FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni milli kl. 10-16.00
og föstudaga 10-15.00 Félagið var stofnað 15. mars 1986. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna eldri borgara í hvívetna.

FEB – Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Stangarhyl 4 - 110 Reykjavík • Sími: 588 2111
Netfang: [email protected] • Heimasíða: www.feb.is og
Opnunartími skrifstofu:
Opið mánudaga til fimmtud. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er langstærsta félagið innan Landssambands eldri borgara með yfir 16. 000 félagsmenn. Rétt til að verða félagsmenn eiga þeir sem hafa náð 60 ára aldri og einnig makar þeirra þótt þeir séu yngri. Félagsmenn geta þeir orðið sem náð hafa 60 ára aldri sem og makar þeirra þó yngri séu. Þegar félagsgjaldið hefur verið greitt myndast félagsskírteinið rafrænt í smáforritinu Spara en þar er einnig að finna alla þá afslætti sem félagsmönnum býðst. VIÐ STÖNDUM VÖRÐ UM ÞÍNA HAGSMUNI

LEB blaðið 2026 er komið út (Ath ekki rugla saman við FEB blaðið 🥰) - mjög glæsilegt blað - nú einungis á rafrænu formi ...
18/09/2026

LEB blaðið 2026 er komið út (Ath ekki rugla saman við FEB blaðið 🥰) - mjög glæsilegt blað - nú einungis á rafrænu formi - slóðina er að finna hér: https://heyzine.com/flip-book/071437c84e.html

LEB blaðið 2026 er komið út!

Að þessu sinni er blaðið eingöngu gefið út á rafrænu formi. Leiðari formanns, Björns Snæbjörnssonar, og fréttir af skrifstofu eru á sínum stað, auk þess sem landsfundi ársins eru gerð góð skil.

Krossgátan er að þessu sinni verðlaunakrossgáta og fleiri þrautir fylgja með líkt og í fyrri blöðum.

Magnús J. Magnússon, meðlimur í stjórn LEB og formaður Félags eldri borgara á Selfossi, skrifar pistla um Öldrunarráð og Gott að eldast. Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur og einkaþjálfari, skrifar pistil um leiðir til að sporna gegn aldurstengdri vöðvarýrnun.

Viðtöl blaðsins eru fjögur og eru óvenjuleg að því leyti að aðeins einn viðmælenda er eldri borgari.

Forsíðuviðtalið er við ævintýramanninn og þúsundþjalasmiðinn Boga Jónsson sem hefur reynt margt um ævina, misst allt frá sér tvisvar, auk heilsunnar í áratug, en nýr kafli er tekinn við hjá Boga og Nok eiginkonu hans á Garðskaga.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir frá æsku sinni og hennar helstu fyrirmyndum sem eru foreldrar hennar og afar og ömmur. Hún ræðir einnig málefni eldri borgara í víðu samhengi.

Svala Heiðberg leitar að frásögnum og myndum frá samferðafólki föður síns, sem fórst í skelfilegu flugslysi fyrir 49 árum. Svala undirbýr að skrifa bók um föður sinn og föðurafa.

Að lokum er litið inn í heilsueflingu 60plús á Selfossi og viðtal tekið við Trausta Rafn Björnsson sem leiðir tugi eldri borgara í heilsueflingu í hverri viku í Árborg.

Við vonum að þið njótið lestursins! 🤓📕

Sjá hlekk á rafræna útgáfu í athugasemdum:

Hjól og sigling, vor 2027 Kynningarfundur  í sal FEB fimmtudaginn 17. september kl. 17:00, um tvær frábærar FEB-hjólafer...
17/09/2026

Hjól og sigling, vor 2027
Kynningarfundur í sal FEB fimmtudaginn 17. september kl. 17:00, um tvær frábærar FEB-hjólaferðir vorið 2027.
FEB-ferðir í samvinnu við ferðaskrifstofuna Heillandi heim bjóða upp á:
– Hjól og sigling á Dóná dagana 30. apríl til 9. maí 2027
– Hjól og sigling á Mósel, dagana 15. til 23. maí 2027
Langar þig í einstakt hjólaævintýri þar sem þú nýtur þess að hjóla á daginn og sefur á þægilegu „fljótandi hóteli“ á nóttinni? Þá hvetjum við þig til að mæta á fundinn því þessar ferðir gætu verið eitthvað fyrir þig!
Ekki er krafist skráningar til að mæta á fundinn - öll velkomin sem áhuga hafa.

Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli "Gráa hersins " eða þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu.
17/09/2026

Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli "Gráa hersins " eða þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu.

Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu. Málið hefur í fjölmiðlum hér á landi yfirleitt verið kennt við Gráa herinn og varðaði breytingar á íslenska lífeyriskerfinu sem gerðar voru 2016 og 2017.

