Knattspyrnudeild Fram

Knattspyrnudeild Fram Síða knattspyrnudeildar Fram. Hér getur þú séð fréttir úr starfi meistara- og yngri flokka.

Kæru FRAMarar! Þá er komið að þessu - RISA leikur gegn Víking á sunnudaginn 21.júní. Alvöru toppslagur í deild þeirra be...
19/06/2026

Kæru FRAMarar!
Þá er komið að þessu - RISA leikur gegn Víking á sunnudaginn 21.júní. Alvöru toppslagur í deild þeirra bestu 💙
Fyllum Lambhagavöllinn - mætum í bláu og styðjum strákana okkar eins og við gerum best!

Minnum einnig á viðburðinn okkar fyrir leik þar sem PiriPiri kjúklingahlaðborð verður í boði og alvöru pallborðsumræður. Björn Einarsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Stefán Pálsson verða í pallborði og munu ræða þennan leik og sögu liðanna á meðan mat stendur 💙 Drífið í því að tryggja ykkur miða!

Koma svo FRAMarar - ÁFRAM FRAM!!

Stelpurnar okkar eru komnar í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir glæsilegan 7-1 sigur á FHL á þjóðhátíðardaginn 💙💙 RISA ...
19/06/2026

Stelpurnar okkar eru komnar í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir glæsilegan 7-1 sigur á FHL á þjóðhátíðardaginn 💙💙
RISA afrek hjá stelpunum okkar og nú er komið að því að sameinast í Úlfarsárdalnum 25.júlí þegar við mætum Grindavík / Njarðvík og hjálpa FRAM stelpunum að tryggja sig í úrslit á Laugardalsvelli!!

Koma svo!! ÁFRAM FRAM 💙💙

Kæru Framarar,Við tilkynnum ykkur með ánægju að Már Ægisson hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram hjá fé...
17/06/2026

Kæru Framarar,

Við tilkynnum ykkur með ánægju að Már Ægisson hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram hjá félaginu út tímabilið 2028.

Már er uppalinn Framari og hefur leikið með meistaraflokki félagsins frá árinu 2018. Alls hefur hann spilað yfir 200 leiki fyrir félagið.

„Már er Framari í húð og hár og við erum afar ánægð með þá tryggð sem hann hefur sýnt félaginu. Ég man eftir Mása átta ára og stjórnlausum í Safamýrinni og það hefur verið virkilega gaman að fá að fylgjast með honum vaxa og þroskast í þann leikmann og einstakling sem hann er í dag,“ segir Sigurður Hrannar Björnsson, formaður meistaraflokksráðs karla.

Mjólkurbikar kvenna er næst á dagskrá hjá stelpunum okkar!8 liða úrslitin fara af stað á morgun, 17.júní og mætum við FH...
16/06/2026

Mjólkurbikar kvenna er næst á dagskrá hjá stelpunum okkar!
8 liða úrslitin fara af stað á morgun, 17.júní og mætum við FHL fyrir austan í Fjarðarbyggðarhöllinni kl. 13:00 💙
Hvetjum alla FRAMara sem staddir eru á austurlandi að kíkja á þennan leik og hvetja stelpurnar okkar áfram í undanúrslit!
ÁFRAM FRAM! 💙💙

Kæru FRAMarar! Þá fer Besta Deildin að rúlla aftur eftir landsleikjahlé og fara okkar drengir norður á Akureyri og heims...
14/06/2026

Kæru FRAMarar! Þá fer Besta Deildin að rúlla aftur eftir landsleikjahlé og fara okkar drengir norður á Akureyri og heimsækja KA á morgun, mánudaginn 15.júní. Leikur hefst klukkan 18:00 og hvetjum við alla FRAMara sem eru staddir á norðurlandi að skella sér á leikinn!
Koma svo! Styðjum við strákana okkar 💙
Áfram FRAM💙💙

Er þitt barn markmaður? Nú gefst einstakt tækifæri til að æfa undir leiðsögn Asmir Begovic og öflugra markmannsþjálfara ...
30/05/2026

Er þitt barn markmaður? Nú gefst einstakt tækifæri til að æfa undir leiðsögn Asmir Begovic og öflugra markmannsþjálfara frá Englandi.

Markmannsnámskeið Fram og Asmir Begovic Goalkeeping Academy hefur vakið mikla lukku síðustu ár og laðað að efnilega markmenn alls staðar af landinu.

