07/04/2026
Við höfum farið þó nokkuð út fyrir bæjarmörkin á þessu ári. Við höfum hjólað á Selfossi, Akranesi og Akureyri. Í Hveragerði og Reykjanesbæ. Ýmist dagsferðir eða helgarferðir með gistingu. Nokkuð ljóst að við gistum ekki í tjöldum að vetrarlagi, við höfum gist í bústöðum eða ódýrri hótelgistingu.
Ef einhver vill ekki láta birta myndir af sér í ferðalögum og öðrum viðburðum, þá verðum við að sjálfsögðu við því.
Næsta ferð er á dagskrá 22 maí. Gist í bústað í Fjárhústungum (í nágrenni Húsafells) og hjólað um nágrennið, hvert verður að koma betur í ljós eftir ástandi vega og slóða í nágrenninu. Heitur pottur, grill og næs. Við getum ferjað hjólin ef á þarf að halda. Takmarkað pláss, fyrstur kemur fyrstur fær. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Hrannar í email [email protected] Kostnaði verður stillt í hóf og dagleiðir skipulagðar miðað við þáttakendur og eins og áður sagði, veðri og færð.
Hér má sjá myndir úr þeim ferðum sem hafa verið farnar á fyrstu þremur mánuðum ársins.
https://photos.app.goo.gl/wQFo7p5cgn4NTpVP6