Valur Körfubolti

Valur Körfubolti Körfuknattleiksdeild Vals

Styrktarþjálfun í sumar!Í sumar mun Páll Arnar Kandeh, Íþróttafræðingur og styrktarþjálfari, í samvinnu við körfu- og ha...
12/06/2026

Styrktarþjálfun í sumar!

Í sumar mun Páll Arnar Kandeh, Íþróttafræðingur og styrktarþjálfari, í samvinnu við körfu- og handknattleiksdeild Vals bjóða uppá styrktarþjálfunar námskeið fyrir 14-18 ára ungmenni (fædd 2013-2008).

Æfingarnar verð mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga klukkan 14-15, yngri hópar, og klukkan 17:00-18:00, eldri hópur.

Yngri hópur: 2011-2013

Eldri hópur: 2010 og eldri

Yfir tímabilið verður farið í helstu lyftingaræfingar, þolþjálfun og snerpuþjálfun ásamt bætingu á samhæfingu og liðleika.

Æfingarnar taka mið af aldri og getustigi hvers og eins. Áhersla á styrktar-, snerpu- og kraftþjálfun.

Æfingarnar fara fram lyftingarsalnum í N1 höllinni en geta þó verið færðar út þegar veður leyfir.

Námskeið hefst mánudaginn 15.júní.

https://www.abler.io/shop/valur/styrkur/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTk0ODg=?

Þá er frábæru tímabili lokið hjá Minnibolta 6-7 ára hópunum okkar!Í vetur voru 69 drengir skráðir til leiks og 38 stúlku...
07/06/2026

Þá er frábæru tímabili lokið hjá Minnibolta 6-7 ára hópunum okkar!

Í vetur voru 69 drengir skráðir til leiks og 38 stúlkur sem æfðu tvisvar í viku í sitt hvorum hópnum.

Þau fóru á fimm mót í vetur og tóku miklum framförum á hverju einasta móti.

Við enduðum tímabilið með pomp og prakt á glæsilegri uppskeruhátíð í Valsheimili þar sem öll börnin fengu sérsniðið viðurkenningarskjal, við horfðum saman á myndband með viðtölum við börnin og dönsuðum við Valslagið.

Í vetur lögðum við mestar áherslur á grunnatriðin í körfubolta:
- Skot
- Drippl
- Sendingar
- Varnarstaða
- Gabbhreyfingar
- Stjörnuskref
- Fráköst
- Layup
- og margt fleira....

En stærsta áherslan var að kveikja áhugann á körfubolta og íþróttum og kveikja áhugann fyrir því að æfa sig sjálf og fara út að leika sér í körfubolta. Einnig lögðum við mikla áherslu á leikgleðina og að börnin legðu sig fram við að vera góðir liðsfélagar.

Takk fyrir frábæran vetur og sjáumst aftur næsta haust!

ÁFRAM HÆRRA VALUR 🦅

Valur sigrar sterkt mót í Svíþjóð Valur var með fimm lið skráð á Lampe mótið í  Stokkhólmi sem haldið var í 20 sinn um h...
05/06/2026

Valur sigrar sterkt mót í Svíþjóð

Valur var með fimm lið skráð á Lampe mótið í Stokkhólmi sem haldið var í 20 sinn um helgina.

Mótið er sett upp í tveimur styrkleika flokkum í öllum aldurshópum Open og Elite. Valur var með tvö lið í open og þrjú lið í Elite. Alls voru 159 lið sem tóku þátt í mótinu sem spilað er á þremur dögum. Valur hefur sent lið síðustu fjögur á mótið.

Strákarnir í 8.flokki (2012) sigraði 🥇🏆 u14 ára Elite deildinni. Þar sem Dominik K. Ágústsson var valinn besti leikmaður mótsins (Tournament MVP) og Ísak Alvar Agnarsson leikmaður úrslitaleiksins. Valur hvítir sigruðu síðasta leikinn sinn og enduðu í 7. Sæti í open deild.

Strákarnir í 9.flokki (2011) sigruðu þrjá af fjórum leikjum og fengu silfur 🥈í u15 ára Open deild. Benedikt Tumi Aronsson var valinn leikmaður úrslitaleiksins.

