KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands

KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands Körfuknattleikssamband Íslands · Icelandic Basketball Accociation

Ísland tekur í fyrsta sinn þátt í Special Olympics 3X3 FIBA Open sem fram fer í Sviss dagana 20.-21.júní. Liðin á mótinu...
19/06/2026

Ísland tekur í fyrsta sinn þátt í Special Olympics 3X3 FIBA Open sem fram fer í Sviss dagana 20.-21.júní. Liðin á mótinu eru Unified sem þýðir að þrír leikmenn í hverju liði eru Special Olympics leikmenn og tveir sem kallast meðspilarar. Ísland er meðal 15 þátttökuþjóða en Bára Fanney yfirþjálfari Hauka Special Olympics segir að mikil tilhlökkun sé í hópnum að taka þátt í mótinu í fyrsta sinn. Leikmenn Íslands á mótinu koma frá Haukum Special Olympics en aðalleikmennirnir þrír eru Anton Evert Hjartarson, Edvard Þór Ingvarsson og Jónas Bjartur Þorsteinsson en þeir eru allir á aldrinum 16-18 ára. Meðspilarar eru svo Alexander Stefánsson og Bjarki Logason. Þjálfarar liðsins eru Everage Richardson og Stella Hrund Ásbjarnardóttir.

„Keppnishópurinn hefur verið að æfa aukalega í nokkra mánuði en æfingar hófust um leið og staðfest var að lið frá Íslandi fengi þátttökurétt,“ segir Bára Fanney Hálfdánardóttir yfirþjálfari Hauka Special Olympics.

Verkefnið er ótrúlega flott hjá hópnum í kringum Special Olympics lið Hauka og gaman að sjá fleiri krakka fá tækifæri til að taka þátt: „Nú eru að opnast fleiri tækifæri fyrir okkur að fara á mót erlendis þar sem fleiri leikmenn okkar eru að ná 16 ára aldri sem er algengt aldursviðmið á þessum mótum. Við erum líklegast yngsta liðið sem tekur þátt í Sviss um helgina. Unified 3x3 reglurnar eru nýjar fyrir okkur og við þurftum að kynna okkur það vel. Leikurinn er ótrúlega skemmtilegur og mjög hraður á sama tíma.“

Að lokum segir Bára Fanney í spjalli við kki.is: „Það er mikill metnaður í hópnum. Allir búnir að æfa vel, eru með mikið keppnisskap og ég veit að þeir munu standa sig frábærlega. Það sem gæti orðið hvað mest krefjandi fyrir liðið er hitinn en leikirnir eru spilaðir utandyra í 30 gráðum. Ég er ótrúlega stolt af leikmönnum og þjálfarateyminu og hlakka til að fylgjast með liðinu um helgina. Ég mæli með að fólk fylgi instagram síðu HaukaSO! Þjálfarar og leikmenn ætla að vera dugleg að setja í story úr ferðinni. Við hlökkum síðan til að sjá meiri 3x3 Unified körfubolta hér á Íslandi. Áfram Haukar og áfram Ísland.“

Við tökum heilshugar undir þetta hjá Báru Fanneyju og hlökkum til að fylgjast vel með liðinu um helgina sem flýgur út í verkefnið í dag. Við hvetjum ykkur öll til að fylgjast vel með en Instagram síða liðsins er:

https://www.instagram.com/haukarso/

Áfram Ísland!

Lokahópur U20 ára landsliðs karla hefur verið valinn en liðið leikur á EM í Bratislava í Slóvakíu dagana 8.-20. júlí næs...
18/06/2026

Lokahópur U20 ára landsliðs karla hefur verið valinn en liðið leikur á EM í Bratislava í Slóvakíu dagana 8.-20. júlí næstkomandi. Þar með hafa allir keppnishóparnir verið opinberaðir fyrir komandi verkefni og við erum spennt að fylgjast með framgangi allra okkar liða á næstu misserum en fyrstu keppnishóparnir halda af stað í næstu viku.

Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur og leikmaður Íslenska landsliðsins, var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálka...
18/06/2026

Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur og leikmaður Íslenska landsliðsins, var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í gær á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, 17.júní. Fálkaorðuna hlýtur Ólafur fyrir forystu fyrir heimabyggð sinni á vægast sagt krefjandi tímum. Jarðhræringar á Reykjanesskaga og rýming Grindavíkurbæjar fyrir þremur árum síðan settu ansi mikið strik í reikning þátttöku Grindvíkinga í íþróttastarfi landsins en með mikilli elju og trú tókst Grindvíkingum að halda sínu starfi úti með miklum sóma og framganga Ólafs Ólafssonar hefur verið til algjörrar fyrirmyndar í þeim efnum. Við óskum Óla innilega til hamingju með heiðursviðurkenninguna sem fálkaorðan sannarlega er en hún er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir einstaklingum.

Á meðfylgjandi mynd frá embætti Forseta Íslands má sjá alla 14 fálkaorðuhafana sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, heiðraði með fálkaorðuveitingu 17.júní 2026.

A-landslið karla mætir Ítalíu 2. júlí í Laugardalshöll🏀Við treystum á ykkar stuðning í troðfullri höll👏Miðasalan er hafi...
16/06/2026

A-landslið karla mætir Ítalíu 2. júlí í Laugardalshöll🏀
Við treystum á ykkar stuðning í troðfullri höll👏

Miðasalan er hafin á stubb.is.
🏟️ Laugardalshöll
📅 2. júlí
🕖 19:45
🏆 FIBA Basketball World Cup
📲 Miðar: https://stubb.is/events/bvr7vb

Helgina 13.-14. júní fóru fram U12 ára og U13 ára Úrvalsbúðir KKÍ. Stelpurnar æfðu í Dalhúsum og drengirnir í Smáranum. ...
15/06/2026

Helgina 13.-14. júní fóru fram U12 ára og U13 ára Úrvalsbúðir KKÍ. Stelpurnar æfðu í Dalhúsum og drengirnir í Smáranum. Krakkarnir æfðu í fjórum mismunandi hópum og hver hópur tók þátt í þremur æfingum yfir helgina. Æfingarnar gengu virkilega vel og þjálfararnir hlakka til að hitta hópana aftur í ágúst til að efla þau enn frekar körfuboltalega og ekki síður sem sterka einstaklinga innan hóps.

📸Jón Gautur

Líkt og áður hefur komið fram styttist óðum í næst landsliðsglugga A-landsliðs karla en við spilum tvo leiki í undankepp...
11/06/2026

Líkt og áður hefur komið fram styttist óðum í næst landsliðsglugga A-landsliðs karla en við spilum tvo leiki í undankeppni HM 2027, fyrst heima og svo úti. Ísland mætir Ítalíu í Laugardalshöll þann 2.júlí næstkomandi og fer miðasalan vel af stað. Hér er hlekkur á miðasöluna: https://stubb.is/events/bvr7vb

Þremur dögum síðar spila Strákarnir okkar aftur í sömu undankeppni og þá gegn Bretum í National Basketball Performance Center (NBPC) í Manchester. Sá leikur fer fram kl. 15:00 að staðartíma sunnudaginn 5.júlí en flugsamgöngur til Manchester eru einfaldar og þægilegar og ætti því að vera þægilegt fyrir okkur að taka gott pláss í gestastúkunni.

NBPC höllin sem leikið verður í tekur um 2000 manns í sæti, með stúkum sem liggja langsum sitthvoru megin við völlin en það er umhverfi sem við Íslendingar þekkjum vel og okkur líður vel í slíkum aðstæðum. Það væri virkilega gaman að hafa íslenskt stuðningsfólk með okkur í verkefninu til að styðja strákana til sigurs í lokaleik þessa hluta undankeppninnar.

Hér er hlekkur á miðasölu Bretanna: https://app.fanbaseclub.com/Fan/Tickets/ViewAllocation?fixtureId=18525&allocationGuid=31ebd0c5-bbd3-4e04-a75b-972152f0b1f4

Ísland vann Ítalíu á útivelli í fyrsta leik undankeppninnar en Ítalir unnu alla næstu þrjá leiki sína í riðlinum og standa því efstir í riðlinum eins og er. Bretar unnu fyrri leik þjóðanna hér á Íslandi í nóvember síðastliðnum og eru að anda ofan í hálsmálið á okkur úr neðsta sæti riðilsins á meðan við sitjum sæti ofar en sigur í öðrum hvorum leiknum hjá okkar mönnum fleytir liðinu áfram í næsta hluta undankeppninar sem hefst í haust. Íslenskur sigur í báðum leikjum kemur okkur svo í baráttu um að vinna riðilinn og í lykilstöðu fyrir framhaldið.