ÆSIR skàkklúbbur FEB auglýsir:MEISTARAMÓT ÁSA – 2026Þriðjudaginn 22. september verður haldiðMeistaramót ÁSA að Stangarhy...
16/09/2026

ÆSIR skàkklúbbur FEB auglýsir:

MEISTARAMÓT ÁSA – 2026

Þriðjudaginn 22. september verður haldið

Meistaramót ÁSA að Stangarhyl 4, 110 Reykjavík.

Mótið hefst kl. 13.00 og lýkur um kl. 17.00.

Allir 60 ára og eldri eru hjartanlega velkomnir að taka þátt!

Tefldar verða 10 mínútna hraðskákir, með örfáum undantekningum frá alþjóðlegum skákreglum.

Hér gefst því gott tækifæri til að spreyta sig við skákborðið, hitta gamla félaga – og jafnvel eignast nýja.

Aðgangseyrir: 500 kr. – kaffi innifalið.

Hver verður Meistari ÁSA 2026?

Á meðfylgjandi myndum má sjá svipmyndir frá Meistaramótinu 2025, sigurvegara síðasta árs og yfirlit yfir meistara ÁSA frá upphafi.

Kannski bætist þitt nafn í þá merku upptalningu að þessu sinni?

Mætum, teflum og höfum gaman saman!

Æsir skákklúbbur – skák fyrir 60 ára og eldri

✈️ 🎄 Aðventan – upplifðu hana með okkur! 🎄Hvernig væri að þið vinkonurnar, vinirnir eða parið færuð saman í aðventuferð?...
14/09/2026

✈️ 🎄 Aðventan – upplifðu hana með okkur! 🎄
Hvernig væri að þið vinkonurnar, vinirnir eða parið færuð saman í aðventuferð?

FEB-ferðir, í samstarfi við ferðaskrifstofuna Betri ferðir, bjóða upp á tvær glæsilegar aðventuferðir um mánaðamótin nóvember/desember. ❤️ Tvær borgir. Tvær ólíkar upplifanir.

Þetta eru ferðir fyrir þau sem vilja njóta lífsins, upplifa eitthvað nýtt og eiga góðar stundir í skemmtilegum félagsskap.

🎄 MÜNCHEN – 24.–28. nóvember
Jólamarkaðir, menning, saga og dagsferð til Salzburg
🎄 EDINBORG – 29. nóvember–3. desember
Jólastemning, Royal Mile, kastalinn og hálendisferð

✨ Jólastemning, fallegar borgir og góðir ferðafélagar
Báðar borgirnar klæðast sínu fallegasta jólaskarti á þessum árstíma og bjóða upp á notalega stemningu, falleg jólaljós, áhugaverða sögu, góða matargerð og fjölbreytta upplifun.

Skelltu þér með okkur – og gerðu aðventuna eftirminnilega!
München eða Edinborg?

Hvort sem þú heillast meira af þýskum jólamörkuðum og Salzburg eða skosku hálendi, kastölum og Royal Mile, þá bíður þín skemmtileg ferð með góðum félagsskap.
________________________________________
Nánari upplýsingar um ferðirnar er að finna hér:
https://www.feb.is/utanlandsferdir/
eða á skrifstofu FEB, S: 588 2111
Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is

Þátttakendurnir í FEB Zumba og leikfimihópunum hennar Tönyu eru alltaf glaðir, en einnig tilbúnir að vekja athygli á for...
10/09/2026

Þátttakendurnir í FEB Zumba og leikfimihópunum hennar Tönyu eru alltaf glaðir, en einnig tilbúnir að vekja athygli á forvörnum.
Í dag 10. sept. er alþjóðlegur forvarnardagur gegn sjálfsvígum og þann dag er fólk hvatt til að klæðast gulu. Og það gera að sjálfsögðu þátttakendurnir hjá Tönyu!
Til að gera lífið enn skemmtilegra fara hóparnir af og til saman út að borða, en síðasta myndin er tekin í dag við það tilefni :)

Ert þú ekki örugglega búin/n að skrá þig? - Almannatryggingar 90 ára, ráðstefna 30. september 2026. Opin ráðstefna, hvet...
10/09/2026

Ert þú ekki örugglega búin/n að skrá þig? - Almannatryggingar 90 ára, ráðstefna 30. september 2026. Opin ráðstefna, hvetjum félagsmenn til að mæta - skráning nauðsynleg. Sjá nánar á eftirfarandi slóð.
https://almannatryggingar.is/

Þetta þurfa allir að kynna sér vel
10/09/2026

Þetta þurfa allir að kynna sér vel

Breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem Alþingi samþykkti 1. júní sl. hafa það m.a. í för með sér að einstaklingar sem ferðast til landa utan EES frá og með 1. janúar nk. verða ekki tryggðir fyrir þeim kostnaði sem þeir kunna að verða fyrir vegna veikinda eða slysa.

Address

Stangarhyl 4
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

5882111

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share