REYR Studio

REYR Studio Your own oasis of mindfulness and wellness in the centre of Reykjavík.

The space, located in the vibrant Grandi harbour district, is ideal for your yoga class, workshop, meditation session or wellness event.

Summer slowdown is real — and we’re using it to get ready. REYR Studio is opening a full class schedule this fall. Follo...
10/06/2026

Summer slowdown is real — and we’re using it to get ready. REYR Studio is opening a full class schedule this fall. Follow along + sign up on our website (through link in bio) to be the first to know 🌿

26/04/2026

Hæ öllsömul,

Ég er að fara af stað með röð viðburða, annan hvern miðvikudag, í Reyr studio. Fyrsti viðburður er 15. apríl & skráning í fullum gangi. Afsláttur er veittur ef bókað er á alla fjóra viðburðina.

Allar upplýsingar á www.reyrstudio.com

Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest.
Kær kveðja, Kristín Bára

06/04/2026

✨Síðasta námskeið annarinnar✨

Rólegir jógatímar þar sem við einblínum á að draga úr streitu, róa hugann og liðka líkamann. Ýtum jafnframt orkunni upp með hækkandi sól. Tímarnir fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20-21:15, 16. apríl - 21. maí. Verð 19.500 kr. eða 3.900 kr. fyrir stakan tíma. Minnum á stéttarfélagsstyrki.

Skráning fer fram á www.reyrstudio.com (sjá link í bio).

Tímarnir munu einkennast af mjúku flæði, teygjum og öndunaræfingum með það í huga að minnka streitu í líkamanum og finna meiri ró. Tímarnir eru meðal annars byggðir á æfingum frá jóga þerapíu þar sem við vinnum með taugakerfið okkar. Hver tími mun enda með djúpri slökun og hvíldaræfingum. Förum með mýkt inní vorið!

Kennari námskeiðsins er Elma Dögg, eigandi REYR Studio. Hún hefur starfað sem jógakennari í hátt í 7 ár, meðal annars kennt í Reykjavík Yoga og Yoga Shala en einnig á Spáni. Hún tók grunnnám í Hatha Yoga á Indlandi og hefur síðan bætt við sig réttindum í Restorative Yoga, Yin Yoga, meðgöngujóga ásamt ýmsum námskeiðum í Yoga þerapíu.

15/03/2026

MEÐ MÝKT ♡ RÓ Í REYR

Fimmtudaginn, 26. mars
Kl. 20:00-21:45
REYR Studio, Fiskislóð 31B
8.900 kr.
Skráning og nánari upplýsingar á www.reyrstudio.com -> HAPPENING eða í link í bio

Kristín Bára og Elma Dögg taka höndum saman á þessum einstaka viðburði. MEÐ MÝKT og RÓ Í REYR eru fastir liðir í dagskrá REYR og ætla þær nú að bjóða uppá þennan fallega viðburð þar sem þær sameina töfra sína.

Viðburðurinn hefst á þerapísku jógaflæði og hvíldarstöðum, leiddum af Elmu, þar sem þú færð tækifæri til að losa um streitu og spennu í líkamanum. Hugurinn róast og þú færð að gefa eftir inní hvíld og slökun.

Kristín Bára tekur svo við og leiðir þig í djúpslakandi tónferðalag með gongi og kristalskálum. Ásetningurinn er að upplifa hugarró, djúpa kyrrð & áreynslulausa streitulosun. Að falla frá hugsunum & gjörðum yfir í að finna & vera. Sleppa takinu & treysta flæðinu.

The sky’s art work above REYR Studio lately 🧚🏽
19/01/2026

The sky’s art work above REYR Studio lately 🧚🏽

Með mýkt ♡ Ró í REYR ✨ Takk fyrir komuna í gær, hlökkum til að endurtaka þessa töfra á nýju ári!
11/12/2025

Með mýkt ♡ Ró í REYR ✨
Takk fyrir komuna í gær, hlökkum til að endurtaka þessa töfra á nýju ári!

Spennandi ár framundan með Kolbrúnu og Danna ✨
09/12/2025

Spennandi ár framundan með Kolbrúnu og Danna ✨

Möntrusöngur & Yoga Nidra með cacao og tónheilun ​Námskeiðið er 4 vikur og hefst þriðjudaginn 7. október og er alla þriðjudaga í okt frá kl. 19.30-21

Fallega íslenska vetrarbirtan og skuggarnir sem fylgja að búa til töfra í stúdíóinu þessa dagana //That time of the year...
28/11/2025

Fallega íslenska vetrarbirtan og skuggarnir sem fylgja að búa til töfra í stúdíóinu þessa dagana
//
That time of the year when we savour every drop of light we get — and the golden hour lasts for hours

Nú er tíminn til þess að lyfta orkunni okkar upp! 🌻Eftir vetrardvalann, hvíldina, kyrrðina og innri vinnuna sem myrkrið ...
18/04/2025

Nú er tíminn til þess að lyfta orkunni okkar upp! 🌻

Eftir vetrardvalann, hvíldina, kyrrðina og innri vinnuna sem myrkrið kallar fram er kominn tími til þess að vakna með vorinu. Á þessum árstíma lifnar náttúran við, brýst undan vetrarfeldinum og ferðast frá frosti yfir í frjósemi, það sama á við um okkur.

🌿Hvað er næsta skrefið ? Eftir yin, hvað kemur þá ?
Á þessu námskeiði tökum við orkuna frá vorinu með okkur á dýnuna, við skoðum hvernig við tökum skrefið upp frá dýnunni í átt að meiri hreyfingu og flæði.

Saman munum við ferðast inn í rýmið þar sem yin og yang mætast. Ferðumst í gegnum æfingar og iðkun sem styður við jafnvægi líkamans og orkulíkamans. Æfingar sem endurnæra taugakerfið, hreinsa sogæðakerfið og vekja upp orkulíkamann svo við getum farið út í sumarið með meiri lífsorku, tilhlökkun og í jafnvægi.

Við sækjum í tól og æfingar úr yin yoga fræðunum, yoga þerapíu fræðunum, restorative yoga og trauma þerapíu. Æfingar sem vekja og virkja líkamsstarfsemina.

Þetta framhaldsnám er fyrir þig sem hefur stundað reglulega jógaiðkun og leitast eftir að dýpka þinn skilning og reynslu á heildrænum jógafræðum, eða ert með kennararéttindi á bakinu en vilt bæta á þig tímum og tólum.

☀️Tímasetning:
Föstudagur 9. maí kl. 17.00 - 20.00
Laugardagur 10.maí kl. 10.00 - 16.00
Sunnudagur 11.maí kl. 10.00 - 15.00

🏡Staðsetning: REYR Studio, Fiskislóð 31B

⚡️Verð: 59.900 kr.

Meiri upplýsingar á www.reyrstudio.com og í link í bio

Fallega hillan okkar full af gourmet jógadóti frá Manduka 🥰
28/02/2025

Fallega hillan okkar full af gourmet jógadóti frá Manduka 🥰

Address

Fiskislóð 31B
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when REYR Studio posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to REYR Studio:

Share

Category