Það er alltaf gaman að láta sig dreyma!

Við hvetjum ykkur til að verða ykkur úti um miða á þessa leiki sem fyrst til að staðfesta ykkar pláss í stuðningsliði ÍSLANDS!

📸MeetManchester

Jorge Garbajosa, forseti körfuknattleikssambands Evrópu FIBA Europe, lét það verða sitt fyrsta verk að fara að leiði Óla...
11/06/2026

Jorge Garbajosa, forseti körfuknattleikssambands Evrópu FIBA Europe, lét það verða sitt fyrsta verk að fara að leiði Ólafs Rafnssonar þegar hann var staddur á Íslandi á dögunum. Ólafur var jú forseti FIBA Europe 2010-2013 eins og körfuboltaunnendur þekkja og auk þess forseti ÍSÍ.

„Ég lagði körfuboltaskóna á hilluna árið 2012 og fór þá strax að vinna fyrir spænska sambandið. Ég kynntist því Ólafi lítillega á þessu ári sem leið þar til hann féll frá, en ekki gafst tími til að mynda náin persónuleg tengsl við hann. Þegar við Kamil Novak, framkvæmdastjóri FIBA Europe, lentum í Keflavík nýlega þá sótti Hannes Sigurbjörn Jónsson okkur á flugvöllinn. Okkar fyrsta stopp á leiðinni frá flugvellinum var að fara að leiði Ólafs í Hafnarfirði og votta honum virðingu okkar. Hann var einn af fyrirrennurum mínum í starfi og afar mætur maður.“

Garbajosa var hér staddur vegna þings FIBA Europe sem haldið var á Íslandi. „Ég er vægast sagt ánægður með þingið í Reykjavík og á svo margan hátt. Í fyrsta lagi er heiður að sækja einn varaforseta minna [Hannes Sigurbjörn Jónsson] heim með því að mæta á FIBA Europe þing í hans heimalandi. Varaforsetarnir þrír eru í miklu návígi við mig og eru þeir sem ég treysti mest á. Þeir ráðleggja mér í mikilvægum og viðkvæmum málum í hreyfingunni. Það er afar jákvætt að vera hér í heimalandi Hannesar,“ segir forsetinn og hann segir það vera eins og auka bónus að vera í áhugaverðu landi eins og Íslandi.

„Allt þetta fólk sem er hingað komið til að starfa á þinginu gerir það vegna þess að það elskar körfubolta. Að fá tækifæri til að gera það í jafn fallegu landi og Íslandi er sérstakt. Þegar á hólminn var komið þá gekk þetta auðveldlega fyrir sig. Þetta fallega hótel [Hótel Reykjavík Grand] hefur marga kosti þegar kemur að þinghaldi eins og okkar. Við höfum haldið alls kyns fundi fyrir utan blaðamannafund og þetta gekk allt saman vel.“

Garbajosa er ánægður með þingið á Íslandi og afraksturinn en hann nefnir að helstu tillögur hafi verið samþykktar. Mönnum beri gæfa til að takast á málefnalega í rökræðum og sætti sig við niðurstöðu meirihlutans þegar uppi er staðið. „Viðhorfið er einstakt í hreyfingunni og maður finnur það á þingi eins og þessu.“

Þægilegt að umgangast Íslendinga

Garbajosa þykir gott að vinna með Íslendingum og hefur nú kynnst þeim nokkrum. Fyrst Ólafi Rafnssyni en síðar fleirum eftir að hann varð sjálfur forseti FIBA Europe.

