KTM Ísland

KTM Ísland KTM Ísland hóf starfsemi sýna árið 1994. Frá árinu 1999 hafa KTM mótorhjólin verið ein mest seldu torfæruhjól á Íslandi.

Ef þú ætlar að taka Holeshot á Akranesi um hlegina þá vantar þig 1 stk svona!
23/06/2026

Ef þú ætlar að taka Holeshot á Akranesi um hlegina þá vantar þig 1 stk svona!

Provides more traction when startingMade of high-strength aluminumElegant anodised surfacePure race feelingMounted directly on the OEM-fork

Karlmenn keyra fimmhundruð.....KTM 500 EXC - 2027 árgerð - Nýja hjólið þitt ?Getum bætt við hjólum í næstu sendingu sem ...
22/06/2026

Karlmenn keyra fimmhundruð.....

KTM 500 EXC - 2027 árgerð - Nýja hjólið þitt ?

Getum bætt við hjólum í næstu sendingu sem er á Íslandi eftir 4 vikur.

KTM 500 EXC-F heldur áfram að styrkja stöðu sína sem eitt öflugasta og fjölhæfasta endurohjólið á markaðnum. Hjólið er hannað fyrir ökumenn sem vilja takast á við fjölbreyttar aðstæður.

Hjólið sem „fer hvert sem er“

🕯️ Kæru vinir.Okkur þykir afar sárt að heyra að vinur okkar Jóhann Guðjónsson – Jói, eða Lucky Joe, er látinn.Jói var mi...
18/06/2026

🕯️ Kæru vinir.

Okkur þykir afar sárt að heyra að vinur okkar Jóhann Guðjónsson – Jói, eða Lucky Joe, er látinn.

Jói var mikill vinur okkar í gegnum árin og ómissandi hluti af samfélaginu okkar. Hann var sannur KTM-maður og endurnýjaði hjólin sín reglulega. Jói og Kalli áttu ótal stundir saman á hjólum, þar sem rætt var um allt milli himins og jarðar og margar góðar minningar urðu til.

Við munum minnast Jóa með hlýju, þakklæti og brosi fyrir allar þær stundir sem við áttum með honum.

Útför Jóa fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 22. júní kl. 13:00.

Við sendum fjölskyldu hans og ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum.

❤️🕯️

Lucky Joe

Það er ekki slæmt að vera í Slóðavinum, Það er alltaf eitthvað um að vera. Endilega fylgið síðu Slóðavina til þess sjá h...
17/06/2026

Það er ekki slæmt að vera í Slóðavinum, Það er alltaf eitthvað um að vera.

Endilega fylgið síðu Slóðavina til þess sjá hvað er að gerast hjá þeim, og svo er hitt, skrá sig í Slóðavini og taka þátt!

2027 - KTM 300 EXC HARD ENDUROTakmarkað upplag. Takmarkað magn.Á hverju ári eru færri hjól í boði en þeir sem vilja eign...
17/06/2026

2027 - KTM 300 EXC HARD ENDURO

Takmarkað upplag. Takmarkað magn.

Á hverju ári eru færri hjól í boði en þeir sem vilja eignast þau.

Ef þú ætlar að tryggja þér KTM 300 EXC Hard Enduro er rétti tíminn núna.

Forpantanir:
[email protected]

Þegar hjólin eru uppseld verða engin fleiri í boði af þessari útgáfu.

16/06/2026
KTM og GasGas á toppnum í fyrstu umferð Íslandsmótsins í Motocross.Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Motocross er afstaðin ...
14/06/2026

KTM og GasGas á toppnum í fyrstu umferð Íslandsmótsins í Motocross.

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Motocross er afstaðin og meistararnir frá síðasta ári byrjuðu nýtt tímabil af krafti.

Í MX1 flokki sigraði Alexander Adam á GasGas og sýndi strax að hann ætlar sér að verja Íslandsmeistaratitil sinn. Í MX2 flokki stóð Eric Máni uppi sem sigurvegari á KTM og hóf einnig titilvörn sína með glæsilegum sigri.

Báðir voru þeir Íslandsmeistarar árið 2025 og byrjuðu keppnistímabilið 2026 á sama hátt og þeir enduðu það síðasta – á toppnum.

Innilegar hamingjuóskir til Alexander Adams og Erics Mána með sigurinn. Frábær byrjun á tímabilinu! 🏆

Fyrsti íslenski hópurinn heimsækir KTM í Mattighofen(Það mátti ekki taka myndir í verksmiðjunni)Fyrsti íslenski hópurinn...
12/06/2026

Fyrsti íslenski hópurinn heimsækir KTM í Mattighofen

(Það mátti ekki taka myndir í verksmiðjunni)

Fyrsti íslenski hópurinn hefur nú heimsótt höfuðstöðvar KTM í Mattighofen, þar sem framleiðsla hins heimsþekkta mótorhjólaframleiðanda fer fram. Vonir standa til að fleiri Íslendingar fylgi í kjölfarið og nýti sér tækifærið til að kynnast starfseminni frá fyrstu hendi.

Gestir fengu einstaka innsýn í framleiðsluferli KTM og sáu hvernig helstu íhlutir hjólanna verða til. Í verksmiðjuferðinni er hægt að fylgjast með framleiðslu á meðal annars WP-fjöðrunarbúnaði, stellum og samsetningu hjólanna áður en þau eru pökkuð og send út um allan heim.

Hluti af heimsókninni er einnig ferð um hið glæsilega KTM MotoHall safn, þar sem saga KTM er rakin frá upphafi til dagsins í dag. Þar fá gestir að kynnast þróun fyrirtækisins, helstu afrekum þess í mótorsporti og tækninýjungum sem hafa mótað vörumerkið í gegnum árin.

Ferðin býður upp á heilan dag af fróðleik og upplifun sem veitir dýpri skilning á því hvernig KTM-hjólin verða til – upplýsingar sem flestir hefðu annars aldrei fengið tækifæri til að sjá eða heyra.

Næsta ferð verður auglýst á ktm.is á næstunni.

Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast vel með fyrir frekari upplýsingar um skráningu og dagskrá.

12/06/2026

2027 árgerðin af Enduro hjólum er að mæta, við eigum allar stærðir til afgreiðslu um miðjan Ágúst.

Address

Gylfaflöt 16/18
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00

Telephone

+3545862800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when KTM Ísland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share