Stelpurnar í 9.flokki (2011) enduðu 5.sæti í u15 ára Elite deild þar sem þær unnu tvo af fjórum leikjum.

Stelpurnar í 8.flokki (2012) ný krýndir Íslandsmeistara enduðu 6.sæti í u14 ára Elite deild, þar sem þær unnu einn af fjórum leikjum. Allir leikir hjá liðinu voru gríðarlega jafnir.

Allar frekar upplýstar um Lampe mótið má finna á heimasíðu mótshaldara.

https://lampechallenge.cupmanager.net/2026,en/result/clubs/75923676

Uppskeruhátíð yngriflokka í dagMB 8 til 11 ára kl. 17:007 til 12.flokkur kl. 19:00Byrjendaflokkur og MB 6 -7 ára sér nán...
26/05/2026

Uppskeruhátíð yngriflokka í dag

MB 8 til 11 ára kl. 17:00

7 til 12.flokkur kl. 19:00

Byrjendaflokkur og MB 6 -7 ára sér nánar á Abler

Leikur 2 hjá stelpunum okkar í kvöld kl. 18:00 í IceMar höllinni í Njarðvík! Mætum og hvetjum stelpurnar okkar til sigur...
21/05/2026

Leikur 2 hjá stelpunum okkar í kvöld kl. 18:00 í IceMar höllinni í Njarðvík!
Mætum og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs!
Áfram hærra 🦅

Mætum og hvetjum stelpurnar okkar á móti Njarðvík í 12. flokki á morgun, þriðjudag kl. 19:00 í N1 höllinni!
Það kostar 1000 kr. inn fyrir 16 ára og eldri

Pylsur verða til sölu á leiknum 🌭🥤

Vinna þarf 2 leiki til þess að verða Íslandsmeistari!

Áfram hærra 🦅

Minnibolti 11 ára strákar enduðu góðan vetur á Akureyri þar sem síðasta Íslandsmótið fór fram. Stóðu sig til fyrirmyndar...
21/05/2026

Minnibolti 11 ára strákar enduðu góðan vetur á Akureyri þar sem síðasta Íslandsmótið fór fram. Stóðu sig til fyrirmyndar og sýndu góða takta á leikvellinum - enda er þessi hópur hörku duglegur að æfa. Framtíðin er björt 🏀

Stelpurnar í minnibolta 11 ára kvenna gerðu sér ferð á Akureyri um helgina til að taka þátt í síðustu umferð Íslandsmóts...
19/05/2026

Stelpurnar í minnibolta 11 ára kvenna gerðu sér ferð á Akureyri um helgina til að taka þátt í síðustu umferð Íslandsmóts. Með hjálp minnibolta 10 ára vorum við með fjögur lið, 22 stelpur.
A-liðið endaði í fjórða sæti í A-riðli á þessu tímabili. Þær voru duglegar að ráðast á körfuna, hittu vel úr löngum skotum og spiluðu geggjað vörn. Í síðasta leik mótsins náðu stelpurnar öðrum sigri mótsins með magnaðri þriggja stiga gullkörfu eftir jafna framlenginu og endaði leikurinn því 27-24.
B-liðið spilaði vel saman, voru duglegar að spretta upp völlinn og finna sér opnar körfur. Liðið vann einnig alla sína leiki í síðustu tveimur umferðum Íslandsmótsins, frábær árangur.
C-liðið var með mikla baráttu og seiglu í krefjandi leikjum. Þær voru einnig að spila á stærri velli en vanalega en gáfust aldrei upp þrátt fyrir þreytu.
D-liðið stóð sig vel í að finna opin skot og skjóta með miklu sjálfstrausti. Svo voru stelpurnar sko ekki hræddar við að fara alla leið í sniðskotin þótt varnarmennirnir spiluðu hörku vörn á móti þeim.
Liðsheildin í þessum flokki er til fyrirmyndar og það má sjá miklar framfarir hjá þeim á milli móta. Þetta er svo glæsilegur hópur af metnaðarfullum stelpum sem munu ná langt í framtíðinni.

Áfram hærra 🏀🦅❤️

Address

Hlíðarendi
Reykjavík
102

Telephone

+3546969387

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Valur Körfubolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share