Litli íþróttaskólinn er starfræktur í húsnæði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13. Litli íþróttaskólinn leggur áherslu á persónulega þjónustu, fámenna hópa, reynslu mikla og vel menntaða kennara. Námskeiðið er 10 skipti og eru tímarnir í 40 mínútur þar sem að í fyrri hluta tímans er lögð áhersla á söng, æfingar og leiki og í seinni hluta tímans er farið í gegnum þrautabraut. Tv
eir tímar af 10 á námskeiðinu fara fram í sundlaug þar sem farið er í leiki og gerðar æfingar. Námskeið hjá Litla íþróttaskólanum hefjast í september, janúar og apríl.