12/06/2026
Emil kveður Fjölni í ágúst.
Eftir farsælt starf hjá íshokkídeild Fjölnis frá árinu 2020 mun Emil láta af störfum í ágúst og flytja með fjölskyldu sinni til Akureyrar en eiginkona hans er frá Akureyri.
Emil hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íshokkístarfs félagsins, þjálfað yngri flokka og stýrt meistaraflokki kvenna til tveggja Íslandsmeistaratitla.
Við þökkum Emil kærlega fyrir samstarfið og óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni.
Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/06/12/emil-alengard-kvedur-fjolni-i-agust/