05/12/2012
Jæja kæru vinir, nú nálgast jólin óðfluga, lítið er um veiðiferðir og þess vegna tilvalið að eyða auðum stundum í undirbúning vorsins og þeirrar veiði sem fólk ætlar sér að stunda. Mig langar að biðja ykkur ef þið hafið tíma, að deila þessari síðu með vinum ykkar.
Er ekki fluguhnýtingarnámskeið tilvalin jólagjöf? Fátt betra en að sitja við "væsinn" í skammdeginu og gefa hugarfluginu lausan tauminn, finna upp á nýjum veiðivænum flugum, skýra þær jafnvel í höfuðið á barni, barnabarni, eða betri helmingnum.