19/06/2026
Við erum stolt að tilkynna að Abler og Knattspyrnufélag Reykjavíkur (KR) hafa framlengt samstarf sitt til næstu þriggja ára
Knattspyrnufélag Reykjavíkur er félag í algjörum sérflokki – elsta íþróttafélag Íslands og eitt það þekktasta. Í meira en 130 ár hefur félagið verið leiðandi afl í íslensku íþróttalífi og byggt upp öflugt starf innan fjölda deilda, sem snertir þúsundir iðkenda, foreldra og sjálfboðaliða á hverju ári.
Það er okkur sannur heiður að fá að þjónusta félagið áfram og vera hluti af þeirra vegferð. Traust frá félagi eins og KR er staðfesting á því að Abler er á réttri leið og gefur okkur aukinn kraft til að þróa lausnir sem einfalda rekstur íþróttafélaga svo þau geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli.
Undanfarin misseri höfum við átt frábær samtöl við mörg af öflugustu íþróttafélögum landsins. Það er bæði hvetjandi og lærdómsríkt að sjá hversu öflugt og mikilvægt starf unnið er alla daga fyrir börn, ungmenni og samfélagið allt. Við höldum áfram að deila slíkum fréttum hér á samfélagsmiðlum
Við hlökkum til næstu þriggja ára með KR – áfram íslenskt íþróttastarf!