„Ég hef ekkert nema gott um samstarf okkar Hannesar hjá FIBA Europe að segja og ég ber mikla virðingu fyrir honum. Ég kann auk þess einfaldlega vel við hann þegar við eigum í samskiptum sem snúast ekki um körfuboltann. Ég hef einnig kynnst Guðbjörgu Norðfjörð, fyrrverandi formanni KKÍ, mjög vel enda hefur hún verið í nefndum á vegum FIBA Europe. Ég og núverandi formaður KKÍ [Kristinn Albertsson] erum að byggja upp okkar samskipti en mér þykir þægilegt að umgangast Íslendinga,“ segir Garbajosa og vonast til þess að koma aftur til Íslands síðar og dvelja lengur.

„Ég kom hingað einu sinni áður vegna stjórnarfundar árið 2017. Eiginkona mín og 6 ára gömul dóttir okkar voru afar spenntar þegar þær heyrðu að þingið væri haldið á Íslandi en þær voru ekki eins hressar þegar í ljós kom að þær gátu ekki komið með. Málið er að þetta er líklega annasamasta helgi ársins hjá mér og ég gæti frekar hugsað mér að koma hingað með þeim einhvern tíma síðar þegar tími gefst til. Þá væri kannski hægt að dvelja hér í viku eða svo og kynnast landinu betur.“

Spilaði með Pavel í Malaga

Garbajosa er spænskur og var mjög öflugur leikmaður á sínum atvinnumannaferli áður en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann varð heims- og Evrópumeistari með Spáni og fékk fjölda viðurkenninga fyrir frammistöðu sína með félagsliðum. Auk þess að leika með stórliðinu Real Madríd lék hann utan heimalandsins á Ítalíu, í Rússlandi og með Toronto Raptors í NBA-deildinni. Um tíma var hann samherji Pavels Ermolinskij hjá Unicaja í Malaga og tók það fram á blaðamannafundinum sem haldin var á Íslandi vegna þingsins.

„Það er orðið mjög langt síðan við Pavel spiluðum saman. Þegar við hittumst á EM í Berlín árið 2015 þá spjölluðum við einmitt um hversu skrítið lífið getur verið og hvernig leiðir fólks geta legið saman. Þá var ég auðvitað í embættiserindum fyrir spænska sambandið en hann enn landsliðsmaður. Pavel er frábær náungi og ég er stoltur af honum. Ég man auðvitað einnig mjög vel eftir Jóni Arnóri Stefánssyni sem leikmanni og maður ber að sjálfsögðu virðingu fyrir leikmanni í þeim gæðaflokki. Nú er Tryggvi Hlinason að skapa sér nafn á Spáni sem er á vissan hátt erfitt fyrir erlenda leikmenn. Skömmu áður en ég hélt til Íslands las ég grein um Tryggva í spænsku blaði og þar var sagt frá því þegar hann kemur til Íslands í frí þá heldur hann heim á bóndabæ foreldranna. Hann er greinilega með gott fólk í kringum sig og þetta er áhugaverð saga sem stuðningsmennirnir eru áhugasamir um. Fólk elskar leikmenn sem eru alvöru og lifa lífi sínu á svipaðan hátt og allir aðrir. Leikmenn eins og Tryggvi eru góðar fyrirmyndir fyrir unga fólkið og það er mikilvægt á Spáni. Martin Hermannsson er einnig mjög þekktur í körfuboltanum á Spáni og þar er líklega sterkasta deildin í Evrópu.“

Eins og svo gott sem allir aðrir í körfuboltahreyfingunni í Evrópu hefur forsetinn tekið eftir árangri íslenska karlalandsliðsins.

„Það má kannski segja að þetta sé ein ástæða þess að körfuboltaforystan í Evrópu fundar nú á Íslandi. Ísland er að verða körfuboltaþjóð og íslensku leikmennirnir verða æ þekktari á alþjóðlegum vettvangi. Ísland komst ekki á EM í fyrsta skipti fyrr en 2015 en hefur samt endurtekið afrekið tvívegis síðan þá. Svo ekki sé minnst á að liðið var einni þriggja stiga körfu frá því að komast í lokakeppni HM og ég gæti ímyndað mér að það hefði verið eitt af stærstu íþróttafrekum í sögu Íslands hefði skotið farið ofan í. Fólk á Spáni, sem dæmi, er í auknum mæli farið að tengja Ísland við körfubolta og nú eru mjög spennandi tímar fyrir körfuna á Íslandi. Við í körfuboltaforystunni reynum auðvitað að hvetja aðildaþjóðirnar til dáða í að byggja upp íþróttina enda er ávinningurinn margþættur þegar kemur að lýðheilsu og menningu,“ segir Jorge Garbajosa í samtali við kki.is.

