Dansskóli Birnu Björns

Dansskóli Birnu Björns - Dansskólinn býður upp á vandað, markvisst dansnám, og er bæði boðið upp á byrjenda- og framhaldsflokka.

Allir kennarar skólans eru vel þjálfaðir, með margra ára reynslu af dansnámi, kennslu og choreografíu. Kenndir eru ýmsir dansstílar og má þar helst nefna commercial, jazz, jazz funk, söngleikjadans, bollywood og contemporary. Meðal þess sem nemendur læra má nefna grunntækni, stökk, hringi, samsettar tækniæfingar og dansrútínur ásamt ýmsum dansstílum, en sérstök áhersla er lög á að kynnast sem fles

tum dansstílum. Einnig er unnið mikið með sviðsframkomu og leikræna tjáningu, en dansgleði og skemmtun er höfð í fyrirrúmi. Grunnhópar
_____________
Grunnæfingar og tækni í jazzballett ásamt tækni- og styrktaræfingum ásamt teygjum. Kenndir eru hinir ýmsu dansstílar svo sem jazz, söngleikjadansar, hip-hop, Bollywood og fleira. Mikil áhersla er lögð á sviðsframkomu, leikræna tjáningu og túlkun en aðalmálið er eftir sem áður dansgleðin. Framhaldshópar
________________
Flóknari samsetningar: æfingar eru meira krefjandi, með aukinni tækni og fela m.a. í sér stökk, spörk og annað sem byggir á liðleika. Meðal dansstíla má nefna commercial, jazz funk, contemporary, street, söngleikjadansa, Bollywood og fleira. Sýningar og æfingar
_____________________
Hægt er að æfa tvisvar, þrisvar, fjórum og fimm sinnum í viku. Skólinn fær reglulega til sín gestakennara og er þá boðið upp á 'workshop' fyrir bæði nemendur og kennara. Allir nemendur skólans taka þátt í glæsilegri nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Í skólanum er jafnframt sýningarhópur sem tekur reglulega þátt í mörgum flottum sýningum á ári hverju.

Hin óviðjafnanlega Eva Sigríður okkar, nemandi í dans- og söngleikjadeildum DBB, er ein af 12 krökkum sem hrepptu hlutve...
26/05/2026

Hin óviðjafnanlega Eva Sigríður okkar, nemandi í dans- og söngleikjadeildum DBB, er ein af 12 krökkum sem hrepptu hlutverk í ,,Þegar trölli stal jólunum” í Borgarleikhúsinu næsta vetur. Við gætum ekki verið stoltari og hlökkum til að öll fái að njóta leikgleði og hæfileika Evu Siggu á stóra sviðinu!

Nemendur okkar í dans- og söngleikjadeild DBB að brillera í uppfærslu Þjóðleikhússins á Línu Langsokk! Til hamingju með ...
14/05/2026

Nemendur okkar í dans- og söngleikjadeild DBB að brillera í uppfærslu Þjóðleikhússins á Línu Langsokk! Til hamingju með frábæra frammistöðu elsku Kristín Þórdís, Lára og Sigurrós Ylfa! Við erum svo stolt af ykkur💖⭐️

Líf og fjör baksviðs á sýningardögum!
05/05/2026

Líf og fjör baksviðs á sýningardögum!

VERTU MEÐ OKKUR Í SUMAR - SKAPANDI SUMARSKÓLI DBB 💛🌸✨Kennarar: Anna Vala & HrafnkatlaDans, tónlist, leikir, útivera, skö...
04/05/2026

VERTU MEÐ OKKUR Í SUMAR -
SKAPANDI SUMARSKÓLI DBB 💛🌸✨

Kennarar: Anna Vala & Hrafnkatla

Dans, tónlist, leikir, útivera, sköpun og alls konar verkefni. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá þar sem markmiðið er að nemendur fái að njóta sín í hreyfingu og skapandi starfi.

Við leggjum áherslu á öruggt og uppbyggjandi umhverfi, góða samveru, vináttu og dansgleði.

