Seinni níu

Seinni níu Hlaðvarp um golf í þágu þjóðar. Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson.

Aron Snær fékk áttu á par-3 holu en vann samt mótið⛳Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn...
16/06/2026

Aron Snær fékk áttu á par-3 holu en vann samt mótið⛳

Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari.

Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helgi en hann er að fara sem áhorfandi á Opna bandaríska meistaramótið þar sem félagi hans úr GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, mun fyrstur Íslendinga taka þátt í mótinu.

Opna bandaríska fær gott pláss í þættinum en við förum um víðan völl í spjalli okkar við Aron. Hann segir okkur aðeins frá því hvernig hann byrjaði í golfi. Við tökum stöðuna á ferli Arons sem atvinnumaður og svo segir Aron okkur frá því hvernig honum tókst að leika nokkuð stutta par-3 braut á 8 höggum en standa samt uppi sem sigurvegari.

Mjög áhugaverður og skemmtilegur þáttur með einum besta kylfingi Íslands. Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/76lgBiEJDwkITgXgV1s5XG?si=Kuwq3ZYLRl6TZMatlcUQEA

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol See less

20% afsláttur af öllum vörum í 66° Norður🤝Nú getur þú græjað þig fyrir sumarið með 66North⛳20% afsláttur af öllu í vefve...
11/06/2026

20% afsláttur af öllum vörum í 66° Norður🤝

Nú getur þú græjað þig fyrir sumarið með 66North⛳
20% afsláttur af öllu í vefverslun með kóðanum „seinniniu“
Kóðinn gildir út sunnudaginn 14. júní 2026.

Golfvörur karlar🏌: https://66north.com/is-is/collections/karlar-i-golfi-1
Golfvörur konur🏌️‍♀️: https://66north.com/is-is/collections/konur-i-golfi-1

Svo gildir afslátturinn auðvitað af öllu öðru hjá 66° í vefverslun.
Ef Logi Bergmann fer holu í höggi í vikunni þá hækkar hann afsláttinn sjálfur upp í 40%😂

Við höfum framleitt fatnað fyrir íslenskt veðurfar síðan 1926. Klæddu þig vel.

09/06/2026

20% afsláttur í 66°Norður🤝

Nú getur þú græjað þig fyrir sumarið með 66North⛳
20% afsláttur af öllu í vefverslun með kóðanum „seinniniu“

Kóðinn gildir út sunnudaginn 14. júní 2026.
Golfvörur karlar🏌: https://66north.com/is-is/collections/karlar-i-golfi-1
Golfvörur konur🏌️‍♀️: https://66north.com/is-is/collections/konur-i-golfi-1

Svo gildir afslátturinn auðvitað af öllu öðru hjá 66° í vefverslun.

Ef Logi Bergmann fer holu í höggi í vikunni þá hækkar afslátturinn upp í 40%😂

Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum⛳🤣Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni n...
08/06/2026

Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum⛳🤣

Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Þar var svo sannarlega glatt á hjalla.

Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum. Í þættinum kemur meðal annars fram að Golfklúbburinn á Vík á sérstakan stað í hjarta Fannars.

Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fannari og draumahollið er á sínum stað. Við komum víða við í þættinum og ræðum meðal annars aðkomu Fannars að Körfboltakvöldi sem lyfti umfjöllun á íslenskum körfuknattleik til mikilla muna.

Í þættinum greinir Fannar líka frá s*x vikna sjúkralegu sinni eftir að hafa fengið sýkingu í annan fótlegg eftir slys í hesthúsi.

Frábær þáttur á sérstaklega léttum nótum. Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/7mpWrMMEsD0kdlJtBnnTgY?si=PKshFVs5QDekkwNE3F0hYw

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvelli⛳Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjar...
01/06/2026

Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvelli⛳

Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet.

Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir s*x árum og er í dag með um 16 í forgjöf.

Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað.

Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt. Frábær þáttur sem kemur á óvart!

Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/7pjzsL8VhUkYZ6IObv0yxL?si=fM0JcrgARbWMIUVmpDZIlw

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 🏠 Betri Stofan
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð⛳Við fengum athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í ...
26/05/2026

Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð⛳

Við fengum athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri allt frá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto.

Sindri hóf að leika golf fyrir s*x árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf.

Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu.

Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Br**ta en þar er Sindri stór hluthafi. Sindri segir okkur einnig magnaða sögu þegar hann fór í golfferð þrátt fyrir að vera handarbrotinn. Höndin var mikið í klakaboxinu í þeirri ferð. Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.

Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/4hYSfJdnnCUsIuo5KOurMo?si=5lzS8fWySq-YOYCdc8B4ug

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 🏠 Betri Stofan
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach⛳Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur Willi...
19/05/2026

Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach⛳

Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár.

Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt.

Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið.
Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach.

Frábær þáttur á léttum nótum að venju!
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/0TPeh6SbgXP11Wgis9So9S?si=0wpNzrNAQ-m6ELhQQz2qjw

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 🏠 Betri Stofan
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag 👨‍🌾🚜⛳️Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því  Bjarni ...
15/05/2026

Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag 👨‍🌾🚜⛳️

Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni ÞórHannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli.

🌿Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum.

👷‍♂️ Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu.

⏳Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/3NYE2h7iKqbbjirCZmjFIW?si=U7Q4wn8ET6myeNV3oHQc9g

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

Address

Borgartún 35
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seinni níu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share