Frábær árangur íslenskra leikmanna á erlendri grundu!Martin Hermannsson er kominn alla leið í úrslit í Þýskalandi með li...
10/06/2026

Frábær árangur íslenskra leikmanna á erlendri grundu!

Martin Hermannsson er kominn alla leið í úrslit í Þýskalandi með liðinu sínu Alba Berlin en þeir unnu sannfærandi 97-66 sigur í oddaleik gegn Bamberg í undanúrslitunum um þýska meistaratitilinn þar sem Martin skoraði 10 stig og átti 3 stoðsendingar. Fyrsti leikur úrslitanna verður næstkomandi föstudag, 12.júní, gegn deildarmeisturum Bayern München. Martin er að leika með Alba Berlin í annað sinn á ferlinum en hann hefur í þetta skiptið spilað í Berlínarborg frá árinu 2024. Fyrri samningur Martins í Berlín var frá 2018-2020 áður en hann hélt til Valencia á Spáni og lék þar til ársins 2024.

Elvar Már Friðriksson spilaði í Póllandi í vetur með Anwil Włocławek og eftir langt og strangt tímabil þar sem liðið endaði í 9.sæti deildarinnar hélt Elvar Már til La Laguna Tenerife á Spáni í maí síðastliðnum til að klára tímabilið og úrslitakeppnina þar. Tenerife lenti í 8.sæti deildarinnar en liðið sló stórlið og deildarmeistara Real Madrid gríðarlega óvænt út í 8-liða úrslitunum og eru nú að spila gegn frábæru liði Barcelona í undanúrslitum. Fyrsti leikur undanúrslitanna fór illa hjá Tenerife mönnum en Barcelona vann 33 stiga sigur, 100-67. Næsti leikur liðanna er fimmtudaginn 11.júní en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaviðureignina.

Tryggvi Snær Hlinason lék með sínum mönnum í Bilbao í 8-liða úrslitum sömu deildar en þeir féllu úr leik í síðustu viku gegn fyrsta atvinnumannafélagi Tryggva, Valencia. Tryggvi stóð fyrir sínu að vanda en slíkt dugði ekki til og Valencia leika því í hinni undanúrslitaviðureigninni gegn Joventut en fyrsti leikur þeirra liða er í dag, miðvikudaginn 10.júní. Tryggvi er búinn að leika á Spáni síðan 2017 og er því að klára sitt tíunda ár í atvinnumennskunni um þessar mundir.

Það er alltaf gaman að fylgjast með okkar fólki standa sig vel erlendis og við óskum Martin og Elvari góðs gengis í sinni baráttu í Þýskalandi og á Spáni á næstu dögum. Við hlökkum til að fá þessa þrjá drengi, sem og alla aðra, ferska í landsliðsverkefni í lok mánaðarins en draumurinn væri auðvitað að Martin og Elvar bæru gullmedalíur um hálsinn þegar þeir mæta til landsins.

📸IMAGO og FIBA

08/06/2026

U14 ára landsliðin æfðu í Smáranum og Dalhúsum💪
Frábær stemning og mikil gleði🏀

U14 ára landsliðin æfðu um helgina með þjálfarateymum landsliðanna. Stúlkurnar æfðu þrisvar sinnum í Dalhúsum og var mik...
08/06/2026

U14 ára landsliðin æfðu um helgina með þjálfarateymum landsliðanna. Stúlkurnar æfðu þrisvar sinnum í Dalhúsum og var mikil gleði og ákefð á æfingunum. Þetta var fyrri æfingahelgin en sú seinni er í ágúst. Fyrstu formlegu landsliðsverkefnin hefjast svo í U15 en þá fara liðin okkar á Norðurlandamótið, NM. Þessar U14 landsliðsæfingahelgar eru góður grunnur fyrir slíka vegferð.

Hér má sjá 10 myndir frá æfingum helgarinnar.



📸Jón Gautur

Address

Íþróttamiðstöðinni Laugardal
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545144100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands:

Share