Skráning og nánari upplýsingar á Abler: https://www.abler.io/shop/fram/fotbolti?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTM4NjM=

Kæru FRAMarar! Þá er það Kaplakriki kl. 14:00 á morgun! Stelpurnar okkar heimsækja FH og ætla sér stigin 3 💙Fjölmennum í...
29/05/2026

Kæru FRAMarar! Þá er það Kaplakriki kl. 14:00 á morgun!
Stelpurnar okkar heimsækja FH og ætla sér stigin 3 💙
Fjölmennum í Hafnarfjörðinn og hvetjum FRAM stelpurnar okkar til sigurs!

ÁFRAM FRAM 💙💙

Kæru Framarar.Það er stórleikur á Lambhagavelli í kvöld kl. 19:15 þegar við mætum Blikum.Eins og komið hefur fram greind...
29/05/2026

Kæru Framarar.

Það er stórleikur á Lambhagavelli í kvöld kl. 19:15 þegar við mætum Blikum.

Eins og komið hefur fram greindist Ingvar Jónsson markvörður Víkings nýlega með krabbamein. Hann og hans fjölskylda eiga erfitt verkefni fyrir höndum.

Félögin í Bestu deildinni hafa ákveðið að taka þátt í söfnun, Ingvari og fjölskyldu hans til stuðnings, í tengslum við leikina í þessari umferð.

Miðasala á leik Fram og Breiðabliks fer fram á Stubb: https://stubb.is/events/beWDGy

Þar er hægt að kaupa miða á leikinn og styrkja Ingvar og fjölskyldu um leið. Einnig er hægt að leggja söfnuninni lið án þess að kaupa miða á leikinn og er þá hægt að kaupa "Áfram Ingvar" styrktarmiða:
5.000 kr. | 10.000 kr. | 15.000 kr.

Knattspyrnudeild Fram hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að fjölmenna á leikinn í kvöld og styðja sín lið og um leið Ingvar og fjölskyldu.

Knattspyrnudeild Víkings hefur einnig stofnað styrktarreikning sem hægt er að leggja inn á:
0357-22-008868
kt 420787-1469

Fram og Breiðablik mætast í stórleik í Bestu deild karla á Lambhagavelli í kvöld kl. 19:15.Fyrir leik verður efnt til he...
29/05/2026

Fram og Breiðablik mætast í stórleik í Bestu deild karla á Lambhagavelli í kvöld kl. 19:15.

Fyrir leik verður efnt til heljarinnar upphitunar í stórglæsilegum veislusal Fram.

Goðsagnir félaganna hita upp fyrir leikinn í pallborðsumræðum undir stjórn okkar eina sanna Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar.

Þáttakendur í pallborði að þessu sinni verða Ágúst Gylfason fyrrum fyrirliði Fram og fyrrum þjálfari Breiðabliks, Kristófer Sigurgeirsson fyrrum leikmaður Fram og Breiðabliks og Kristján Óli Sigurðsson hlaðvarpsstjórnandi og fyrrum leikmaður Breiðabliks.

Boðið verður upp á Naut & bernaise hlaðborð af bestu gerð og Hreimur mætir og tekur lagið svo búast má við frábærri stemningu.

Verð frá aðeins kr. 4.990-.
Naut & bernaise kr. 4.990-
Naut & bernaise + miði á leikinn kr. 6.990-

Tryggðu þér miða á Stubb: https://stubb.is/events/bXeawn

Kæru FRAMararÞá er það næsti RISA leikur hjá strákunum okkar! FRAM - Breiðablik á Lambhagavellinum fagra klukkan 19:15 á...
27/05/2026

Kæru FRAMarar

Þá er það næsti RISA leikur hjá strákunum okkar!
FRAM - Breiðablik á Lambhagavellinum fagra klukkan 19:15 á föstudaginn 29.maí 💙💙

Við hvetjum ykkur öll til þess að mæta í bláu - syngja hátt og styðja strákana eins og þið gerið svo frábærlega!

Minnum einnig á Naut&Bernaise viðburðinn okkar fyrir leik, þar sem við verðum með pallborð og almenn gleði við völd 🥳 hægt er að nálgast miða á þetta inná Stubb :D

Koma svo FRAMarar! Byrjum helgina almennilega - ÁFRAM FRAM 💙💙

Address

Úlfarsbraut 126
Reykjavík
113

Telephone

+3545335600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Knattspyrnudeild Fram posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category