28/08/2026
Nordic Seed Alliance býður upp á átta vikna námskeið í Sociocracy sem byrjar á mánudaginn kemur, 31. ágúst!
Námskeiðið heldur svo áfram vikulega til 19. október, kl. 17:00–18:30 á Zoom.
Unnið verður með raunveruleg verkefni úr starfi Nordic Seed Alliance. Þátttakendur fá að æfa sig í að taka ákvarðanir í sameiningu, móta tillögur og vinna með mótbárur. Einnig er farið yfir hvernig hægt er að halda fundi sem eru markvissir og gefa öllum færi á þátttöku.
Engin fyrri reynsla nauðsynleg!
Ókeypis fyrir félaga vistræktarfélagsins.
Skráning og nánari upplýsingar má finna hér: https://www.nordicseedalliance.org/sociocracy-for-nsa/
Endilega skráið ykkur ef þið viljið kynnast Sociocracy og starfi Nordic Seed Alliance 🌱