ManUtd Iceland

ManUtd Iceland Opinber stuðningsmannasíða Manchester United á Íslandi.

🔴 Draumurinn um Old Trafford byrjar hér! 🔴Félagsgjöld Stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi eru komin í banka...
14/06/2026

🔴 Draumurinn um Old Trafford byrjar hér! 🔴
Félagsgjöld Stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi eru komin í bankann.

Og nú er rétti tíminn til að tryggja sér aðild fyrir komandi tímabil.

Með árgjaldinu færðu meðal annars:
> Veglegan gjafapakka
Sendan út um mánaðamót nóvember og desember.

> Forgang að miðum á heimaleiki Manchester United
Félagsmenn fá aðgang að því að kaupa staka miða á alla heimaleiki tímabilsins.

> Forgang að VIP-miðum
Þar á meðal Club Level og Sir Bobby Charlton Suite.

> Forgang að miðum á útileiki
Meðal annars á alla leiki Manchester United í London.

⚽ Forgang að Matchday Experience á Hotel Football
Ótrúleg upplifun fyrir og eftir leik og fullkomin Old Trafford upphitun.

🎡 Lukkuhjólið MUSC Iceland og BETSSON heldur áfram!
Lukkuhjólið sló rækilega í gegn á síðustu leiktíð og verður á fullum snúningi allt næsta tímabil.

Vinningahafar, sem eru félagsmenn, fá sannkallaða draumaupplifun:
>Tveir miðar á besta stað á Old Trafford
> Aðgangur að glæsilegu Manchester Suite
> Upplifun sem toppar allt!
Þetta er fyrir stuðningsfólk sem vill magnaða upplifun, frábær sæti og ógleymanlega ferð á Old Trafford.

Með aðild styður þú jafnframt góð málefni:
❤️ Ferðasjóð fatlaðra, með aðgengi að hjólastólasvæði á Old Trafford
❤️ Styrktarsjóð langveikra barna
Ekki láta drauminn fara fram hjá þér.

Skráðu þig í dag og vertu hluti af Manchester United-fjölskyldunni á Íslandi! > Hafðu samband: [email protected]

Okkar maður 👊👍
23/05/2026

Okkar maður 👊👍

21/05/2026
Man utd vs Liverpool 🥰Kveðja frá Ingu til klúbbsins “ Takk kærlega fyrir að redda þessum miðum fyrir mig. Bestu 90 mínút...
05/05/2026

Man utd vs Liverpool 🥰
Kveðja frá Ingu til klúbbsins

“ Takk kærlega fyrir að redda þessum miðum fyrir mig. Bestu 90 mínútur í mínu lífi ”

https://easecure.is/mem/
27/04/2026

https://easecure.is/mem/

It takes you back to a goal, a final, a player, or a moment that meant something. Every piece tells a story — and that’s what makes collecting truly special.

01/04/2026
Það var sannkölluð draumahelgi þegar Viktor og Andri héldu til Manchester og heimsóttu Old Trafford á vegum Styrktarsjóð...
31/03/2026

Það var sannkölluð draumahelgi þegar Viktor og Andri héldu til Manchester og heimsóttu Old Trafford á vegum Styrktarsjóðs MUSC Iceland. Ferðin bauð upp á skemmtilega samveru, góðan mat, borgarrölt og einstaka upplifun á einum þekktasta knattspyrnuvelli heims. Hér á eftir fer ferðasaga þeirra frá þessari eftirminnilegu ferð. Sérstakar þakkir fá allir þeir sem styrktu framtakið með því að kaupa happdrættismiða af félaginu. Saga þeirra er hér að neðan:

Ferðasaga Viktors og Andra farinn á vegum Styrktarsjóðs MUSC Iceland:Fyrst á óskalistanum var að kaupa Yuzu-morgunverðar...
31/03/2026

Ferðasaga Viktors og Andra farinn á vegum Styrktarsjóðs MUSC Iceland:

Fyrst á óskalistanum var að kaupa Yuzu-morgunverðar borgara á Keflavíkurflugvelli, sem sló í gegn. Dvölin á flugvellinum var viðburðarlítil að öðru leyti og sama má segja um flugið sjálft, sem gekk vel. Bílstjóri beið okkar í MAN og við komumst því hratt og örugglega á Clayton-hótelið, þar sem vel fór um okkur alla ferðina. Næsta stopp var svo Arndale-verslunarmiðstöðin, þar sem kíkt var í búðir. Kvöldmatur á Nando’s varð fyrir valinu, sem einmitt var á óskalista Andra.

Á laugardagsmorgni gengum við á uppáhaldskaffihús Viktors, Mancoco, sem er ekki langt frá Deansgate-Castlefield-sporvagnastöðinni. Þessu kaffihúsi kynntist hann sumarið 2022 þegar við vorum í borginni að elta kvennalandsliðið á Evrópumótinu. Því næst lá leiðin í Manchester United Megastore, þar sem menn gölluðu sig upp í anda ferðarinnar. Næsti áfangastaður var svo Trafford Centre, sem einnig var á óskalistanum.

Það er yfirþyrmandi stórt og úthaldið í að þramma gangana reyndist ekki mikið. Kvöldmatur var tekinn á Rudy’s Pizza rétt hjá hótelinu — enn einn staðurinn á óskalistanum. Ljómandi góðar pizzur sem vel er hægt að mæla með.

Allir voru heldur betur spenntir að mæta á völlinn á sunnudagsmorgni og við vorum mætt vel tímanlega. Gaman var að sjá stemninguna á öllum hornum og við völlinn. Vel var tekið á móti okkur við innganginn og mjög skemmtilegt að geta horft yfir völlinn og fylgst með þegar upphitunin fór fram og liðin komu inn á.

Það var skellur að fá mark á sig strax í byrjun, en það blés okkur kapp í kinn og gerði þetta allt meira spennandi. Andri og Viktor lifðu sig inn í stemninguna og skemmtu sér hið besta. Við skiluðum okkur nokkuð dösuð á hótelið á ný og söfnuðum orku áður en haldið var á steikhúsið Flat Iron, sem er í göngufjarlægð frá Clayton. Þar áttum við góða kvöldstund og fengum frábæra steik, sem var góður lokapunktur á þessum frábæra degi.
Mánudagsmorguninn hófst svo snemma til að ná síðustu ferð í búðir og á kaffihús áður en við héldum af stað á flugvöllinn á ný. Við vorum mjög heppin með veður, milt og mestmegnis þurrt, sem var kærkomið eftir snjó og kulda hérna heima.

Viljum minna á að enn er í boði BETSSON & MUSC Iceland Manchester United vs. Aston Villa 15. marsAllir félagsmenn MUSC I...
07/03/2026

Viljum minna á að enn er í boði BETSSON & MUSC Iceland
Manchester United vs. Aston Villa 15. mars
Allir félagsmenn MUSC Iceland eru sjálfkrafa í pottinum!
Viltu auka vinningslíkurnar? sendu okkur póst á [email protected]
Deildu þessari færslu og hoppaðu í Lukkupottinn fyrir aukavinning!
Manchester er ekki bara heimili Manchester United heldur líka ein líflegasta borg Bretlands. Sendu okkur póst á [email protected]

Address

Box 8085, 121 Reykjavík
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ManUtd Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category