriðja sæti.
Í 50+ flokki varð Magnús K. Sigurðsson úr Tennisklúbbi Víkings Reykjavíkurmeistari eftir jafna og skemmtilega keppni. Magnús tryggði sér titilinn með meðal annars sigri á Jonathan Wilkins úr HMR, 6-4, 4-6, 10-7, en Jonathan endaði í öðru sæti.
Mótið sýndi enn á ný breiddina og styrkinn í íslensku tennislífi, ekki síst hjá yngri leikmönnum þar sem bæði Mini Tennis og U12 flokkar buðu upp á efnilega framtíðarstjörnur. Í U12 flokki sigraði Pól Jóhannes Í Horni úr HMR eftir 6-2, 6-4 sigur á Mariusi Thomas Rein, einnig úr HMR.