24/06/2026
Á dögunum héldum við gott sumar grillpartý þar sem starfsfólk og aðrir góðir gestir komu saman í nýuppgerðri Esjustofu og gerðu sér glaðan dag. Virkilega skemmtilegt efirmiðdegi í yndislegu umhverfi og viljum við þakka öllum þeim sem litu við og gerðu daginn eftirminnilegan.
Við erum virkilega stolt af framkvæmdunum í Esjustofu. Hlýleg hönnun, stórbrotið umhverfi og afslappað andrúmsloft skapa fullkomnar aðstæður fyrir hópa sem vilja sameina vinnu, upplifun og góða samveru.
Nánari upplýsingar um Esjustofu má finna hér: https://falkaklettur.is/is/esjustofa/