Námskeiðið hentar öllum, bæði þeim sem hafa dansað áður og þeim sem vilja prófa eitthvað nýtt. Öll hjartanlega velkomin, bæði nemendur innan og utan dansskólans.

Skráning er hafin á dansskolibb.is / Abler.
Takmarkað pláss!

Nánari upplýsingar á dansskolibb.is
📩 Fyrirspurnir: [email protected]

Við hlökkum til að eiga dýrmætar og skemmtilegar stundir með ykkur í sumar! 💗🌞🌷

Spennandi nýjung hjá okkur í sumar - SKAPANDI SUMARSKÓLI DBB 💛☀️SKRÁNING ER HAFIN á dansskolibb.is / Abler.Takmarkað plá...
02/05/2026

Spennandi nýjung hjá okkur í sumar -
SKAPANDI SUMARSKÓLI DBB 💛☀️

SKRÁNING ER HAFIN á dansskolibb.is / Abler.
Takmarkað pláss!

Dans, tónlist, leikir, útivera, sköpun og alls konar verkefni. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með áherslu á öruggt og uppbyggjandi umhverfi.

Námskeiðið hentar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Öll hjartanlega velkomin, bæði nemendur innan og utan dansskólans.

Við hlökkum til að eiga dýrmætar og skemmtilegar stundir með ykkur í sumar 💃🏼💃🏼

Frá fyrstu æfingu söngleikjadeildar á sýningunni okkar um Ronju ræningjadóttur! Með hlutverk Ronju fara Anika og Lára (m...
22/03/2026

Frá fyrstu æfingu söngleikjadeildar á sýningunni okkar um Ronju ræningjadóttur!

Með hlutverk Ronju fara Anika og Lára (mynd 1)

Með hlutverk Birkis fara Sólrún og Fríða (mynd 2)

Mikið erum við spennt! ❤️

Fyrr á önninni þreyttu 91 nemandi prufu fyrir Ronju ræningjadóttur og stóðu sig ótrúlega vel! Við erum svo stolt af þeim...
21/03/2026

Fyrr á önninni þreyttu 91 nemandi prufu fyrir Ronju ræningjadóttur og stóðu sig ótrúlega vel! Við erum svo stolt af þeim öllum ❤️

Undirbúningur fyrir sýninguna er í fullum gangi um þessar mundir og á dögunum skellti hópurinn sér í upptökuver 🎧🎤

Hlökkum til að sýna ykkur afraksturinn!

Æfingaferð dansskólans til LONDON hefur slegið í gegn ár eftir ár❤️Minnum á að opið er fyrir umsóknir í næstu ferð til o...
29/01/2026

Æfingaferð dansskólans til LONDON hefur slegið í gegn ár eftir ár❤️

Minnum á að opið er fyrir umsóknir í næstu ferð til og með 1. febrúar 2026!

Allar upplýsingar má finna á Abler!

📩 Fyrirspurnir:
[email protected] / [email protected]

Sannkallað dansævintýri og frábært tækifæri!🩵🇬🇧💃🏼

25/01/2026

🌿 RONJA RÆNINGJADÓTTIR 🌿

Sannkallað dansleikhús þar sem nemendur dans- og söngleikjadeildar DBB láta ljós sitt skína á stóra sviðinu!🌸

13. & 14. apríl í Borgarleikhúsinu - ekki missa af þessu!🌟

-

Nemendur okkar í dans- og söngleikjadeild DBB að brillera í uppfærslu Borgarleikhússins á Galdrakarlinum í Oz! Til hamin...
22/01/2026

Nemendur okkar í dans- og söngleikjadeild DBB að brillera í uppfærslu Borgarleikhússins á Galdrakarlinum í Oz! Til hamingju elsku Mía Eldey, Mjöll og Þórunn Embla - við erum svo stolt af ykkur!❤️

Address

-
Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Dansskóli Birnu Björns posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Dansskóli Birnu Björns:

Share